Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 69
samkvæmt lögum þessum fyrnast eftir sömu
reglum og kaupkröfur samkvæmt lögum nr. 14
20. okt. 1905, um fyrningu skulda og annarra
kröfuréttinda.
15. gr. — Það varðar sektum, er renna í rík-
issjóð, ef
1. vinnuveitandi lætur starfsmann sinn ekki fá
orlof eða orlofsfé samkvæmt lögum þessum
nema um ítrekað brot sé að ræða því að þá
má dæma hann til varðhalds;
2. vinnuveitandi gerir samning við starfsmann
sinn sem bannaður er í 2. gr. 2. mgr.;
3. starfsmaður brýtur ákvæði 12. og 13. gr. og
skal þá jafnframt, ef brot er ítrekað, ákveða
með dómi missi orlofsréttar næsta orlofsár
eftir að dómur er kveðinn upp.
Mál út af brotum þessum skulu sæta meðferð
opinberra mála. Sökin fyrnist ef mál er eigi
höfðað áður en næsta orlofsári lýkur eftir að
brot var framið.
16. gr. — Ef eigi er öðruvísi ákveðið í lögum
þessum, skulu öll mál út af réttindum og skyld-
um samkvæmt þeim og til fullnægingar öllum
kröfum í því sambandi heyra undir félagsdóm.
17. gr. — Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1972.
Um starfskjaranefnd, útreikn-
ing á starfsaldri o.fl.
Á fundi borgarráðs í apríl var eftirfarandi sam-
komulag við Hjúkrunarfélag Islands um starfs-
kjaranefnd, útreikning á starfsaldri o. fl. stað-
fest af borgarráði.
1. Aðilar staðfesta, að eldri samningur um sam-
eiginlega nefnd, starfskjaranefnd, sem fjall-
ar um ýms mál, er upp koma á milli samn-
inga, sé enn í gildi. Um verksvið starfskjara-
nefndar vísast til samnings Reykjavíkurborg-
ar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
um sama efni.
2. Aðilar eru um það sammála að meðan á
hjúkrunarnámi stendur, ávinni hjúkrunar-
nemar sér starfsaldur fyrir þann tíma, sem
þeir fá greidd laun fyrir. Sá tími er nú því
sem næst 2 ár og 8 mánuðir. Túlkun þessi
gildi frá upphafi núgildandi kjarasamnings,
þ. e. 1. janúar 1974. Kaup hjúkrunarkvenna,
sem hafa útskrifast og hafið störf frá þeim
tíma, verður leiðrétt eins fljótt og kostur er.
Gert er ráð fyrir að aðrar hjúkrunarkonur,
sem telja sig eiga rétt á leiðréttingu launa
skv. þessu hafi að því frumkvæði að fá starfs-
aldur endurmetinn, enda komi önnur atriði
varðandi starfsaldur jafnframt til endur-
skoðunar.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar í starfskjara-
nefnd eru nú Jón G. Tómasson og Magnús
Óskarsson en HFÍ mun tilnefna fulltrúa af
sinni hálfu og tilkynna það borgarráði.
3. 1 3. og 8. mgr. 16. gr. kjarasamnings fjár-
málaráðherra og BSRB frá 15. des. 1973, sem
aðilar hafa samið um að gildi hjá Reykja-
víkurborg er heimild til styttingar og niður-
fellingar kaffi- og matartíma. Samkomulag
er um, að heimild þessi verði notuð þannig,
að hjúkrunardeildarstjórar og hjúkrunarkon-
ur á sjúkradeildum (legudeildum og á slysa-
deild) í fullu starfi, sem ekki vinna vakta-
vinnu, fái greiddar 25 mínútur á hverjum
vinnudegi (skylduvinnu) vegna niðurfelling-
ar á kaffi- og matartímum. Þó er þeim heim-
ilt að neyta matar og kaffis við vinnu sína,
ef því verður við komið starfans vegna. Um
endurgjald fyrir unna helgidaga starfsmanna
þessara, skal farið með sama hætti og verið
hefur.
4. Gjalddagi orlofsframlags, sbr. 10. mgr. 18.
gr. samnings ríkisins og BSRB frá 15. des.
1973, breytist og verði 1. ágúst til samræmis
við það sem almennt gildir um starfsmenn
Reykjavíkurborgar, er framlags þessa njóta.
Reykjavík, 14. apríl 1975.
F. h. Reykjavíkurborgar að áskildu
samþykki borgarráðs
Magnús Óskarsson (sign)
Jón G. Tómasson (sign).
F. h. Hjúkrunarfélags íslands
Ingibjörg Helgadóttir (sign)
Nanna Jónasdóttir (sign)
Fjóla Tómasdóttir (sign).
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 93