Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 17
koma. Kvenfélögin skipulögðu
námskeiðin og fólkið kom gang-
andi og ríðandi langan veg eftir
því sem við varð komið milli
mála. Ég held að þetta starf
hafi haft mikil áhrif til bætts
heilsufars. Við kostuðum kapps
um að veita fólki nauðsynlega
undirstöðuþekkingu á sviði
hreinlætis og mataræðis svo eitt-
hvað sé nefnt.
Margir merkir forystumenn
unnu RKf t. d. Sigurður Sig-
urðsson síðar landlæknir, Gunn-
laugur Einarsson og Þorsteinn
Sch. Thorsteinsson, en þeir voru
allir formenn félagsins um
skeið. Þá voru mjög duglegir og
áhugasamir stjórnarmenn þeir
Björn Ólafsson, Magnús Kjaran
og Haraldur Árnason svo örfáir
séu nefndir.
Þegar fsland var hernumið
Finnskur baðofn
í Sandgerði
1 tilefni af hálfrar aldar starfs-
afmæli sínu 10. desember
197U gaf RauSi kross íslands
út fréttablaS þa,r sem störf sam-
talcanna eru nokkuS rakin.
Þar gat m. a. að líta þessa
skemmtilegu mynd af frk.
Sigríöi Bachmann, fyrrverandi
forstöðukonu Landspítalans,
vi'ö finnska baðofninn í Sand-
gerði. Eftirfarandi texti birtist
nie'ð myndinni.
Apríl 1938.
Rauði krossinn hefur látið út-
búa gufubaðstofu í sjúkraskýli
sínu í Sandgerði. Baðstofan var
upphaflega ætluð sjómönnum í
verstöðvum þar, en áformað er
að skólabörn ’ Sandgerði fái
einnig aðgang að henni. Finnski
baðofninn er hinn vandaðasti og
sannkallað undratæki, þar sem
hann sameinar að vera þvotta-
ofn og sótthrcinsunarofn, auk
þess sem hann er kolaspar
þvottaofn.
1940 hringdi Gunnlaugur Ein-
arsson læknir, sem þá var for-
maður, í mig strax um morgun-
inn og kvaddi mig til hjálpar-
starfa í sambandi við hernám-
ið. Ég var ekki búin að ganga
frá lokun skýlisins og átti alla
reikninga ófrágengna. En ég
dreif mig í bæinn og hóf störf
í sambandi við hernámið, en þar
var í ýmis horn að líta.
— Rauði kross fslands hafði
annast forskóla fyrir hjúkrun-
arkonur árið 1937 og annaðist
ég það á hverju ári þar til ég
réðst til Landspítalans sem
hjúkrunarkennari árið 1941, að
undanteknu hernámsárinu 1940
þegar forskólinn varð niður að
falla. Hann fluttist svo með mér
frá RKl til Landspítalans.
Gunnlaugur Claessen var foi'-
göngumaður þessa máls eins og
margra annarra. Hann var
áhugamaður um aukna mennt-
un hjúkrunarkvenna og heilsu-
vernd.
— Eitt starf var mér falið
einni og sem ég hef sjaldan rætt
um þar sem um mjög viðkvæmt
mál var að ræða. í stríðslokin
var ég útnefndur tengiliður RKÍ
við ameríska Rauða krossinn til
úrlausnar ýmsum mjög erfið-
um og viðkvæmum barnsfaðern-
ismálum við lok styrjaldarinnar.
— Störfin í RKÍ voru öll
skemmtileg og ánægjulegt að
sinna málum sem við töldum
vera til gagns fyrir almenning
og einnig það að vinna með hin-
um frábæru áhuga- og athafna-
mönnum sem voru í forystu
RKf. En öll hefðum við viljað
gera betur.
□
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 45