Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Blaðsíða 54
Mismunur á helstu réttindum verktaka og hjúkrunarfræðinga í opinberri þjónustu
Réttindi/kjör Hjúkrunarfræðingur í opinberri þjónustu Verktaki
Réttindi úr starfs- menntunarsjóði Já, atvinnurekandi greiðir 0,22% af föstum launum í starfsmenntunarsjóð. Nei.
Greiðslur úr vísindasjóði Já, atvinnurekandi greíðir 1,5% í vísindasjóð. Nei.
Tryggingargjald Atvinnurekandi greiðir 5,53% af launum í tryggingargjald. Verktaki þarf sjálfur að standa skil á 5,53% tryggingargjaldi.
Ábyrgð á skilum staðgreiðslu skatta og launatengdum gjöldum Atvinnurekandi stendur skil á framlögum í lífeyrissjóði, sköttum og öðrum launa- tengdum gjöldum. Verktaki þarf sjálfur að standa skil á greiðslum í lífeyrissjóð, staðgreiðslu skatta og öðrum launatengdum gjöldum.
Greiðsluskylda virðisauka- skatts af vinnu Nei. Já, heilbrigðisþjónusta er þó undanþegin virðisaukaskatti.
Réttur til margvíslegrar þjónustu og ráðgjafar af hálfu stéttarfélagsins Já, hjúkrunarfræðingar greiða félagsgjöld til félagsins og njóta þess í stað ýmiss konar réttinda, lágmarksákvæða kjarasamninga auk margvíslegrar þjónustu og ráðgjafar er varða bæði fagleg og stéttarfélagsleg mál. Nei, verktakar eru í raun sjálfstæðir atvinnurekendur og greiða ekki í stéttarfélag. Undantekning frá þessu eru hjúkrunarfræðingar sem starfa skv. samningi félagsins við Tryggingastofnun ríkisins.
Við þetta bætist síðan að verktakar hafa enga tryggingu
fyrir að fá verkefni þannig að það svari til fulls starfs. Þeir
þurfa líka að nota drjúgan tíma til að leita sér að verkum,
semja um verð og sjá um ýmsar útréttingar. Vegna alls
þessa þarf tímakaup verktaka að vera a.m.k. það hátt að
það dugi til greiðslu á öllum launatengdum gjöldum og
réttindum og greiðslu launa fyrir þann tíma sem verktaki
notar til að sinna nauðsynlegum þáttum í eigin rekstri.
Eins og fram kemur í töflunni hér að framan geta atvinnu-
rekendur haft margs konar hag af því að ráða starfsmenn
sem verktaka fremur en launamenn. Þeir þurfa ekki að
greiða nein launatengd gjöld til ríkis, lífeyrissjóðs eða
stéttarfélags og engin útgjöld eru vegna veikinda, slysa eða
barnsburðarleyfis starfsmanna. Þeir þurfa ekki að greiða laun
í orlofi og námsleyfi og þurfa ekki að taka tillit til kjara-
samninga um ýmiss konar lágmarkskjör. Þeir þurfa ekki að
standa skil á staðgreiðslu vegna launamanns, ekki að færa
launabókhald og losna við hugsanlegt þras við stéttarfélög
og trúnaðarmenn þeirra. Það gefur hins vegar auga leið að
þessi atriði eru til álíka mikils óhagræðis fyrir launamanninn
(verktakann) eins og þau eru til hagræðis fyrir atvinnurekand-
ann. Verktakinn þarf að tryggja sig vegna hugsanlegra veik-
inda og slysa, greiða öll launatengd gjöld, færa launabókhald
og greiða staðgreiðslu af launum. Sem verktaki ávinnur
viðkomandi starfsmaður sér þar að auki engin kjarasamn-
ingsbundin réttindi, sbr. upplýsingar í töflunni hér að ofan.
Ef starfsmaður ræður sig til starfa hjá atvinnurekanda,
vinnur reglubundna vinnu en fær greitt tímakaup sem
verktaki má í mörgum tilvikum líta svo á að ekki sé um
raunverulega verktöku að ræða heldur sé þetta svokölluð
„gerviverktaka" þar sem atvinnurekandinn er að reyna að
losa sig undan ábyrgð með því að bjóða launamanni kjör
sem verktaki. Nokkrir dómar hafa fallið um réttarstöðu
launamanna sem viðhafa slíkt ráðningarsamband og hafa
dómstólar yfirleitt komist að þeirri niðurstöðu að samn-
ingar um undirverktöku, sem byggja fyrst og fremst á
samningi um útselda vinnu, hafi í raun sama gildi og venju-
legt samband milli atvinnurekanda og launamanns. Þetta
þýðir að launamaðurinn (verktakinn) getur krafist svipaðra
réttinda og launamenn á almennum markaði hvað varðar
veikindi, slys, uppsögn og fleira.
Hjúkrunarfræðingar hringja oft á skrifstofu félagsins og
spyrjast fyrir um „verktakataxta" fyrir hjúkrunarfræðinga.
Þeir taxtar eru ekki til og félagið eða aðrir aðilar mega ekki
gefa út svona taxta, það væri brot á samkeppnislögum.
Félagið hefur gert samning við Tryggingastofnun ríkisins
um taxta fyrir hjúkrun í heimahúsum, þeir taxtar eru frá
1.890 - 2.783 kr. á klst. og hver vitjun er reiknuð sem 2-
2,5 klst. þannig að greiddar eru kr. 3.780 - 6.956 kr. fyrir
hverja vitjun, sjá nánari upplýsingar í 4. tbl. Tímarits
hjúkrunarfræðinga frá 1998. Þessir taxtar þykja hins vegar
vera lágir og það er ekki óalgengt að tímakaup útseldrar
vinnu háskólamanna sé allt frá 2.500 kr. og upp í 7.000 kr.
á klukkustund.
Hjúkrunarfræðingar, sem starfa sem verktakar, verða að
gera sér grein fyrir stöðu sinni sem slíkir og krefjast tíma-
kaups þannig að heildarkjör þeirra að meðtöldum réttindum
séu ekki lakari en gengur og gerist hjá hjúkrunarfræðingum í
opinberri þjónustu og ekki lakari en gengur og gerist meðal
annarra háskólamanna. Hjúkrunarfræðingar eiga í flestum
tilfellum einnig kost á því að starfa sem launamenn og þar
njóta þeir allra réttinda og kjara skv. kjarasamningi og oft
ýmissa hlunninda þar fyrir utan. Fullyrða má að þau réttindi,
sem talin eru upp í töflunni hér að ofan, jafngildi í krónutölu
mörgum tugum prósenta ofan á laun skv. kjarasamningi þó
erfitt geti verið að setja á þau eingilda mælikvarða.
134
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 75. árg. 1999