Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 17
Fountain house klúbba sem starfræktir eru erlendis. Starf-
semi klúbbanna miðar að því sjúklingarnr séu virkir með-
limir og sjái um rekstur klúbbanna sjáltir.
Breytingarnar þurfa ekki að auka lífsgæði fólks en geta
gert það. Á Ítalíu hafa yfirvöld gengið svo langt að um sl.
áramót átti að Ijúka við að ioka geðdeildum endanlega,
geðsjúkir sem þurfa innlögn á sjúkrahús fara á almennar
deildir, en eru þar fyrir utan meðhöndlaðir á göngudeildum
og í heimahjúkrun, eru með sínar félagsmiðstöðvar og svo
framvegis. í Noregi hefur rúmum á geðdeildum, sérstak-
lega móttökudeildum, fækkað mjög síðast liðin ár. Þjón-
ustan hefur færst til sveitarfélaganna sem hafa mismun-
andi forsendur til að veita hana. Eftir að geðsjúkir hafa fram-
ið morð hvað eftir annað undanfarnar vikur hafa stjórnvöld
lofað að auka fján/eitingar til bráðamóttökugeðdeilda. Þarna
hefur verið gengið mjög langt og sú reynsla er um margt
lærdómsrík fyrir okkur.
Hér á landi hefur opinber umræða ekki verið áberandi í
þessum málaflokki en starfið kringum 10. október, sem er
alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur, hefur meðal annars skilað
þeim árangri að nú er unnið að stefnumótun í geðheil-
brigðismálum á vegum heilbrigðis-og tryggingaráðuneytis
og eiga tveir geðhjúkrunarfræðingar sæti í nefndinni. Við
uppbyggingu þjónustunnar er mikilvægt að hjúkrunarfræð-
ingar séu með í að móta og byggja upp úrræði og stuðning.
Út á landi er líka mikil þörf fyrir geðhjúkrun, eftir sem áður
munu þeir sem veikjast alvarlega þurfa að sækja þjónustu
til þéttbýlisins, en fyrirbygging, endurhæfing, stuðningur
og fræðsla getur og á að fara fram þar sem hennar er
þörf. Með tilliti til að starfsemin lagist að þörfum notenda
og á þeirra forsendum er jákvætt að frjáls félagasamtök
reki athvörf ýmiss konar.
Stefna félagsins
Af stefnu og siðareglum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
er auðséð að stefnan er tekin á heilsugæslu og að sálfé-
lagsleg þjónusta utan hefðbundna stofnana fær mikið vægi.
Þegar ég las stefnu þess í fyrsta sinn gladdi það mitt geð-
hjúkrunarhjarta því mér finnst það samrýmast svo mjög
hugmyndafræði minni og hugmyndum um starfsvettvang
geðhjúkrunarfræðinga. Fyrsta flokks geðhjúkrun á eftir sem
áður að veita á geðdeildum þar sem bráðveikir liggja, en geð-
hjúkrun, og þar með geðvernd, á að veita á heilsugæslu-
stöðvum, í heimahjúkrun, sérstökum geðteymum, við félags-
miðstöðvar og athvörf. Samhæfingarþátturinn er mikilvægur
og þjónustan á að vera sveigjanleg og fylgja þörfum íbúanna.
Það er von mín að þessi stefna félagsins verði geð-
hjúkrun til framdráttar. Huga þarf að menntunarmálum í því
samhengi og það þarf að nýta þekkingu og yfirsýn þeirra
sem við geðhjúkrun starfa. Þannig getum víð lagt okkar af
mörkum til réttlátrar uppbyggingar stuðningsþjónustu fyrir
geðsjúka og fyrirbyggt og gripið fljótt inn í aðstæður sem
gætu valdið sársauka og þjáningu í marga ættliði.
í málefnum geðsjúkra
Ingibjörg Þálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, skipaði með bréfi dagsettu 20. febrúar 1997,
starfshóp til að vinna að stefnumótun í málefnum geð-
sjúkra á íslandi. Starfshópnum er ætlað að leggja fram
tillögur til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um áhersl-
ur í geðheilbrigðisþjónustunni á komandi árum. Áætlað
er að hópurinn skili af sér skýrslu með stefnumótunar-
tillögum ávordögum 1998.
Starfshópinn skipa:
Tómas Zoéga, geðlæknir, frá geðdeild Landspítala, for-
maður starfshópsins
Eydís Sveinbjarnardóttir, geðhjúkrunarfræðingur MS,
frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Guðný Anna Arnþórsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur MS,
frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Halldóra Ólafsdóttir, geðlæknir, frá Geðlæknafélagi ís-
lands
Hrefna Ólafsdóttir, félagsráðgjafi, frá Stéttarfélagi íslenskra
félagsráðgjafa
Margrét Margeirsdóttir, félagsráðgjafi, frá félagsmála-
ráðuneyti
Oddi Erlingsson, sálfræðingur, frá Sálfræðingafélagi ís-
lands
Ólafur Guðmundsson, geðlæknir, frá barna- og unglinga-
geðlæknafélaginu
Þétur Hauksson, geðlæknir, frá Geðhjálp
Sigmundur Sigfússon, geðlæknir, frá Landlæknisem-
bættinu
Vilmar Redersen, fulltrúi aðstandenda
Starfsmaður hópsins er Jón Sæmundur Sigurjónsson,
deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu.
Hópurinn hefur fundað reglulega og haft samband við
fjölda einstaklinga og stofnana um land allt, varðandi
upplýsingar um málefni geðsjúkra. Úr miklu er að
moða, þar eð málaflokkurinn er mjög umfangsmikill. í
vinnslu er viðamikil skýrsla og álitsgerð sem áætlað er
að birtist á vordögum.
Geðhjúkrunarfræðingar í hópnum hvetja alla hjúkr-
unarfræðinga sem áhuga hafa á geðhjúkrun til að fylgj-
ast vel með útkomu skýrslunnar og kynna sér efni
hennar. Allar ábendingar og tillögur eru að sjálfsögðu
vel þegnar.
Guðný Anna og Eydís
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998
97