Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Síða 27
Læknanemar ráðnir til
hjúkrunarstarfa
Undirritaðir kennarar við Hjúkrunarskóla ls-
lands rituðu stjórn Hjúkrunarfélagsins bréf,
þar sem þeir vöktu athygii á eftirfarandi:
Vegna skorts á hjúkrunarkonum hafa lækna-
nemar í sívaxandi mæli verið ráðnir til hjúkr-
unarstarfa. Þykir okkur sú þróun geigvæn-
leg, þar sem um tvær sjálfstæðar starfsgrein-
ar er að ræða, og að okkar mati enginn grund-
völlur í þeirra námi fyrir hj úkrunarstörf.
Þarna er freklega gengið inn á starfssvið
hjúkrunarstéttarinnar og hún lítilsvirt, hvað
menntun og laun snertir, þar eð þeir taka
laun sem hjúkrunarkonur.
Undirritaðar skora því á Hjúkrunarfélag Is-
lands að taka mál þetta til skjótrar athugunar.
Jafnframt komum við með ósk urn að viðkom-
andi stofnanir, er ráða læknanema til aðstoðar
á sjúkradeild, gefi þeim kost á að afla sér þeirra
almennu undirstöðuatriða, er á skortir til slíkra
starfa.
Virðingarfyllst,
Sigurhelga Pálsdóttir, Kristín Pálsdóttir,
Sigþrú&wr Ingimundardóttir, Lilja óskarsdóttir,
Helga Ragnarsdóttir, Hertha W. Jónsdóttir,
Þorbjörg Friöriksdóttir.
Stjórn HFl hefur haft mál þetta til athug-
unar og var það tekið til sérstakra umræðna á
stjórnarfundi félagsins 2. sept. sl.
Þar kom fram, að málið var rætt á fundi með
forstöðukonum í júlí sl., þar sem samkomulag
varð um að forstöðukonur beittu sér fyrir því,
að ekki væru aðrir ráðnir til hjúkrunarstarfa
en þeir, er heimild hafa til þess samkv. lögum.
Hins vegar væri heimilt að ráða aðra til aðstoð-
ar ýmiss konar. Á fundinum var einnig ákveðið,
að stjórn forstöðukvennadeildar HFÍ hefði sam-
band við forstöðukonur allra sjúkrahúsa í land-
inu.
Stjórn HFI hefur óskað eftir nánari upplýs-
ingum frá ráðningarskrifstofu iæknanema, sem
enn eru ókomnar.
Nýi hjúkranarskóliim brautskráir
fyrstu nemendur sína
Laugardaginn 23. nóvember sl. brautskráði Nýi
hjúkrunarskólinn 21 nemenda. Eru það fyrstu
nemendurnir er ljúka námi frá skólanum. Nán-
ar verður greint frá þessu í næsta blaði.
Á grunnmenntun í hjúkrun að
vera eftir tveim eða fleirum
menntunarleiðum?
1. Við skorum á allar hjúkrunarkonur og menn
að gera sér ljósa afstöðu sína til þess, sem
nú er að gerast í menntunarmálum stéttar-
innar.
2. Við lýsum algerri óánægju með, að grunn-
menntun í hjúkrun sé veitt eftir tveim eða
fleiri menntunarleiðum.
3. Öll viðleitni til að kljúfa hjúkrunarstéttina
1 tvo hópa, með mismunandi grunnmenntun,
teljum við svik við hjúkrunarkonur, sem
menntast hafa til slíkra starfa á Islandi
eftir þeim leiðum, sem boðist hafa til þessa.
4. Við skorum á stjórn HFl og fulltrúa þá, er
sitja í nefnd um endurskoðun laga um hjúkr-
unarmenntun, að láta það tækifæri ekki ónot-
að að ná allri grunnmenntun hjúkrunar á
Islandi undir eina námsskrá, er veiti sömu
réttindi til framhaldsnáms.
5. Án kennslu og aðstoðar þeirra hjúkrunar-
kvenna og manna, sem nú þegar eru til starfa
hér á landi, er ógerlegt að mennta fólk til
h j úkrunarstarf a.
Því höfum við sameinuð fulla möguleika á
að vernda þau réttindi, sem okkar stétt hlýt-
ur að hafa öðlast í gegnum starf sitt. Þess
vegna skorum við á hjúkrunarstéttina að
taka ekki þátt í neinu starfi, er stuðlar að
mismunun á gæðum grunnmenntunar í
hjúkrun.
6. Tilkoma hjúkrunarnámsbrautar við Háskóla
íslands er ekki verðlaunaveiting til þess
fólks, sem stundað hefur hjúkrunarstörf í
þágu lands síns fram að þessu, heldur frem-
ur kaldranaleg ábending um, að okkar mennt-
un standist ekki kröfur tímans. Látum því
ekki kljúfa okkar hóp í tvennt með því að
bjóða fyrh-varalaust upp á aöra tegund
hjúkrunargrunnnáms. Tökum áskoruninni
og berjumst fyrir rétti okkar, þannig að
allar hjúkrunarkonur og menn, sem mennt-
ast hafa á Islandi til þessa, hafi jafna mögu-
leika til að mennta sig meira og að hjúkr-
unargrunnnám komist allt undir eina náms-
skrá og veiti sömu möguleika á framhalds-
námi.
Hjúkrunarkonur staddar á Blönduósi í ág. 1974:
Sveinfríður Sigurpálsdóttir, Eyrún Gísladóttir,
Sveinborg H. Sveinsdóttir, Guöfinna Pálsdóttir,
Vigdís Bjöyi-nsdóttir, Kristín Hjördís Líndal,
Valgeröur Guömundsdóttir,
Ingibjörg S. Guömundsdóttir.