Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Síða 35
til að hvetja norræna hjúkrunarfræðinga
til vísindastarfa. í íslenska
i'ilrýnahópnum eru nú Christel Beck,
Hólmfríður Gunnarsdóttir, dr. Helga
Jónsdóttir, dr. Kristín Björnsdóttir,
Herdís Sveinsdóttir, Guðrún
Kristjánsdóttir, Margrét Gústafsdóttir og
Sigríður Halldórsdóttir.
Launa- og kjarabarátta
Samræming og endurbætur í launa- og
kjaramálum hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum var eitt af markmiðum
SSN við stofnunina árið 1920. Leiðin að
því niarki hefur ekki verið greið og
markast af togstreitu á milli hugmynda
um köllunina annars vegar og
stéttabaráttu hins vegar. Þessi togstreita
setur enn mark sitt á launabaráttu
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum.
Fyrir síðari heimsstyrjöld var mest
lagt upp úr því að fá vinnutíma
hjúkrunarfræðinga styttan. Húsnæðismál
hjúkrunarfræðinga og brottfall þeirra úr
starfi vegna hjúskapar, þegar
hjúkrunarfræðinga skorti tilfinnanlega til
starfa, voru málefni sem einnig voru
ofarlega á baugi.
Á eftirstríðsárunum hefur baráttan
snúist um kaup, ráðningarkjör og
vinnuaðstæður hjúkrunarfræðinga. Eftir
núkla vinnu og athuganir er niðurstaðan
enn sú að hjúkrunarstarfið sem hefð-
bundið kvennastarf sé ekki launað í
samræmi við hefðbundin karlastörf með
sambærilegar kröfur til menntunar,
ábyrgðar og fæmi.
Samstarf á alþjóðavettvangi
Það hefur verið einkennandi fyrir SSN að
í alþjóðlegri samvinnu hafa norrænir
hjúkrunarfræðingar alltaf sameinasl í
baráttu fyrir framgangi hjúkmnar.
Framan af var orkunni fyrst og fremst
beint í málefni varðandi Norðurlönd.
Síðar þegar farið var að ræða um
sameiningu Evrópu breyttust áherslurnar
og þar kom að á áttunda áratugnum voru
haldnir árlegir fundir með fulltrúum frá
SSN, Alþjóðasambandi hjúkmnar-
fræðinga (Intemational Council of
Nurses — ICN) og Evrópudeild
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Þá tók SSN þátt í Vinnuhópi evrópskra
hjúkrunarrannsakenda (Workgroup of
European Nurse Researchers - WENR).
SSN hefur áheyrnaraðild að
fastanefnd um málefni hjúkrunar innan
ESB (Pemianent Committee of Nurses -
PCN). Sænskir, danskir og finnskir
hjúkrunarfræðingar eiga þar beina aðild
en ísland og Noregur óbeina aðild
gegnum SSN. Segja má því að SSN sé
gluggi íslenskra hjúkrunarfræðinga út að
því sem er að gerast á vegum
Evrópusamstarfsins. Þá á SSN
áheymaraðild að Norðurlandaráði og
Norrænu ráðherranefndinni.
Á seinni árum, þegar flestum
markmiðunum, sem brautryðjendur SSN
settu sér árið 1920, liefur verið náð,
hefur hlutverk SSN breyst í það að vera
vettvangur þar sem fram fer umræða og
samhæfing skoðana og verkefna í
alþjóðlegu samstarfi. Þetta
endurspeglaðist í þeirri breytingu sem
gerð var á starfseminni árið 1989 og sem
gerði SSN fyrst og fremst að stjómtæki
sem getur bmgðist skjótt við stefnum og
straumum í stjómmálum og haft
frumkvæði að og stýrt nýjum verkefnum.
Stuðst við útdrátt Nete Baslev Wingender úr
bókinni „Fem svaner f flok“, sem birtist í Várd i
Norden í sept. 1995, og erindi Ástu Möller sem
flutt var í Málstofu í hjúkrunarfræði vorið 1995.
Þ.R.
STYRKUR FRÁ SSN
/ tilefni af 75 dra afmœli SSN í
september 1995 samþykkti stjórn SSN að
veita styrk að upphœð 50.000 DKK
(591.000 ISK) til norrœns
gœðatryggingarverkefnis þar sem a.m.k.
tvö Norðurlönd koma við sögu.
Verkefni, sem þegar eru hafin, koma til
greina. Umsœkjendur verða að vera
félagar í einu af aðildarfélögum SSN.
Nánari upplýsingar fást
hjá skrifstofu SSN eða skrifstofu Félags
íslenskra hjúkrunarfrœðinga.
Umsóknarfrestur er til
15. janúar 1996.
Umsókn sendist til:
SSN sekretariat
Postboks 2681 St. Hansliaugen
N -0131 Oslo
Norge
Myndsími: + 47 22 38 02 30
Flokkur
fimm svana
Fem svaner
i flok
í tilefni af 75 ára afmæli Samvinnu
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum
(SSN) hefur 216 síðna bók um sögu þess
verið gefin út. Titill bókarinnar Fem
svaner i flok - Sygeplejerskers
Samarbejde i Norden 1920 - 1995 vísar
til merkis SSN sem er fimm svanir á
flugi.
Höfundur bókarinnar, Nete Balslev
Wingender, hefur meistarapróf í dönsku
og sögu og doktorsgráðu í uppeldi
andlega fatlaðra bama. Hún hefur
starfað við rannsóknir hjá danska
kennaraháskólanum og
Kaupmannahafnarháskóla. Auk
doktorsritgerðar sinnar hefur hún birt
sagnfræðilegar greinar um fatlaða,
bækur um uppeldi danskra stúlkna á 19.
öld og um aðbúnað aldraðra í Danmörku.
Nete Baslev Wingender þakkar
ómetanlega hjálp tengiliða í hverju
landanna fimm sem útveguðu
upplýsingar og leiddu hana um
skjalasöfn félaganna. Tengiliðir
landanna vom Sigþrúður
Ingimundardóttir frá íslandi, Esther
Petersen frá Danmörku, Toini
Nousiainen fá Finnlandi, Gunvor Instebp
frá Noregi og Rigmor Wendt frá Svíþjóð.
Auk þess tóku María Pétursdóttir,
Svanlaug Árnadóttir og Sigurlín
Gunnarsdóttir auk Sigþrúðar á móti
höfundinum, aðstoðuðu við heimildaleit
og veittu upplýsingar um þátt íslands í
sögunni.
Nete Balslev Wingender hefur nú
verið ráðin til að skrifa sögu danska
hjúkrunarfélagsins fyrir 100 ára afmæli
þess sem verður árið 1999.
Bókin Fem svaner i flok er til sölu
hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
og kostar 1765 kr.
TÍMARIT HJÚKnUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995