Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Side 8
Viðtal við fajúkmuarframkvæmdastjóra á Borgarspítala
— Elinborg, hvað finnstþér einkenna
rekstur skurðdeildar og svœfingar-
deildar frá sjúkradeildum?
Á skurðdeild og svæfingardeild eru
stöðuheimildir skipulag og vinnan
öll aðallega miðuð við dagvinnu.
Bakvakt fylgir með.
Borgarspítalinn er mikill „acut“
spítali, þar sem slysadeildin er stað-
sett hér. Sérgreinum fjölgar, lækn-
um fjölgar, en húsnæði skurðdeildar
stækkar lítið. Þetta ásamt fleiru
veldur því, að aðgerðarlisti dagsins
er langur, þannig að dagvinnutímar
duga ekki til. Við þetta bætist að:
1. Oftast vantar hjúkrunarfræð-
inga.
2. Engir til afleysinga vegna samn-
ingsbundinna leyfa.
3. Dagleg veikindaforföll aukast
mjög í hlutfalli við aukið vinnu-
álag.
4. „Vaktin“ vinnur heilu og hálfu
næturnar. En samkvæmt kjara-
samningi á að vera 10 klst. hvíld
áður en næsta vakt hefst.
5. Ör mannaskipti, þess vegna oft
óvant fólk.
6. Ýmsir þættir í starfseminni utan
skurðstofanna, sem verið er að
vinna að, eru ekki komnir í
höfn, en eiga eftir að bæta
starfsaðstöðuna. Allir þessir
þættir geta haft þau áhrif að
ekki er hægt að halda öllum
skurðstofum gangandi. Sem
leiðir til þess, að vinnudagurinn
lengist.
— Hvernig hefur gengið að manna
skurðdeild og svæfingardeild?
Svæfingardeildin hefur verið vel
mönnuð undanfarið, af sérmennt-
uðum svæfingahjúkrunarfræðing-
um.
Á skurðdeildinni hafa verið miklir
erfiðleikar síðastliðið ár. Sumarið
var afar slæmt, þar sem vantaði
í margar stöður og lítið var um af-
leysingar vegna sumarleyfa. Ekkert
nám var í gangi í skurðhjúkrun.
Elínborg Ingólfsdóttir hefur
nokkur undanfarin ár starfað
sem hjúkrunarframkvœmda-
stjóri við Borgarspítalann.
Hennar starfssvið er:
Skurðlœkningadeildir A-3,
A-4, A-5, hver deild hefur 32
rúm.
Gjörgæsludeild og vöknun
með 12 rúmum.
Sótthreinsunardeild, Svœfing-
ardeild.
Skurðdeild, en þar eru 6
skurðstofur.
Við lögðum fyrir hana
nokkrar spurningar.
Þannig að sérmenntaðir hjúkrunar-
fræðingar voru ekki í sjónmáli.
Réðum við hjúkrunarfræðinga án
sérmenntunar. Þá fórum við út fyrir
landsteinana og auglýstum í Dan-
mörku og Noregi eftir hjúkrunar-
fræðingum á Borgarspítalánn.
Meðal þeirra sem réðu sig þaðan
komu 3 hjúkr.fr. á skurðdeildina,
með mismikla reynslu og nám í
skurðhjúkrun. Einnig var ákveðið
eftir umræður við hjúkrunarfræð-
inga á deildinni og í „skurðstofu-
nefnd“ að ráða sjúkraliða á fastar
dagvaktir til reynslu, til þess að
sinna ákveðnum og nokkuð af-
mörkuðum verkum. í sambandi við
ráðningu þessara hjúkrunarfræð-
inga og sjúkraliða þá hefur það
bjargað starfsemi skurðdeildarinn-
ar, en það hefur líka verið gífurlegt
álag á þá fáu hjúkrunarfræðinga
sem fyrir voru, að leiðbeina og
koma nýju fólki inn í störfin. Allir
hafa lagst á eitt um að gera sitt
besta, bæði nýir starfsmenn og
hjúkrunarlið og læknar sem fyrir
voru.
- Hvernig er háttað fræðslustarf-
seminni á skurðdeildinni?
6 HJÚKRUN '-Jyfa - 61. árgangur