Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Síða 24

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Síða 24
Sykepleien, ágústhefti 197U, birtir eftirfarandi bóJcarfregn, ritaða af Calle Almedal. Mérgrét Jóhannesdóttir íslenskaJði. Komin er út í Frakklandi lítil, en áhugaverð bók. Höfundur- inn, Frédérick Lebouyer, gerir í henni grein fyrir skoðun við- víkjandi fæðingum án ofbeldis fyrir barnið. Vegna þess að bók- in hefur enn ekki verið þýdd á nokkurt norðurlandamál, verð- ur gerð hér nánari grein fyrir innihaldi hennar en venja er um bókatilkynningar. Við höfum nú náð því marki að stöðugt fleiri konur geta fætt börn sín þjáningalaust. 1 Frakk- landi er það e. t. v. ennþá algeng- ara en í Noregi. Fæðingin er orðin atburður sem. endurspegl- ar hamingju og samræmi í stað hræðslu og þrauta. Hamingju og samræmi fyrir alla aðra en barnið. 1 bókinni er mynd af mörgu fólki, sem tekin er að fæðingu lokinni. Móðirin hlær, faðirinn hlær og læknirinn hlær. Allir virðast rólegir og ham- ingjusamir — nem.a barnið. Það grætur og hangir með höfuðið niður meðan læknirinn heldur föstu taki um ökla þess. Það er greinilegt að litla barninu líður illa, meira að segja tekur það höndum um höfuð sér, nákvæm- lega eins og fullorðna fólkið gerir þegar það er hrætt og ör- vinglað og hefur orðið fyrir mikilli sorg eða þrautum. Le- bouyer sýnir okkur aðrar mynd- ir af nýfæddum börnum sem ýmist liggja innan um voðir eða á vigt. Öll eru þau grátandi og sveifla litlu höndunum og fót- unum eins og til að verja sig gegn því ofbeldi sem verið sé að beita þau. Þessar og þvílíkar myndir hafa auðsjáanlega vakið Le- bouyer til umhugsunar um, hvernig fæðingin muni verka á barnið. Margir hugsa um móð- urina og ýmsir um föðurinn — en hver hugsar um barnið? Það munu fáir gera. Nokkrir sál- fræðingar og geðlæknar eru þeirrar skoðunar, að frystu ævi- stundirnar séu mikilsverðar fyr- ir framtíð barnsins, en fáum kemur til hugar að sjálf fæð- ingin geti einnig verið afdrifa- rík. Getur það skipt máli fyrir barnið hvernig það fæðist inn í heiminn? Aðalatriðið virðist vera, að barnið yfirleitt fæðist og fái svo fljótt sem mögulegt er súrefni í lungun, svo að það geti byrjað að anda. Meðan barnið liggur í móður- kviði upplifir það sitt af hverju. Það heyrir lágvær hljóð, rólega framleidd af lifandi vefjum og vökvum. Og það heyrir hjart- slátt móðurinnar, sem á undar- legan hátt tákna hrynjanda í lífi barnsins. Það „sér“ ljós- rauðgult endurskinið af uterus — hver mun ekki kannast við myndir Lennarts Nilsons? Barn- ið verður þess einnig vart — á sína vísu — að það í byrjun án ofbeldis Líka fyrir barnið Pour une naissance sans violence, Frédérick Lebouyer, Seuil. flýtur í vatni, og síðar smám- saman lokast inni í vatninu, og það er m. a. sjálft vatnið sem, ásamt samdrætti í uterus, kjass- ar barnið. Þessar gælur verða að hríðum daginn þann sem barnið á að fæðast, og hjálpar það sjálft — eftir því sem lækn- ar segja — til þess að segja skilið við móðurina, samtímis því sem hún gerir sitt til að losna við barnið. Hljómar, birta og blíðuhót umvefja allan líkama barnsins í móðurkviði. Skilningarvit þess örvast löngu fyrir fæðinguna. Það er áreiðanlega mikilsvirði að vita þetta og muna. Barnið verður fyrir margs konar áhrif- um frá móðurinni á meðgöngu- tímanum. Svo áhrifamikil dæmi sem af hljótast ef móðirin er narkoman, þarf ekki til, án þess má skilja hve heilsa móður og hugarástand eru mikilvæg fyrir hið ófædda barn. Hvað skeður svo með barnið um leið og það fæðist? Lebouyer skýrir það með næstum ógnandi dæmum. Móðirin er komin að fæðingu, kringum hana er oft hópur fólks sem vill hjálpa til. Það er hrópað: „Þrýstu á, hjálp- aðu til. Svolítið enn. Einu sinni til“. Skærum ljósum er beint að, svo hægt sé að fylgjast með hvað skeður. Síðan kemur barn- ið. Út í háværan klið af rödd- um, hrópum og verkfæraglamri. Út í sterka birtu sem miskunn- arlaust blossar í augun. Barnið er tekið. Því er haldið lóðréttu með höfuðið niður, það 126 TÍMARIT HJÚKRUNARPÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.