Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 21

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 21
geðtruflanir sakir elli og kölkunar né sjúkling- um með vefræna geðsjúkdóma. Síðan 1970 hafa ætíð verið þar 10 ungir eiturlyfjasjúklingar með persónuleikaveilur til reynslu um gagnsemi hóp- lækninga og einstaklingslækninga fyrir þá. Tveir úr hópi starfsliðsins vitja sjúklingsins heim, áður en hann kemur til dvalar í sjúkra- húsinu. Þeir hvetja hann til vistar í deild af þessu tagi og meta jafnframt, hvort hann sé fús til samstarfs og fallinn til þátttöku í þeirri áætlun, sem hefur verið samin fyrir deildina. Tvö stig eru við þennan undirbúning. Fyrst er sjúklingsins vitjað frá deildinni. Á síðara stigi á sjúklingurinn kost á að koma í deildina og einnig að taka þátt í fundi hópsins, sem á að skipa honum í. Einnig er hugað að sjúklingum að sjúkra- húsvistinni lokinni. Læknar deildarinnar og fé- lagsráðgjafar eru til viðtals vikulega í skrif- stofu í Osló. Meðferð er haldið áfram eftir út- skrift, svo lengi sem talið er nauðsynlegt, til þess að sjúklingurinn geti staðið á eigin fót- um. Jafnframt var fjölskyldumeðferð beitt kerf- isbundið. Sjúklingur, sem kemur í sjúkrahúsið, fer í þann hóp, sem ekki er fullskipað í. Verða því sjúklingar með ýmsar sjúkdómsgreiningar í öll- um fjórum hópunum. 1 hverjum hópi er fast starfslið, t. d. skipað á þessa leið: 1 læknir, 1 sálfræðingur, 1—2 hjúkrunarkonur, 1 iðjuþjálfi, 1 félagsráðgjafi, 2—3 sjúkraliðar. Læknirinn og sálfræðingur- inn voru ekki ætíð á fundunum, og stjórnaði þá hjúkrunarkona hópnum. Sjúklingar eru all- an tímann í sama hópi, en skipta um verkefni mánaðarlega. „Húshópurinn“ hjálpast að við hreingern- ingu, uppþvott o. fl. á deildinni. „Framleiðslu- hópurinn“ hefur samvinnu um að búa til ýmsa hluti, sem seldir eru mánaðarlega til að standa straum af sameiginlegum útgjöldum, t. d. vegna ferðalaga og skemmtana. „Félagshópurinn“ fannst mér athyglisverðastur. Verkefni hans var að skipuleggja ferðir og hátíðahald deildar- innar. Auk þess er honum ætlað að setja sam- an skemmtidagskrá, t. d. söng, spil eða upplestur til flutnings í deildum aldraðra. Þegar dagskrá- in er fullgerð, bakar hópurinn kökur, fer síðan í heimsókn í deild aldraðra, framreiðir þar kaffi og kökur og heldur uppi skemmtun. Mér fannst þessi framtakssemi mjög lofsverð. Mér var sagt, að það fengi á suma sjúklingana 1 hópnum að fara í heimsóknir á deildir hinna öldruðu, en almennt var álitið mjög gagnlegt fyrir sjúklingana að kynnast högum eldra fólks- ins í sjúkrahúsinu. 1 fjórða lagi var „mótun- arhópurinn", þar sem sjúklingar gátu valið milli leirmunagerðar, smíða, vefnaðar o. s. frv. og búið til muni fyrir sjálfa sig. Eins og í Ullevál var mikið um fundi hjá starfsfólki og sjúklingum og einnig starfsliðs- fundir. Mér virtist meiri ró og hlýja ríkjandi yfir öllu í Lien heldur en í Ullevál. Aðalástæðan er ef til vill sú, að dvalartími sjúklinga í Lien er ekki takmarkaður við þrjá mánuði hið mesta eins og í Ullevál. Samvinna starfsliðsins í Lien var með ágætum og sjúklingunum var ekki þröngvað til neins, sem þeir höfðu ekki fallist á fyrir fram. Á Dikemark hafði ég einnig tækifæri til að heimsækja deildir, sem reknar voru á hefð- bundinn hátt, og líka deildir fyrir aldraða. Ef ég á að meta árangurinn af dvöl minni í Ullevál og Dikemark, verð ég að viðurkenna, að ég er ekki „snúin til trúar“ á samfélagslækn- ingar. Að nokkru leyti gæti það stafað af því, að margir fundir á stuttum tíma gerðu mér örð- ugt að gera mér fulla grein fyrir viðhorfinu gagnvart sjúklingunum. Ennfremur er alltaf erfitt að vera nýliði í hópi. En vissulega er margt að læra og sumt af því gætum við tekið upp. Ég nefni hér nokkur atriði: 1. Við ættum að koma á sameiginlegum fund- um starfsliðs og sjúklinga í fleiri deildum en gert er. Ég held, að allir geðsjúklingar, að undanskildum þeim ellisjúku, geti notið ánægju og haft gagn af slíkum samkomum. 2. Við verðum að gera okkur far um að leggja með þessum fundum aukna ábyrgð á herðar sjúklingunum. Við geðhjúkrunarkonur höf- um árum saman svipt sjúklinga okkar sjálf- ræði. Sjúklingarnir eru færir um að leysa af hendi miklu fleiri verkefni en við felum þeim, það sjáum við t. d. í ferðalögum. 3. Við eigum að leitast við að halda fleiri fundi deildarstarfsliðs og annarra starfshópa og ræða þar opinskár um samstarfsvandamál, sem kunna að vera fyrir hendi í deildinni. Ljóst er, að menn geta ekki fengist við geð- sjúklinga án góðrar samvinnu starfsliðsins. 4. Geðræn vandamál ná oft til heillar fjölskyldu. Við þurfum að gera okkur það ljósara en raun ber vitni og gera meira að því að blanda fjölskyldum sjúklinganna í meðferð þeirra. 5. Marga sjúklinga væri vafalaust hægt að með- höndla á göngudeild með hjálp geðhjúkrun- arkonu. Ég held, að við gætum sparað sjúkl- ingum og þjóðfélagi hluta sjúkrahúsvistar- innar með því að ræða við sjúklingana, áður en þeir leggjast inn, og meta þörf á vist í sj úkrahúsi. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 123
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.