Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Síða 19
llúrnðiö'.
Strjálbýlt umdæmi mitt nær
annars vegar frá miðbæ Kiruna
norður með járnbrautarlínunni
til landamæranna. Hins vegar
er Tometrásk, suður með járn-
brautarlínunni ásamt Kalixfors-
brúnni, bæirnir út með vegin-
um til Kebnekajse og Nikkalu-
oktaveginum, og jafnframt hluti
af innri byggðinni sem hefur
um 1000 íbúa. 1 umdæminu eru
1700 íbúar.
Ég sé um allt sem við kemur
heilsuvernd og hjúkrun. Ég er
hjúkrunarkona og ljósmóðir
með framhaldsnám í héraðs-
hjúkrun og hef starfað í 13 ár.
Síðustu 2 árin í héraðinu og þar
áður við mæðraeftirlitið í Kir-
una.
1 strjálbýlu héraði koma
sjúklingarnir sjaldan á móttök-
una og því sæki ég þá heim. Ég
reyni að skipuleggja ferðirnar
þannig, að ég geti heimsótt sem
flesta svo að það verði eins ódýrt
og hægt er.
Akvegir eru um helming hér-
aðsins. Ég ek á eigin bíl og fæ
frá sveitarfélaginu 57 sænska
aura fyrir km. (um það bil 22
kr. ísl. Þýð..).
Um hinn hlutann ferðast ég
með járnbraut, annaðhvort með
áætlunarlest eða málmlestinni.
Stundum fer ég á skíðum, vél-
sleða, báti og einstaka sinnum
með flugi eða gangandi.
Hafi maður einhvern tímann
unnið í strjálbýli, er erfitt að
aðlagast þéttbýli. 1 strjálbýli
kemst maður í náin kynni við
íbúana og er þrátttakandi í
vandamálum allra og er það
hvatning í starfi.
Ég kann finnsku og get því
talað við alla. Eldra fólkið í bæj-
unum talar gjarnan finnsku en
annars gengur vel að tala
sænsku. Stór hluti íbúanna eru
samar sem tala bæði sænsku og
finnsku.
Slarfið.
Starfið er breytilegt. Ég sé
um barnaheilsugæsluna og fylg-
ist með barninu frá því það
kemur af fæðingardeildinni og
þar til það fer í skóla. Einnig
annast ég mæðra-, berkla- og
skólaeftirlit, geðvernd og heilsu-
gæslu og hjúkrun bæði á heim-
ilum o g eigin móttöku. Ég
hjálpa sjúkum, fjölfötluðum og
sjúklingum í afturbata, reyni
og útvega hjálpartæki handa
fjölfötluðum. Héraðssjúkra-
þjálfara og iðjuþjálfara vantar
í Kiruna.
Þá reyni ég einnig að koma
í veg fyrir smitandi sjúkdómu
og berst fyrir auknu hreinlæti
á heimilum.
Framh. á bls. 9U.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 47