Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 72
Fjáröflunar- og skemmtinefnd:
Erla Helgadóttir
Svala Jónsdóttir,
Guðrún Eygló Guðmundsdóttir,
Vilborg Helgadóttir,
Stefanía Jóhannsdóttir,
Steinunn Eiríksdóttir.
Jólatrésnefnd:
Ásgerður Tryggvadóttir,
Maríanna Haraldsdóttir,
Dóra Þorgilsdóttir,
Elín Jónsdóttir.
Sumarhúsnefnd Kvennabrekku:
Ása Ásgrímsdóttir,
Ingrún Ingólfsdóttir,
Gerður Jóhannsdóttir,
María Guðmundsdóttir,
Guðrún Þór.
Samþykktir:
Stjórn Reykjavíkurdeildar HFl
lagði eftirfarandi mál fyrir
fundinn:
1. Vegna skorts á hjúkrunar-
konum/mönnum með hjúkr-
unarkennaramenntun eða
aðra framhaldsmenntun, fer
Reykjavíkurdeild HFÍ þess á
leit við fulltrúafundinn að
stofnaður verði sjóður til
styrktar félagsmönnum sem
fara í framhaldsnám. Lagt er
til að tekjur sjóðsins verði
1 % af föstum launum starfs-
manns er launagreiðandi ann-
ist innheimtu á.
Benda má á að núverandi
styrkir til framhaldsmennt-
unar eru lítilfjörlegir og að
auki bundnir óraunhæfum
kvöðum.
Ákveðið var að taka mál
þetta til frekari athugunar.
2. Fulltrúar Reykjavíkurdeild-
ar HFl beina þeirri áskorun
til stjórnar HFl að athugað
verði gaumgæfilega hvaða
kostir og ókostir kunni að
vera samfara úrsögn úr
BSRB og hvort samningsað-
staða okkar, sem sérhæfðrar
starfsstéttar, verði betri eft-
ir úrsögn úr bandalaginu en
að semja með stórum hópi
fólks með ólíka hagsmuni
eins og nú er. Einnig að upp-
lýst verði hve mikið fé HFl
greiði árlega til BSRB.
Áskorun þessari var beint til
stjórnar HFl er mun kanna
málið.
3. Fulltrúar Reykjavíkurdeild-
ar HFl vilja eindregið mæl-
ast til að nú þegar verði kos-
ið nýtt trúnaðarráð og unnið
verði að því að trúnaðar-
mannakerfið starfi sam-
kvæmt reglugerð.
Á fundinum kom fram að
Trúnaðarráð HFl var kosið
á fundi með trúnaðarmönn-
um á skrifstofu HFl, 25. apr.
sl. og er þess nánar getið á
öðrum stað í blaðinu.
4. Vegna aukins rekstrarkostn-
aðar fer stjórn deildarinnar
fram á 7% af greiddum fél-
agsgjöldum í stað 3% áður.
Þessu til stuðnings má benda
á að tekjur deildarinnar fyr-
ir árið 1974 voru kr. 76.330,00
en áætlaður rekstrarkostn-
aður fyrir árið 1975 mun
verða:
Auglýsingar kr. 50.000.00
Leiga f. fundarsali — 20.000.00
Bréfsefni - frímerki — 25.000.00
Fjölritun - ljóspr. — 10.000.00
Risna — 15.000.00
Kr. 120.000.00
Fundurinn samþykkti með til-
liti til stærðar deildarinnar að
hún skyldi hljóta 5% af greidd-
um félagsgjöldum í stað 3% þar
sem formaður deildarinnar Arn-
dís Finnsson sýndi glögglega
fram á að tekjur deildarinnar
hrykkju ekki fyrir því allra
nauðsynlegasta. Form. Reykja-
víkurdeildar bar einnig fram
eftirfarandi ályktun:
Fulltrúar Reykjavíkurdeild-
arinnar mótmæla því harðlega
að aðrir en hjúkrunarkonur/
menn gegni sjálfstæðum hjúkr-
unarstörfum.
Mál þetta hefur verið í at-
hugun hjá stjórn HFl að und-
anförnu.
Fundurinn samþykkti drög að
bréfi til Deildar forstöðukvenna
þar sem þess var vænst að for-
stöðukonur beiti áhrifum sínum
meðal forráðamanna stofnana
gegn því að aðrir en hjúkrun-
arkonur/menn stundi sjálfstæð
h j úkrunarstörf.
Árgjöld til UFl:
(Tillaga um breytingar og leið-
réttingu á samþ. aðalfundar
1974).
Árgjald skal vera 15% af
nóvemberlaunum næsta árs á
undan og miðað við 18. launa-
flokk 3. þrep.
Hjúkrunarkonur í fullu eða
hálfu starfi greiði fullt
gjald,
— í afleysingum og minna en
1/2 starfi greiði % af árgj.
— ekki starfandi greiði % af
árgjaldi,
— við framhaldsnám án launa
greiði ekki árgjald,
— eldri en 60 ára og ekki
starfandi, svo og hjúkrun-
arnemar greiði kr. 800.00,
— búsettar erlendis greiði kr.
1.200.00.
Tölurnar séu hækkaðar eða
lækkaðar þannig að þær hlaupi
á hundraði.
Tillögnr:
Munaðarnesnefnd gerir að
tillögu sinni að sumarhús félags-
ins í Munaðarnesi verði fram-
vegis, allt árið, einungis leigð
félögum HFÍ.
Fulltrúafundur HFl 10. maí
1975 fer þess á leit við stjórn
félagsins að hún, vegna mjög
aukinna starfa félagsins að
kjarasamningum, samanber
samningsréttarlög frá 14. apríl
1973, krefjist endurgreiðslu frá
BSRB, er nemi 25% af iðgjöld-
um félaga í HFÍ.
Hjúkrunarkona fór þess á
leit við stjórn HFl, að þegar
safnað er undirskriftum undir
mótmæli eða aðrar málaleitanir,
riti þeir er undirskrifa heim-
ilisföng sín á eftir nafni. Er
þessu hér með komið á fram-
færi við félaga HFl.
96 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS