Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 15

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 15
ingnum eftir skólatíð hans. Nær það m. a. til tannverndar og tannlækninga og í vissum til- vikum til eftirlits og/eða samstarfs við fjöl- skyldur skólabarna. — Reglubundin heyrnar- skoðun fer fram á öllum 7, 9 og 12 ára börnum undir stjórn heyrnardeildar Heilsuverndarstöðv- arinnar, en þar fer fram fullkomin rannsókn á heyrn ungra og fullorðinna, heyrnartæki lát- in í té og tilsögn veitt í notkun þeirra. — Enn finnast nokkur ný tilfelli af berklum ár hvert, og er berklaskoðun haldið áfram í berkla- varnadeild. — Kynsjúkdómadeild annast kyn- sjúkdómavarnir og leitar m. a. uppi smitbera. — Áfengissjúklingum er veitt aðstoð í áfengis- varnadeild til þess að losna úr viðjum drykkju- sýkinnar, eða a. m. k. að halda henni niðri, og eru sjúklingunum gefin lyf og sálræn meðferð. — Haft er eftirlit með, að tilbúningur, geymsla og dreifing matvæla og annarra neyzluvara fari fram við fullnægjandi aðstæður. Það annast heil- brigðiseftirlitið, sem einnig hefur eftirlit með snyrtistofum, sundstöðum og öðrum þjónustu- stöðum, enn fremur með híbýlum, sem ætla má að séu léleg. Þá fylgist heilbrigðiseftirlitið með, að hollustu- og þrifnaðarhættir séu viðunandi í iðjustöðvum og iðnaðar og öðrum vinnustöð- um. — Þar sem unnið er með viðsjárverð efni eða við mikinn hávaða eða önnur hætta á at- vinnusjúkdómum er til staðar, er starfsmönn- um beint til atvinnusjúkdómadeildar Heilsu- verndarstöðvarinnar, sem athugar og fylgist með heilsu þeirra. Öll þessi störf miða að því að vernda heilsu íbúanna og bæta með því lífskjör þeirra og gera þeim lífið bjartara og ánægjulegra. „Sá kostnaður, sem sjúkdómar og skamm- lífi hafa í för með sér fyrir einstaklinginn og þjóðina í heild sinni, er ekkert smáræði,“ sögðu þrír merkir læknar, dr. Jónas Jónassen, land- læknir, Guðm. Magnússon og Guðm. Björnsson, í inngangi að heilbrigðismálariti þeirra, „Eir“, árið 1899. Þeir höfðu reiknað út í krónutali, hve mikils virði mannslífið var þá, en gátu þess jafnframt, að það væri ekki ævinlega jafnmikils virði! Taldist þeim til, að miðað við meðlag með hreppsómögum væri hver 15 ára unglingur hér á landi a. m. k. 1 500 króna virði, en síðar yrði hann verður 9 500 króna, og var þá fæðiskostn- aður ekki reiknaður með. „Þessi stóra upphæð,“ segja læknarnir síðan, „mundi fara forgörðum við fráfall hans.“ Árið 1930 mátu þjóðfélagsfræðingar manns- lífið íslenska á 50 þús. krónur, að því er segir í ræðu Steingríms Matthíassonar, læknis, ári síðar, en ef kaupgjald þá og nú er borið saman, mundi þetta í dag jafngilda 7 millj. 560 þús. króna. Nú eru slysa- og heilsuvarnir almennt tald- ar til mannúðarmála, og við erum ekki vön að meta mannslífin til fjár. En stöku sinnum er ekki úr vegi að gera sér grein fyrir, að þau hafa einnig peningalegt gildi — og ekki lítið. Tölur í því sambandi eru þó allar vissulega mjög varasamar. Á síðastliðnu ári var varið liðlega 3 milljörð- um króna til rekstrar og byggingar spítala og annarra sjúkrastofnana hér á landi, en alls voru legudagarnir þetta ár um 1 milljón, eða sem svarar 5 daga sjúkrahúsvist að meðaltali á hvert mannsbarn. Meðalkostnaður á legudag á sjúkrastofnun- um hér á landi var um 2 600 krónur árið 1973, og er þá ekki reiknaður með stofnkostnaður eða vextir. Ef miðað er við uppgefnar meðaltekjur hvers vinnandi manns árið 1972 og höfð hliðsjón af kaupgjaldi þá og nú, verður að áætla meðal- árstekjur framtalsskylds Islendings nú um 650 þús. krónur. Framleiðslutap þjóðarbúsins að viðbættum framangreindum sjúkrahúskostnaði nemur þannig um 1 milljón og 800 þús. krónum yfir áriS á hvern sjúkling á starfsaldri, sem vist- aður er á sjúkrahús, og þessi upphæð vex hratt. Það veltur því á miklu, að komist sé hjá veik- indum og sjúkrahúsvist, svo sem frekast er unnt, svo að ekki sé minnst á þau óþægindi, þá kvöl og þá sorg, sem veikindum eru samfara. Auk þess gildir það, sem sagt var í upphafi, að betra er heilt en vel gróið. Haustið 1862 ferðaðist hér um land enskur mannvinur, Isaac Sharp. Eftir ferðina sá hann ástæðu til að heita tvennum verðlaunum fyrir bestu ritgerðir „um þrifnað, mataræði, húsa- skipun og fleira þess konar, til að bæta heilsu- far manna og draga úr landfarsóttum og mann- dauða á Islandi“. I einkunnarorðum fyrir svari sínu segir ann- ar sá, er verðlaunin fékk, Torfi Bjarnason, yng- ismaður frá Ásbjarnamesi, árið 1864: „Láttu skynsemina stýra öllum heimilishátt- um, það styrkir sál og líkama, veitir gleði og ánægju, og lengir líf þitt; en leyfðu ekki van- anum að draga hana undir ánauðarok sitt, það slóvgar sálina, veikir líkamann, bakar sorg og bágindi og tekur af þér lífið á miðri leið.“ Með þessum aldargömlu, en sígildu varnað- arorðum hins unga manns lýk ég þessum hug- renningum. □ TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.