Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Side 12

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Side 12
GILDI HEILSUVERNDAR ■JÓN SIGURÐSSON, dr. med. Fyrrverandi borgarlæknir. Betra er heilt en vel gróið, segir máltækið. Öllum ber saman um, að ákjósanlegra sé að vera án sjúkdóms en að þurfa að lækna hann, þótt unnt væri. 1 heilbrigðismálum hlýtur það því að koma í fyrstu röð að forða mönnum frá sjúk- dómum, að svo miklu leyti sem frekast er unnt. Læknar eru og nú almennt á einu máli um það, að framtíðarverkefnið í heilbrigðismálum sé heilsuvernd. 1 því starfi eru farnar og hafa verið farnar margar leiðir — og með góðum árangri. Á alþjóðavettvangi hefur um árabil jafnvel verið unnið markvisst að fullkominni útrýmingu vissra sjúkdóma, aðallega hitabeltis- sjúkdóma. Við höfum hér á landi haft lækna í rúm 200 ár. Þeir voru lengi örfáir, einangraðir í fagi sínu, bjuggu við lítinn bókakost og voru illa búnir að tækjum. Þetta hefur allt breyst óð- fluga frá síðustu aldamótum. Þá fengum við og okkar fyrsta almenna spítala, Landakots- spítala, sem var okkar einasta almenna sjúkra- hús í um 30 ár, en einnig á sviði sjúkrahúsmála hafa orðið stórstígar framfarir á undanförnum árum. Starf lækna og hjúkrunarliðs, á sjúkrahúsum og utan þeirra, hefur yfirleitt verið heillaríkt hér á okkar landi. Það hefur bjargað ótal manns- lífum, veitt mönnum starfsorku og linað þján- 114 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS ingar. Það hefur því bætt heilsufar þjóðarinn- ar að verulegu leyti. Engum sjúkdómi hefur þó nokkru sinni verið útrýmt með því einu að leitast við að lækna sérhvern sjúkling, sem sjúkdóminn hefur. Aðr- ar heilbrigðisráðstafanir þurfa að koma til. Sjúkdómnum sjálfum verður ekki rutt úr vegi í sjúkrahúsum, svo nauðsynleg og sjálfsögð sem þau eru til líknar og lækninga á einstaklingum. Til skamms tíma hafa þessar „aðrar heil- brigðisráðstafanir" beinst fyrst og fi’emst að vörnum gegn skæðum sóttnæmum sjúkdómum. Hér á Islandi hafa unnist miklir sigrar á þessu sviði, — sigrar, sem hafa gjörbreytt heilsufari þjóðarinnar og þar með afkomu hennar og vel- ferð. Til glöggvunar og upprifjunar skal hér í mjög stuttu máli minnt á nokkur dæmi: Bólusótt hefur verið útrýmt hér með lögbund- inni bólusetningu (en mannskæðir bólusóttar- faraldrar höfðu gengið hér frá því snemma á 14. öld og fram á 19. öldina. Árið 1707 dóu t. d. um 18 000 manns af þessari veiki, eða þriðj- ungur landsmanna). Barmveiki, sem þjóðinni stóð ógn af á síð- ustu öld og á fyrstu tugum þessarar aldar, hefur verið útrýmt á sama hátt, þ. e. með ónæmis- aðgerðum. Holdsveiki, sem hrjáð hafði þjóðina frá því i

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.