Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Side 48
taldar vera: mæðravernd, ung'-
barna- og smábarnavernd,
heilsugæsla í skólum, tannvernd
og berklavarnir, kynfræðsla,
kyns j úkdómavarnir, geðvernd,
áfengis- og fíknilyfjavarnir,
sjónvernd, heyrnarvernd, hóp-
skoðanir og skipulögð sjúk-
dómaleit, félagsráðgjöf, at-
vinnusjúkdómavarnir, heilsu-
vernd aldraðra, heimahjúkrun
— t. d. skipulagning og yfirum-
sjón með heimahjúkrun. Heilsu-
verndarhj úkrunarkonan getur
annast heimahjúkrun ef þörf
krefur.
Hér er ekki tækifæri til að
kynna allar greinar heilsuvernd-
ar og viljum við því takmarka
kynningu okkar fyrst og fremst
við ungbarnaeftirlit og skóla-
heilsuvernd.
Un|>b:irn.-ii‘flirlit í Kr.vkjnvik.
Ég ætla að byrja á því að gera
nokkra grein fyrir hvernig ung-
barnaeftirliti í Reykjavík er
hagað. Fæðingardeildirnar
senda okkur fæðingartilkynn-
ingu um barn sem við þurfum
að sinna. Þessa tilkynningu fá-
um við um það leyti sem konan
og barnið fara heim. 1 henni er
þess getið ef eitthvað sérstakt
hefur verið að barninu.
Það sem við gerum fyrst er
að hringja í konurnar og bjóða
aðstoð okkar. Rétt er að vekja
athygli á því að ungbarnaeftir-
lit er ekki skylda og hverri konu
er heimilt að þiggja okkar að-
stoð eða hafna. Flestar konur
þiggja að við komum og ákveð-
um við því tíma fyrir fyrstu
heimsókn. Fyrstu 3 mán. förum
við svo í heimsókn á 14 daga
fresti. I þessum heimsóknum
vigtum við barnið og gefum. al-
mennar leiðbeiningar um mat-
aræði, brjóstagjöf og fleira.
Jafnframt ræðum við um eftir-
skoðun og getnaðarvarnir við
mæðurnar.
Astríður með einn af litlu
þjóðfélagsþegnunum.
Stóra systir fylgist með af ákafa.
Tilhögnn ungbarnaeftirlits
í Reykjavík.
Aldur barns Aðgerðir
I I
0—3 mánaða — Heilsuverndar-
hjúkrunarkona fer á 14 daga
fresti á heimili barns. Vitjun
og almennar leiðbeiningar.
3 mánaða — Á heilsuverndar-
stöð. — Læknisskoðun — 1.
ónæmisaðgerð.
4 mánaða — Læknisskoðun —
2. ónæmisaðgerð.
5 mánaða — Læknisskoðun. 3.
ónæmisaðgerð.
7—9 mánaða — Læknisskoðun
— kúabólusetning.
1 árs — Læknisskoðun — 4.
ónæmisaðgerð.
3—4 ára — Læknisskoðun — 5.
ónæmisaðgerð — sjónpróf —
tekið þvagsýni.
Þegar barnið er 3 mán. kem-
ur það í fyrsta skipti á heilsu-
verndarstöðina. Þá er það vegið
og mælt, læknir skoðar það og
það er sprautað í fyrsta sinn
gegn barnaveiki, stífkrampa og
kíghósta. Að auki eru gefnar
leiðbeiningar um mataræði og
fleira. Barnið kemur næst þeg-
ar það er 4 mán. og síðan þegar
það er 5 mán. Þá er það á sama
hátt og áður skoðað af lækni og
sprautað. Til viðbótar þeim
ónæmisaðgerðum sem ég nefndi
áðan er barnið í fyrsta sinn
bólusett gegn mænusótt. Leið-
beiningar eru gefnar um mat-
aræði. Þessar tölur sem ég hef
nefnt hér um aldur standast að
sjálfsögðu ekki alltaf. Oft eru
börnin kvefuð eða veik og þá
dregst þetta. Alltaf eru látnar
líða að minnsta kosti 3—4 vik-
ur á milli bólusetninga. 7—9
mán. er barnið kúabólusett og
þá þarf það að vera vel frískt
og með heila húð. Einnig er þá
læknisskoðun. Næsta heimsókn
er svo þegar barnið er um 1 árs.
Þá er gerð 4. ónæmisaðgerðin
sem er eins og hinar 3. Einnig
fer fram læknisskoðun. Við gef-
um líka leiðbeiningar um mat-
aræði og eðlilegan andlegan
þroska barns. Þá er mikilvægt
að athuga hvort barnið sé ekki
farið að borða allan algengan
mat og hvort það sé ekki hætt
að nota pela. Berklaplástur er
settur á börnin þegar þau koma
í skoðun 1 árs. Síðasta skipti
sem barnið kemur á heilsu-
verndarstöðina er svo þegar það
76 TÍMARIT HJÚICRUNARFÉLAGS ÍSLANDS