Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Page 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Page 36
Við opnun ráðstefnunnar „Hjúkrun '96“. sams konar hugmyndir á Norðurlöndunum. „Við ákváðum að vinna áfram með þessa hugmynd sem kom frá ráðuneytinu út frá okkar forsendum. Úr því varð til nýtt launakerfi sem aðrir hópar líta til í dag.“ Vinnutlmakafli samningsins 1997 segir hún þó hafa verið erfiðastan þar sem verið var að aðlaga kaflann vinnu- tímatilskipun EES. „Það tók okkur þrjár vikur, oft 16-18 tíma sólarhrings að koma þessu heim og saman. Við vorum í forystu en í samvinnu við meinatækna, náttúru- fræðinga og fleiri hópa og það þurfti að skoða þetta út frá svo mörgum sjónarmiðum, sem var mjög erfitt. Hafi ég einhvern tíma verið úrvinda af þreytu þá var það þarna." Uppsagnir hjúkrunarfræðinga Ásta fór strax að loknum samningum á fund ICN til Vancouver en hún hefur verið virk í alþjóðasamstarfi hjúkr- unarfræðinga, er m.a. varaformaður SSN, Samtaka norr- ænna félaga hjúkrunarfræðinga. Uppsagnir hjúkrunarfræð- inga í fyrra voru svo næsti kafli kjarabaráttunnar. „Hjúkrun- arfræðingar sögðu upp sem einstaklingar. Hins vegar ber félagið ábyrgð á þeim upplýsingum um stöðu launamála hjúkrunarfræðinga sem var grunnurinn að ákvörðun margra um uppsögn. Félaginu ber skylda til að koma ákveðnum upplýsingum um kjaramál á framfæri og gerði það. Félagið var að vinna að gerð aðlögunarnefndarsamn- inga og vann þar með fjölda hjúkrunarfræðinga og voru því töluverð samskipti við hjúkrunarfræðinga á þessum tíma. Það var gaman að sjá hvernig þeir fylltust eldmóði til að fylgja eftir kröfum sínum um bætt kjör. Um tíma voru þeir þó komnir með óraunhæfar væntingar. Þeir fengu mikinn meðbyr frá umhverfinu, fjölmiðlar og almenningur tók undir réttmætar kröfur þeirra um hærri laun. Félagið átti ekki aðild að uppsögnum, félagið kom hins vegar inn í þessa deilu þar sem það átti eftir að ganga frá aðlögunar- nefndarsamningunum inni á stofnununum. Þeir samningar urðu svo lykillinn að lausninni, við komum inn á síðasta degi og gerðum ákveðinn samning, kynntum hann fyrir hjúkrunarfræðingum við misjafnar undirtektir, sumir voru sáttir en aðrir ekki og krísan í kringum það var mjög erfið.“ Hún segir að hjúkrunarfræðingar hafi verið orðnir mjög kappsfullir undir lokin, en áttuðu sig sumir ekki á að það er munur á uppsögnum og verkfalli því varðandi uppsagnir gilda engar reglur. Síðasta daginn fyrir útgöngu hjúkrunar- fræðinga var ekki Ijóst hvort samningur yrði undirritaður þar sem hjúkrunarfræðingar voru sjálfir búnir að hafna hluta af samkomulaginu sem þeim hafði verið boðið í einstaklingsbundnum samningum. „Félagið kom þá að deilunni og undirritaði samkomulag sem fól í sér tilteknar launahækkanir og röðun hjúkrunarfræðinga í launaramma og launaflokka, auk þess sem samið var um framgangskerfi sem tæki gildi á árinu 1999. Við tókum ákveðna áhættu varðandi hjúkrunarfræðinga þarna, en áhættan var minni en ef við hefðum ekki gert þetta. Það voru aðeins nokkrar klukkustundir þar til fjölmiðlar og almenningur hefðu farið að snúast gegn okkur og samstarf hjúkrunarfræðinga var í hættu. Það hefðu því getað orðið stórslys. Stjórn félagsins með stuðningi trúnaðarmanna hjúkrunarfræðinga og viðræðunefnda hjúkrunarfræðinga á stóru sjúkrahúsunum tveimur tók ákvörðun um að gera þetta samkomulag. Þetta reyndi mikið á, en ég var allan tímann sannfærð um að við myndum Ijúka þessu. Ég verð þó að viðurkenna að mér leið mjög ilia á tímabili og fór með faðirvorið nokkuð oft! Það var svo margt sem þurfti að gerast þessar síðustu stundir. Við vorum búnar að eygja lausnina en stjórnvöld þurftu að gefa samþykki sitt og gerðu það svo. Margir hjúkrunarfræðingar voru reiðir og fannst eins og félagið hefði tekið af þeim tækifæri. En við mátum þetta í Ijósi reynslunnar, að þegar fólk gengur út og samstaða er rofin þá hækka ekki tilboðin, við töldum því að við værum með tilboð í höndunum sem væri í hámarki, við myndum ekki ná lengra, en það voru ekki allir á sama máli." Hún segist þó ekki heyra þessar raddir í dag, tæpu ári síðar, þegar hjúkrunarfræðingar eru búnir að fá launahækkanir. „Nýja launakerfið er ekki búið að ná jafnvægi enn. Það voru margir ósáttir fyrir jól og töldu sig ekki hafa fengið nógu mikið út úr þessu, en svo kemur framgangskerfið núna og það kemur til móts við vonir sumra en ekki annarra." Hún bætir við að það sem skipti mestu máli sé að hjúkrunar- fræðingar séu komnir á meiri samkeppnismarkað en áður, því þó skortur hafi verið á þeim til starfa árum saman hafi þeir ekki notið þess fyrr enn nú. „Við sjáum það í könnun um skort á hjúkrunarfræðingum til starfa, sem unnin var fyrir ári, og svo aftur núna, að það hafa orðið ákveðnar tilfærslur. Skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa á öldrun- arstofnunum í Reykjavík hefur minnkað, var 25% en fer í 116 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.