Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Page 61
Hjúkrunanvönur
Vissir þú að Lyfjaverslun Islands hefur fjölbreytt úrval af hjúkrunarvörum?
Eigum yfir 500 vörunúmer á lager. Lyfjaverslun íslands, vörugæði og lágt verð í þágu okkar allra.
LYFJAVERSLUN ÍSLANDS H F.
Frá Landlæknisembættinu
IDONOR
Landlæknisembættið hefur gefið út
líffæragjafakort og bækling þar sem
landsmenn eru hvattir til að taka afstöðu
til líffæragjafar.
í bæklingnum eru hagnýtar
upplýsingar fyrir þá sem hafa áhuga á að
kynna sér líffæragjöf. Þar er m.a. greint
frá ákvörðun dauða, hverjir geti gefið
líffæri og hverjir og hve margir þarfnist
líffæragjafar.
Bæklingurinn var gefinn út í
10.000 eintökum og hefur þeim verið
dreift á sjúkrahús og heilsugæslu-
stöðvar, í apótek og háskólastofnanir.
Hver bæklingur inniheldur 3 líffæra-
gjafakort, þannig að 30.000 kort eru í
umferð. Á kortin getur fólk skráð hvort
það heimilar að nothæf líffæri þess séu
nýtt að þeim látnum eða ekki. Kortin
breyta því ekki að leita verður leyfís
fjölskyldu látins manns fyrir líffæragjöf.
Þau geta hins vegar reynst hjálpleg fyrir
aðstandendur því að það auðveldar þeim
að taka afstöðu til spurninga um
Jíffæragjöf að þekkja hug hins látna.
STYRKUR
HANS ADOLFS HJARTARSONAR
Styrkur úr Minningarsjóði Hans Adolfs
Hjartarsonar, náms- og ferðasjóði
hjúkrunarfræðinga, var auglýstur í
Fréttablaði hjúkmnarfræðinga 1. tbl. 2.
árg. í febrúar sl. Upphæð styrksins er
150.000 kr.
Hans Adolf Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri, lést í janúar 1951.
Minningarsjóður hans var stofnaður af
ættingjum hans og bekkjarsystkinum til
að styrkja hjúkmnarfræðinga í
framhaldsnámi. Var það samkvæmt ósk
hins látna og þess jafnframt getið að
hann hefði borið þakklæti í huga fyrir
góða hjúkmn á Landspítalanum.
Alls bámst 7 umsóknir og af þeim
vom 5 metnar styrkhæfar.
Stjórn sjóðsins ákvað á fundi sfnum
í júlí sl. að veita eftirtalda styrki:
Marga Thome: Styrkur að upphæð
120.000 kr. til að ljúka doktorsnámi í
hjúkmnarfræði við Edinborgar-
háskóla.
Sigrún G. Gísladóttir: Styrkur að upphæð
30.000 kr. vegna náms til meistara-
prófs í stjórnun, skipulagningu
heilbrigðisþjónustu og stefnumörkun
heilbrigðismála við Naffield Institute
for Health í Bretlandi.
ÞR
Ásla Möller afhendir Mörgu
Thome styrkinn. Sigrún G.
Gísladóttir var jjarverandi.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995 165