Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Side 5
8. gr.
Stjóm HFÍ:
Stjóm félagsins skipa formaður, 1. vara-
formaður, 2. varaformaður, ritari, gjald-
keri og 2 meðstjórnendur. Auk þeirra skal
vera 6 manna varastjórn. Kjörtímabil er 3
ár. Formaður skal kosinn sérstaklega
þriðja hvert ár, sbr. 9. gr. Aðrir stjórnar-
fulltrúar skulu kosnir af fulltrúafundi
þannig að skipt verði um 2 stjórnarfull-
trúa og 2 varamenn ár hvert.
Frá gildistöku laga þessara skal á fyrsta
fulltrúafundi kjósa 2. varaformann, með-
stjórnanda og 2 menn í varastjórn.
Á næsta fundi gjaldkera, meðstjórnanda
og 2 menn í varastjórn. Á þriðja fundi skal
kjósa 1. varaformann, ritara og 2 menn í
varastjórn.
Endurkosning er heimil, þó ekki lengur
en til 9 ára samfeldrar setu í stjórn og/eða
varastjórn.
Kjörgengir í stjóm em allir fullgildir
félagar HFÍ.
Hjúkrunarnemar tilnefna einn áheyrnar-
fulltrúa í stjórnina og varamann hans.
Hann hefur málfrelsi og tillögurétt á
stjórnarfundum en ekki atkvæðisrétt.
Sama rétt liafa fulltrúi trúnaðarráðs og
ritstjóri Tímarits HFÍ, sbr. 11. gr.
Verði autt sæti stjórnarmanns á milli
fulltrúafunda, kemur varamaður í hans
stað. Stjórnin tilnefnir þá fulltrúa í vara-
stjórn og gildir kjör hans til næsta full-
trúafundar.
Á stjórnarfundum ræður fjöldi atkvæða.
Falli atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns
úrslitum.
Stjórnin fer með málefni félagsins skv.
lögum þess og ber hún ábyrgð á gjörðum
sínum gagnvart fulltrúafundi.
Stjóminni ber að sjá um að þeir pen-
ingar félagsins, sem ekki em nauðsynlegir
til daglegs reksturs, séu ávaxtaðir á arð-
bæran hátt.
Stjórnin ræður ritstjóra, skrifstofustjóra
og aðra starfsmenn og ákveður þeim laun.
Heimilt er félagsstjórn að skipa nefndir,
er hafi með höndum ákveðin verkefni. —
Hver nefnd skal kjósa sér formann og ber
honum að leggja niðurstöður nefndarinnar
fyrir félagsstjórn áður en þær eru kynnt-
ar á öðrum vettvangi.
Stjórn HFÍ sendir stjómum svæðis-
deilda tilkynningu um það hve marga full-
trúa hver deild skal kjósa á fulltrúafund.
Skal sú tilkynning einnig birt í tímariti
félagsins.
Kærur á hendur félögum skal stjórnin
taka til rækilegrar athugunar. Sé stjómin
sammála um úrlausn máls, getur hún ráð-
ið því ein til lykta, en verði ágreiningur
um úrlausn kæruatriðis er henni skylt að
kveðja trúnaðarráð til fundar. Hefur sá
fundur endanlegt úrskurðarvald. Leiti fé-
lagi aðstoðar félagsins vegna óréttar, er
hann telur sig hafa verið beittan í starfi,
skal fara með málið á sama hátt og að of-
an greinir.
í ágreiningsmálum getur stjórn HFÍ
kvatt trúnaðarráð til starfa með sér, ef
aðilar óska þess eða stjórnin telur rétt.
Við atkvæðagreiðslu um slík ágreinings-
mál, skulu trúnaðarráðsmenn hafa jafnan
atkvæðisrétt og stjómarmenn. Séu at-
kvæði jöfn, ræður atkvæði formanns HFÍ
úrslitum.
Varðandi kærur og ágreiningsmál eru
stjórn og trúnaðarráð bundin þagnar-
skyldu.
Stjóm HFÍ boðar til funda í félaginu
þegar ástæða þykir til. Henni er heimilt að
fá utanfélagsmenn til þess að annast
fundarefni.
Rita skal ágrip af öllu, sem fram fer á
fundum í gerðabók félagsins, einkum allar
fundarsamþykktir og aðrar ákvarðanir.
Fundarstjóri og fundarritari skulu skrifa
nöfn sín undir fundargerðir.
Formaður er fulltrúi félagsins út á við.
Honum ber að sjá um að stjórnin leysi
hlutverk sín fullnægjandi af hendi. Hann
kveður til stjórnarfunda, ákveður dagskrá
og stjómar fundum.
í forföllum formanns gegnir 1. varafor-
maður störfum hans, eða 2 varaformaður.
Á félagsfundum er formanni heimilt að
tilnefna fundarstjóra.
3