Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Side 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Side 15
Eggjaleiðurum er lokað með klemmum, eða klipptir í sundur. Kemur í veg fyrir að egg frjóvgist og fari niður í leg. Sáðrásir eru teknar í sundur, sáðfrumur komast því ekki í sáðvökva. endurtengingu eru barnsmissir, nýr maki (Kim o.fl. 1997), ungur aldur, þegar aðgerðin er framkvæmd, og aðgerðin gerð í keisaraskurði eða í sængurlegu (Dubuisson, o.fl., 1995). Konur sem fara yngri en 30 ára í aðgerð eru 4,6 sinnum líklegri til að sjá eftir því heldur en eldri konur (Chi og Jones, 1994). Ekki er talið æskilegt að konur fari í ófrjósemisaðgerð strax eftir fæðingu þar sem þær eru að takast á við nýtt og krefjandi hlutverk og eru viðkvæmar á líkama og sál. Einnig getur eitthvað farið úrskeiðis í fæðingunni eða barnið verið veikt sem getur breytt afstöðu hjóna til ófrjósemisaðgerðar (Karl Ólafsson, munnleg heimild, 19. nóvember 1996; Ragnheiður Bjarnadóttir, æunnleg heimild, 20. nóvember 1996). Skandinavískar rannsóknir á upplifun karla á ófrjósemisaðgerð sýna að helstu áhættuþættir eftirsjár meðal karla eru ungur aldur og nýr maki (Ehn og Liljestrand, 1995). Aukin hætta er á eftirsjá meðal einstaklinga sem fara í ófrjósemisaðgerð vegna utanaðkomandi þrýstings og því er mikilvægt að þeir taki ákvörðunina sjálfir (Chi og Jones, 1994). Hér á landi eru framkvæmdar um tíu endurtengingar á konum árlega (Ársskýrsla Ríkisspítala, 1991, 1992, 1993, 1994). Rannsóknarniðurstöður hafa gefið til kynna að 57- 90% kvenna verði barnshafandi eftir endurtengingu (Wilson, 1996; Dubuisson o.fl., 1995). Áhrifaþættir virðast meðal annars vera lengd eggjaleiðara þegar endurtenging er framkvæmd og hvort eggjaleiðarar voru klemmdir í aðgerðinni. Minni vefjaskemmdir virðast vera af notkun klemma (Dubuisson o.fl., 1995). Árangur er einnig umtals- verður hjá körlum sem fara í endurtengingu en allt að 97% karla geta orðið frjóir að nýju, 76% þeirra eignast barn ef endurtenging er framkvæmd innan þriggja ára frá ófrjósemisaðgerð. Árangurinn er þó minni ef lengri tími líður frá aðgerð (Wilson, 1996). Þættir sem hafa áhrif á ákvörðunartöku Þeir þættir, sem skipta máli við ákvörðunartöku á vali getnaðarvarna, eru gott samband og samstaða hjóna. Talið er að hjá hjónum, sem kjósa að karlinn fari í ófrjósemisaðgerð, ríki meira jafnrétti meðal kynjanna. Ábyrgð á getnaðarvörnum hefur hvílt á konum og bendir allt til þess að ákvörðunin sé henni mikilvægari. Karlar, sem velja að fara í ófrjósemisaðgerð, eru betur upplýstir, hafa ávallt tekið þátt í ákvörðunartöku um getnaðarvarnir og þekkja gjarnan einhvern karl sem hefur farið í slíka aðgerð (Miller, Shain og Pasta, 1991). í þeim þjóðfélögum, þar sem ófrjósemisaðgerðir á körlum eru sjaldgæfar, eru ýmsar ranghugmyndir í gangi, eins og ótti við að náttúran og karlmennskan glatist (Ringheim, 1993). Rannsóknir hafa sýnt að meirihluti fólks sem fer í ófrjósemisaðgerð þekkir einhvern sem hefur farið í slíka aðgerð. Það virðist skipta hjón máli við val á ófrjósemis- aðgerð að vita um einhvern sem hefur farið í sams konar aðgerð og upplifun þeirra. Samt sem áður hefur þessi þáttur ekki úrslitaáhrif á ákvörðunina (Ringheim, 1993). Mikilvægt er að hjón, sem eru að íhuga ófrjósemis- aðgerð, fái bæði ráðgjöf og æskilegt er að benda á aðrar getnaðarvarnir (Neuhaus og Bolte, 1995). Athyglisvert er að hér á landi kemur sá aðili, sem ætlar í ófrjósemis- aðgerð, ævinlega einn í ráðgjöf og fræðslu (Karl Ólafsson, munnleg heimild, 19. nóvember 1996; Guðmundur Vikar, munnleg heimild, 11. desember 1996). Því miður er viðeigandi ráðgjöf ekki alltaf veitt og oft gleymist að minnast á tilveru fjölskylduráðgjafar. Rannsóknir hafa sýnt jákvæð tengsl milli ráðgjafar fyrir ófrjósemisaðgerð og ánægju einstaklingsins eftir aðgerðina (Chi og Jones, 1994). Ýmsar getgátur eru um það hvort samskiptaleiðir, sem ná til karla, séu ólíkar þeim sem ná til kvenna (Ringheim, 1993). Hugsanlega gæti þetta verið ein af orsökum þess að hjón komi ekki í ráðgjöf og er því mikilvægt að nota samskiptaleiðir sem ná til beggja aðila og er það vel athugandi að karlar fræði karla. Hérlendis er algengast að fólk leiti eftir getnaðarvarna- 95 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.