Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Side 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Side 48
hærra og oft mjög hátt hlutfall af launum sínum til félagsins en þeir félagsmenn sem hafa hærri laun myndu greiða lægra hlutfall af sínum launum. Með því að tengja félagsgjöldin heildarlaunum þá er hins vegar betur tekið mið af tekjum hvers og eins félagsmanns. Greiðslur að meðaltaii til félagsins Skv. áætlun félagsins og upplýsingum frá Kjararann- sóknarnefnd opinberra starfsmanna þá var meðaltal taxta- launa hjúkrunarfræðinga fyrir 100% starf í janúar 1999 um 155.000 kr. á mánuði. Meðaltal heildarlauna nam um 239.000 kr. á mánuði. Út frá þessum tölum, miðað við 1,1% gjald til félagsins og 0,3% gjald í vinnudeilusjóð af heildarlaunum, má gera ráð fyrir að á árinu 1999 greiði hjúkrunarfræðingar að meðaltali 2.629 kr. á mánuði eða 31.548 kr. á ári í félagsgjald og að greiðslur hjúkrunar- fræðinga að meðaltali í vinnudeilusjóð verða 707 kr. á mánuði eða 8.604 kr. á ári, sjá töfluna hér á eftir. Hjúkrunarfræðingar fá á hverju ári greitt úr vísindasjóði félagsins og nam sú upphæð 23.455 kr. á árinu 1999 ef miðað er við 100% starfshlutfall á árinu 1998. Þessi greiðsla er hluti af þeim kjarasamningi sem félagið hefur gert við atvinnurekendur og líta má á hana m.a. sem ákveðna endurgreiðslu á félagsgjöldum félagsmanna til félagsins. Þannig að þegar búið er að taka tillit til þessarar endurgreiðslu þá greiða hjúkrunarfræðingar að meðaltali 8.093 kr. á ári til félagsins auk 8.604 kr. á ári í vinnu- deilusjóð. Áætlað er að hjúkrunarfræðingur muni þurfa að Á mánuði Á i ári Áætlað meðaltal dagvinnulauna í jan. 1999 155.000 kr. 1.860.000 kr. Áætlað meðaltal heildarlauna í jan. 1999 239.000 kr. 2.868.000 kr. Félagsgjald á m.v. 1,1% af heildarlaunum 2.629 kr. 31.548 kr. Gjald í vinnudeilusjóð m.v. 0,3% af heildarl. 707 kr. 8.604 kr. Greitt úr vísindasjóði á árinu 1999 23.455 kr. Félagsgjöld að frádregnu vísindasjóðsgjaldi 8.093 kr. greiða í u.þ.b. 3 ár til viðbótar í vinnudeilusjóð til að í honum verði verði nægjanlegt fjármagn ef til verkfalls kæmi, eftir það ætti reglubundið framlag hjúkrunarfræðinga í vinnu- deilusjóð að getað lækkað verulega eða fallið niður. Til viðbótar þessu má síðan benda á möguleika félagsmanna til styrkja úr orlofssjóði og starfsmenntunarsjóði félagsins. Ákvörðun stjórnar fyrir næsta fulltrúaþing um lækkun félagsgjalda: Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur tekið ákvörðun um að leggja til við fulltrúaþing félagsins sem haldið verður 20-21. maí nk. að félagsgjöld verði lækkuð úr 1,1% í 1,0% af heildarlaunum frá og með næstu ára- mótum. Hækkun launa hjúkrunarfræðinga eftir síðustu kjarasamninga félagsins gerir það kleift að lækka félags- gjöldin. Hjúkrunarfræðingum er nauðsynlegt að geta haldið út öflugu starfi, enda má segja að veruleg hækkun launa hjúkrunarfræðinga sé árangur þess. Stjórnin mun ennfremur leggja það til að gjald í vinnudeilusjóð verði óbreytt næstu 2 árin eða 0,3% af heildarlaunum. HJÚKRUNARFRÆÐI Hjá námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands eru eftirtalin tvö störf laus til umsóknar: * 100% lektorsstarf í hjúkrunarfræði, þar sem lektorinn hefur umsjón með námskeiðinu Hjúkrun fullorðinna I. * 37% lektorsstarf í hjúkrunarfæði, með áherslu á geðhjúkrun. Reiknað er með að ráða í ofangreind tvö störf frá og með 1. ágúst 1999 til tveggja ára. Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 1999 og skal skriflegum umsóknum og umsóknargögnum skilað í þríriti til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Umsóknum þarf að fylgja greinargóð skýrsla um vísindastörf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar, svo og yfirlit um námsferil og störf og eftir atvikum vottorð. Með umsókn skulu send þrjú eintök af helstu vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að tekin verði til mats. Enn fremur er óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir sem umsækjandi vinnur að og hyggst vinna að verði honum veitt starfið. Loks er ætlast til þess að umsækjandi láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á. Um meðferð umsókna og tillögu um ráðstöfun starfsins gilda reglur um veitingu starfa háskólakennara, sbr. auglýsingu nr. 366/1997. Móttaka allra umsókna verður staðfest bréflega og umsækjendum síðan greint frá því hvernig starfinu hefur verið ráðstafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir. Um launakjör lektors fer eftir kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra og raðast starf lektors í launaramma B samkvæmt forsendum röðunar starfa í samkomulagi aðlögunarnefndar. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Kristjánsdóttir, formaður stjórnar námsbrautar í hjúkrunarfræði, í síma 525 4960 128 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tb1. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.