Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 49
„Þú hefur lengst“ sagði Kolbrún,
eftir að hafa mælt litlu stúllcuna.
er 3—4 ára gamalt. Þá fer fram
læknisskoðun og 5. ónæmisað-
gerð sem er endurtekin mænu-
sóttarbólusetning. Sjónin er at-
huguð og tekið þvagsýni (uri-
kult) hjá barninu. Eins er sett-
ur berklaplástur.
Þetta er í stórum dráttum yf-
irlit yfir hvernig ungbarnaeft-
irlit er framkvæmt hér í Reykja-
vík. Ég hef stiklað á stóru og
því má vel vera að margt sé enn
óljóst fyrir ykkur. Ég vil því
eindregið hvetja ykkur til að
spyrja ef svo er. Ef svo er ekki
þá langar mig til að halda svo-
lítið áfram og gera í fáum orð-
um grein fyrir heilsuverndar-
starfi í Noregi sem er í ýmsu
frábrugðið því sem hér gerist.
Þegar við ætlum að gera sam-
anburð á heilsuverndarstarfi
hér og í Noregi þá þurfum við
að gera okkur grein fyrir að all-
mikill munur er á því hversu
lengra uppbygging er komin þar
en hér. Ég starfaði um eins árs
skeið í Oslo og mun því fyrst
og fremst miða við uppbygging-
una þar. Einmitt á þeim tíma
sem ég starfaði þar voru mikl-
ar breytingar á döfinni. Ég náði
ekki að starfa eftir nýju lög-
gjöfinni en mun þó reyna að
gera grein fyrir henni eftir því
sem ég get.
Starfseminni í Oslo er þann-
ig háttað að borginni er skipt
í hverfi og í hverju hverfi er
heilsuverndarstöð. Þessar hverf-
isstöðvar hafa sína stjórnunar-
miðstöð í heilsuverndarstöð sem
er miðsvæðis og samsvarar í
ýmsu heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg í Reykjavík. Það eru
heilsuverndarh j úkrunarkonur
sem sjá um rekstur heilsuvernd-
arstöðvanna í hverfunum. Auk
þeirra starfa læknar, aðstoðar-
fólk og þar sem best lætur sál-
fræðingur og félagsráðgjafi.
Tekið hefur verið mið af svip-
uðum aðstæðum og ég hef lýst
hér við skipan vinnu á heilsu-
verndarstöðinni, sem ég mun
reyna að greina frá.
Fyrsta samband sem næst við
fjölskylduna er yfirleitt þegar
konan kemur í mæðraskoðun.
Síðan, þegar móðir og barn
koma heim af fæðingardeild, er
reynt að fara í heimsókn í fyrstu
vikunni. Síðan koma móðir og
barn á heilsuverndarstöðina
þegar barnið er 6 vikna gam-
alt. Þá fer fram læknisskoðun,
tekið þvagsýni (Folling) og
móðirin ræðir við heilsuvernd-
arhjúkrunarkonuna. Næst kem-
ur barnið þegar það er 3 mán.
Þá skoðar læknir það og það
er bólusett í fyrsta sinn. Síðan
kemur barnið mánaðarlega og
er sprautað í hvert skipti og er
það heilsuverndarhj úkrunar-
konan sem skoðar það og spraut-
ar. Þá kemur barnið 6—7 mán.
gamalt og er þá kúabólusett og
læknir skoðar barnið. Næsta
skoðun fer fram þegar barnið
er um 12 mán. Þá skoða bæði
læknir og heilsuverndarhj úkr-
unarkona barnið. Einnig þá er
oft bólusett gegn mislingum.
Heilsuverndarh j úkrunarkona
tekur Hgb. þvagsýni og setur
berklaplástur á barnið. Þetta er
hin venjulega læknisskoðun.
Heyrnin er líka athuguð. Barn-
ið kemur svo þegar það er 2 ára
og 4 ára og er þá skoðað af
lækni. Við 4 ára eftirlit er sjón-
in athuguð. Einnig er lögð mik-
il áhersla á að kanna andlegt
jafnvægi barnsins.
Ég hef rakið í stórum drátt-
um hvernig ungbarnaeftirlit fer
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 77