Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Síða 45
Helstu verkefni
frá janúar 1998
• 80 ár verða liðin frá stofnun Félags
íslenskra hjúkrunarkvenna árið 1999.
Undirbúningur hafinn að afmælis-
dagskrá.
• Stefna félagsins varðandi óhefð-
bundna meðferð í hjúkrun rædd.
Rætt um að taka upp þessa um-
ræðu á hjúkrunarþingi félagsins 13.
nóvember nk.
• Félagsráðsfundur var haldinn 6.
febrúar sl. Þar var rædd áframhald-
andi vinna að stefnumótun félagsins
í hjúkrunar-og heilbrigðismálum.
Næsti félagsráðsfundur verður hald-
inn 15. maí nk. og munu þá fag- og
svæðisdeildir leggja fram sínar hug-
myndir.
• Stuðningur félagsins við hjúkrunar-
fræðinga sem eiga í vímuefnavanda
ræddur. Skipaður vinnuhópur til að
ræða þessi mál frekar.
• Stjórn félagsins samþykkti að félagið
gerðist aðili að Evrópusamtökum
hjúkrunarfræðinga (PCN).
• Ákveðið hefur verið að láta endur-
gera hjúkrunarheit sem nýútskrifaðir
hjúkrunarfræðingar skrifa undir.
• Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mun
halda WENR ráðstefnu árið 2000.
Undirbúningshópur skipaður af stjórn
félagsins hefur þegar hafið störf.
• Formenn Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga og Læknafélags íslands
hafa hist og rætt um aukna sam-
vinnu. Formennirnir skrifuðu sam-
eiginlega grein í Morgunblaðið sem
birtist laugardaginn 21. mars sl.
• Ákveðið hefur verið að halda hér á
landi opna ráðstefnu um stjórnun á
vegum SSN í febrúar á næsta ári.
• Umsagnir um eftirfarandi frumvörp
hafa verið unnin í stjórn félagsins:
1. Frumvarp til laga um þjónustu-
gjöld.
2. Frumvarp til laga um fæðingar-
orlof.
3. Þingsályktunartillaga um réttar-
stöðu íbúa á hjúkrunar- og dval-
arheimilum.
4. Frumvarp til laga um áfengis-og
vímuefnaráð.
5. Frumvarp til laga um gagnagrunn
á heilbrigðissviði.
• Eftirfarandi nefndir eru að störfum
fyrir félagið:
1. Nefnd starfar að stefnumótun í
heilsugæslu í samvinnu við heil-
brigðisráðuneytið.
2. Nefnd um stefnumótun í mennt-
unarmálum hjúkrunarfræðinga.
3. Nefnd um framtíðarskipan sjúkra-
húsmála í Reykjavík hefur lokið
störfum sjá bls. 121.
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍ KU R
Hjúkrun
Þekking í þína þágu
Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur eru lausar stöður á hjúkrunarsviði. Boðið er upp á margvísleg
spennandi atvinnutækifæri fyrir metnaðargjarna og glaðlynda hjúkrunarfræðinga. Sjúkra-
hús Reykjavíkur er fjölbreyttur vinnustaður þar sem hjúkrunarfræðingum gefst tækifæri
til að þjálfa huga og hönd í hinum fjölmörgu sérgreinum hjúkrunar. Mörg tækifæri gefast
til símenntunar og þátttöku í rannsóknarvinnu. Við leggjum áherslu á vinsamlegt og
faglegt starfsumhverfi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín.
Kjörár
Tilgangur kjörárs er að veita nýjum hjúkrunarfræðingum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mark-
vissa aðlögun og faglegan stuðning á nýjum vinnustað. Þeir hjúkrunarfræðingar sem skrá
sig á kjörár starfa í 1 ár í 80-100% starfi, velja tvær valdeildir (5,5 mán. x 2) og eina sérdeild
í 2 vikur. Markviss aðlögun, fyrirlestrar og lesdagar er hluti af dagskrá kjörárs. Boðið er upp
á reglubundna fundi með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Slysa- og bráðasvið
Deildir slysa- og bráðasviðs sinna mörgum spennandi og krefjandi verkefnum. Má þar nefna
móttöku og hjúkrun bráðveikra og slasaöra, forgangsröðun, símaráðgjöf, áfallahjálp og
hjúkrun þolenda kynferðisofbeldis. Göngudeild G-3 sinnir eftirliti og ráðgjöf.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
525-1705 eða deildarstjórar í síma 525-1000.
Öldrunarsvið
Deildir öldrunarsviðs eru flestar staðsettar á Landakoti en ein legudeild er í Fossvogi.
Starfsemin er mjög fjölbreytt. Unnið er í teymisvinnu aö því að finna bestu meðferðar-
úrræði fyrir hvern einstakling og fjölskyldu hans.
Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
525-1888 eða deildarstjórar í síma 525-1800.
Lyflækninga- og endurhæfingasvið
Á lyflækningasviði eru almennar og sérhæfðar lyflækningadeildir með mjög fjölbreytt verk-
efni. Þar er einnig barnadeild sem leggur áherslu á heildstæða þjónustu við börn og fjöl-
skyldur þeirra. Á Grensásdeild eru sjúklingar með ýmsa taugasjúkdóma og verkjavandamál
ásamt sjúklingum sem þarfnast umfangsmikillar endurhæfingar vegna sjúkdóma eða slysa.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
525-1555 eða deildarstjórar í síma 525-1000.
Skurðlækningasvið
Á skurðlækningasviði eru legudeildir fyrir aðgerðasjúklinga, skurðstofur, svæfingadeild,
gjörgæsludeild, sótthreinsunardeild, göngudeild og dagdeild. Dæmi um aögerðir sem
gerðar eru á sjúkrahúsinu eru heila- og taugaaðgerðir, háls-, nef og eyrnaaðgerðir, brjóst-
hols- og kviðarholsaðgerðir, bæklunaraðgerðir og aðgerðir á þvagfærum. Tækifæri til
aukinnar þekkingar og þjálfunar eru því fjölmörg og spennandi.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
525-1305 eða deildarstjórar í síma 525-1000.
Geðsvið
Á geðsviði er rekin þjónusta við bráðveika og langveika geðfatlaða. Þjónustan er á formi
innlagna, dagvistunar, hópvinnu og endurhæfingar. Þar gefst því tækifæri til aö kynna sér
mörg mismunandi meðferðarform á flóknum og krefjandi viðfangsefnum.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 525-1505 eða deiIdarstjórar í síma 525-1000.
Verið velkomin að leita upplýsinga á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í Fossvogi í síma
525-1221 eða beint hjá viðkomandi hjúkrunarframkvæmdastjóra eða deildarstjóra.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða
karlastörf og hvetja það kynið, sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein, til að sækja um.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998
125