Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Síða 3
LÖG
HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
1. gr.
Nafn og heimili:
Nafn félagsins er Hjúkrunarfélag fs-
lands.
Heimili þess og vamarþing er í Reykja-
Tilgangur:
Að gæta hagsmuna og virðingar hjúkr-
unarstéttarinnar.
Að vinna að menntunarmálum stéttar-
innar.
Að vinna að launa- og kjaramálum fé-
laga sinna.
Að efla heilbrigðisþjónustu í landinu.
Að glæða félagslegan áhuga og sam-
vinnu við aðrar starfsstéttir.
3. gr.
Bygging:
Félagið skiptist í svæðisdeildir eins og
hér segir:
Reykj avíkurdeild.
Vesturlandsdeild
Vestfjarðadeild
Norðurlandsdeild
Akureyrardeild
Austurlandsdeild
Suðurlandsdeild
Vestmannaeyj adeild
Suðumesj adeild.
Heimilt er að stofna sérgreinadeildir
innan félagsins. Stjóm HFÍ skal viður-
kenna stofnun þeirra og starfssvið.
Fulltrúafundur fer með æðsta ákvörð-
unarvald félagsins.
Stjóm HFÍ framkvæmir ákvarðanir
fulltrúafundar og ber ábyrgð á málefnum
félagsins, skv. félagslögum, á milli full-
trúafunda.
4. gr.
Félagar:
Félagar geta þeir orðið, er fengið hafa
réttindi hér á landi skv. 1. gr. hjúkrunar-
laga. Aukafélagar geta hjúkrunarnemar
orðið, hafa þeir tillögurétt og málfrelsi á
félagsfundum, en ekki atkvæðisrétt. Heið-
ursfélaga getur stjómin gert hvern þann,
er félagið vill sýna sérstaka viðurkenningu.
Merki félagsins er afhent við inngöngu
í félagið. Það er eign félagsins, en ákveðin
upphæð greiðist í eitt skipti fyrir öll, fyrir
heimild til þess að nota það. Félögum er
skylt að bera félagsmerkið, er þeir gegna
hjúkrunarstörfum, þó eru hjúkrunarkonur/
menn á geðsjúkrahúsum undanþegin
þessari skyldu. Við fráfall, úrsögn eða
brottvikningu félaga ber að endursenda
merkið stjórn félagsins.
Árgjöld skulu ákveðin á fulltrúafundi og
greidd fyrirfram ár hvert, fyrir lok mars-
mánaðar. Heimilt er að greiða árgjöld í
tvennu lagi, og skulu þau þá vera greidd
að fullu fyrir 1. október ár hvert. Hafi fé-
lagi eigi greitt gjöld sín til félagsins í 2
ár, ber stjórninni að taka ákvörðun um inn-
heimtu. Sinni félagi því ekki, missir hann
rétt til Tímarits HFÍ og kosningarétt og
kjörgengi í félaginu, þar til skuldin er
greidd. Stjórn HFÍ ákvarðar hvort fella
megi niður árgjöld um tíma, vegna erf-
iðra fjárhagsástæðna félaga.
Félögum HFÍ ber að tilkynna skrifstofu
félagsins breytingar á heimilisfangi og
vinnustað.
Öll þau störf, sem félagi tekur að sér
vegna aðildar að HFÍ, ber honum eða inna
af hendi með trúmennsku og skyldurækni.
Verði alvarlegir misbrestir á þessu og/eða
félagi misnotar nafn félagsins til eigin
1