Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Side 53
að 26 klst. á tveimur dögum í röð ef annar dagurinn er frídagur.
Þessi regla er til að tryggja að starfsmaður sem kallaður er út til
vinnu á frídegi þurfi ekki að vinna lengur en 16 klst. samfellt.
Dæmi: Starfsmaður er kallaður út til vinnu kl. 19 á frídegi eftir 11
klst. hvíld á þeim degi, vinnur samfellt til kl. 8 að morgni næsta
dags og ætti þá vinnuskyldu fram til kl. 16. Þá væri vinnulotan hins
vegar orðin 21 klst. Skv. þessari reglu myndi hann hætta vinnu kl.
11 á morgni án skerðingar á reglubundnum launum og álagi.
Vinna umfram 16 klst.
Hafi starfsmaður unnið samtals meira en 16 klst. á einum sólarhring
þ.e. á hverjum 24 klst. miðað við skipulag/venjubundið upphaf vinnu-
dags starfsmanns án þess að ná 8 klst. samfelldri hvíld, skal starfs-
maður undantekningarlaust fá 11 klst. samfellda hvOd án frádráttar á
dagvinnulaunum og álagi að lokinni vinnu. Frítökuréttur, 11/2 klst.
(dagvinna) safnast upp fýrir hverja klst. sem unnin var umfram 16 klst.
(sbr. gr. 2.4.2.2 í kjarasamningi félagsins).
Dæmi: Starfsmaður byrjar reglubundna vinnu kl. 8 að morgni
og vinnur þá samtals í 18 klst. vegna forfalla annarra starfs-
manna eða til kl. 2 að nóttu. Hann átti að mæta til reglubund-
innar vinnu kl. 8 að morgni næsta dags. Þessi starfsmaður á
undantekningarlaust að fá 11 klst. samfellda hvíld að lokinni
vinnu án frádráttar á dagvinnulaunum og álagi og honum ber
því ekki að mæta til vinnu fyrr en kl. 13 næsta dag. Auk þess á
hann frítökurétt sem nemur 2»1 '/2 klst=3 klst.
Samfelld hvíld rofin með útkalli
Ef hvíld er rofin einu sinni eða oftar innan 24 klst. tímabils m.v.
skipulag/ venjubundið upphaf vinnudags starfsmanns, skal bæta það
sem upp á vantar að 11 klst. hvíld náist miðað við lengsta hlé innan
vinnulotu, með frítökurétti, 1V2 klst. fyrir hverja klst. (sbr. gr. 2.4.2.3 í
kjarasamningi félagsins).
Dæmi: Starfsmaður er á gæsluvakt frá kl. 8 á laugardegi til kl. 8
á sunnudegi. Hann er kallaður út í vinnu frá kl. 12-16 og síðan
aftur kl. 22-3. Hann náði því ekki 11 klst. samfelldri hvíld á
þessum 24 klst. Lengsta hlé innan vinnulotunnar hér er milli kl.
16-22 eða 6 klst. Hann á því frítökurétt fyrir 11-6 klst. sem
nemur 5x1 '/2 klst=7,5 klst.
Aukinn frítökuréttur vegna samfelldrar
vinnu umfram 24 klst.
í þeim sérstöku tilvikum sem starfsmaður vinnur samfellt fullar 24
stundir skal frítökuréttur aukast þannig að hver heil stund um-
fram 24 veiti frítökurétt sem er 1,8% lengri en sá frítökuréttur
sem næsta stund á undan gaf (sbr. gr. 2.4.2.4 í kjarasamningi
félagsins). Sem dæmi um þetta má nefna að starfsmaður sem
vinnur samfellt í 36 klst. hefur áunnið sér frítökurétt sem nemur
37,2 klst, og starfsmaður sem vinnur í 48 klst. samfellt ávinnur
sér frítökurétt sem nemur 73,7 klst.
Þessi regla er sjálfstæð í þeim skilningi að hún tengist ekki
meginreglunni um daglegan hvíldartíma heldur er henni ætlað að
sporna gegn óhóflegu vinnuálagi.
Hliðrun skipulegs/venjubundins
upphafs vinnudags vegna útkalls
í þeim sérstöku tilvikum sem starfsmaður, sem náð hefur a.m.k. 10
klst. samfelldri hvíld, er kallaður til vinnu á tímabilinu 2-6 næst á
undan skipulögðum/venjubundnum vinnudegi starfsmanns, er
heimilt, verði því við komið starfsins vegna, að hliðra upphafi vinnu-
dagsins um jafnmargar klst. og hvíld hans skertist á þessu timabili.
(sbr. gr. 2.4.2.5. í kjarasamningi félagsins).
Þessi regla er til að auka hvíld starfsmanna sem kallaðir eru til
óreglubundinnar vinnu nóttina á undan upphafi venjubundins
vinnudags.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998
Vikulegur hvíldardagur
Almennir frídagar eru laugardagar og sunnudagar samkvæmt kjara-
samningum. Vaktavinnumenn hafa samsvarandi 2 frídaga í hverri
viku skv. kjarasamningi. Annar þessara frídaga (að öllu jöfnu sunnu-
dagur hjá dagvinnumönnum) telst vikulegur hvödardagur skv. 5.
grein vinnutímasamningsins. Það er óheimilt að kalla starfsmann til
yfirvinnu á þeim degi og einnig skal tryggt að starfsmaður fái 11
klst. hvíld fyrir upphaf hvödardagsins. Þetta ákvæði er til að tryggja
starfsmönnum að lágmarki einn frídag í hverri viku.
Frestun vikulegs hvíldardags
Stofnun má með samkomulagi við starfsmann fresta vikulegum
hvödardegi þar sem sérstakar ástæður gera slík frávik nauðsyn-
leg, þannig að í stað vikulegs hvödardags komi tveir samfelldir
hvíldardagar á hverjum tveimur vikum. Ef þörf er á að skipuleggja
vinnu þannig að vikulegum hvödardegi sé frestað skal haga töku
hvödardaga þannig að teknir séu tveir hvíldardagar saman.
Vinna á undan hvíldardegi:
Tryggja skal 11 klst. hvíld á undan hvíldardegi
Vinni starfsmaður skv. ákvörðun yfirmanns það lengi á undan
hvíldardegi að ekki náist 11 klst. hvíld miðað við venjubundið
upphaf vinnudags, skal starfsmaður mæta samsvarandi síðar við
upphaf næsta reglubundna vinnudags, án skerðingar á dag-
vinnulaunum og álagi, ella safnast upp frítökuréttur, 11/2 klst. í
dagvinnu fyrir hverja klukkustund sem hvödin skerðist.
Þessi regla er til að tryggja það að starfsmenn fái a.m.k. einn
frídag í hverri viku með undangenginni hvöd þannig að frítíminn
verði að lágmarki 11 +24=35 klst. langur.
Dæmi: Hvíldardagur er sunnudagur. Á laugardegi er starfsmaður
kallaður til vinnu frá kl. 19-24. Hann nær því ekki 11 klst. sam-
felldri hvöd fyrir kl. 08 á sunnudagsmorgni (einungis 8 klst.).
Hann á því ekki að mæta til vinnu á mánudegi fyrr en kl. 11
(þremur klst. síðar en ella) eða hann öðlast frítökurétt sem
nemur 3»1 '/2=4V2 klst.
Frítaka - Yfirlit og frítaka
Uppsafnaður frítökuréttur skal koma fram á launaseðli og skal hann
veittur í heilum og hálfum dögum í samráði við starfsmann, enda sé
uppsafnaður frítökuréttur a.m.k. flórar klst. Frítöku skal lokið eigi
síðar en hálfu ári eftir lok almanaksárs sem ávinnsla fór fram.
Starfslok
Við starfslok skal áunnið ótekið frí reiknað sem hlutfall af mánað-
arlaunum og greitt út. Einnig má semja um töku frísins á upp-
sagnarfresti ef hægt er að koma því við vegna starfsemi stofn-
unarinnar.
Veikindi við frítöku
Ef starfsmaður veikist við frítöku gilda sömu reglur og um veikindi
í orlofi, þ.e.a.s. frítökurétturinn geymist til seinni tíma. Nauð-
synlegt er að tilkynna veikindin eins fljótt og mögulegt er og
staðfesta þau síðan með læknisvottorði.
Greiðsla frítökuréttar
Heimilt er að greiða starfsmanni út (í dagvinnu) það hlutfall af
frítökurétti sem er umfram hverja klst. sem verið er að bæta, þ.e.
V2 klst. af 1 V2 klst.
Fyrning
Frítökuréttur fyrnist ekki.
133