Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 75

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 75
\ ámssl 'Vrkur 3M Nursing Fcllowship. Fyrirtækið Minnesota Mining and Mfg. Co., St. Poul Minnesota hefur lagt fram fé til að styrkja hjúkrunarkonur innan vébanda ICN til framhaldsnáms. Um tvo styrki er að ræða, sem veittir eru árlega og nemur hvor að upphæð $6000 dölum. Athygli skal vakin á því að annan styrkinn má nota til náms í heimalandi jafnt sem erlendis og er hann ekki bundinn við nám á háskólastigi. Umsóknir sendist stjórn HFl fyrir 15. sept. nk. IVám í geðlijiikrim. Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að stofna til náms í geðhjúkrun við Nýja hjúkrunarskólann næsta haust. Námstími verður 15 mánuðir sem skiptist í bóklegt nám 5 mánuði og verklegt 9 mánuði og hefst námið 1. október næstkomandi, ef þátttaka verður næg. Inntökuskilyrði eru próf frá viður- kenndum hjúkrunarskóla og æskilegt er að umsækjendur hafi starfsreynslu. Umsóknir skal senda til Nýja hjúkrun- arskólans, Suðurlandsbraut 18, fyrir 25. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri og menntamálaráðuneytið. MenntamáktráðuneytiQ. Námsstyrkur. Alþjóða Rauði krossin hefur auglýst styrk að upphæð 18.000,00 svissn. frönkum fyrir hjúkrunarkonur, til framhaldsnáms eða rannsókna á sviði h j úkrunar. Umsóknarfrestur er til 15. okt. nk. Allar nánari upplýsingar fást á skrif- stofu Rauða kross Islands, sími 26722. Sta rfslieitiff Iij úkrn n arfræði n gur. Laugardaginn 10. maí sl. voru samþykkt á fundi efri deildar Alþingis lög er veita hjúkrunarkonum/mönnum rétt til að nota starfsheitið „hjúkrunar- fræðingur“. Jafnframt er þeim félögum HFÍ, sem þess óska heimilt að nota starfs- heitið hjúkrunarkona/maður. Fulltrúafunilnr SS.V 1075. Fulltrúafundur SSN verður haldinn í Reykjavík 9.—12. september. Aðalviðfangsefnið verður ,,Vinnu- skilyrði hj úkrunarkvenna innan og utan stofnana". Eftirtaldir þættir verða kannaðir: 1. Fyrirkomulag stjórnunar, 2. ábyrgðar- og verkaskipting, 3. starfsmannamál, 4. vinnuvernd, 5. ráðstöfun mannafla og fjármagns. Fjallað verður um efnið í átta nefndum samkvæmt gögnum sem vinnuhópur SSN leggur fram. Á fundinum verður einnig gerð grein fyrir framhaldsstarfi innan „fastanefndar hjúkrunarkvenna/manna í tengslum við Efnahagsbandalagið". Fundurinn fer fram á Hótel Esju. Minsstyrknr Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar, náms- og ferðasjóður HFl. Hjúkrunarkonur, sem fara í framhalds- nám, hafa rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum, en heimilt er að veita árlega upphæð, er svarar til ársvaxta. Styrkupphæð árið 1975 er kr. 43.500.00. Nánari upplýsingar á skrifstofu HFÍ. Umsóknir sendist skrifstofu HFl fyrir 1. ágúst nk. Fulllrúar IIFl á adalfunili: Fundist hefur prjónað ullarsjal í Domus Medica eftir aðalfundinn. Sjalið er geymt á skrifstofu HFÍ. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 99

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.