Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1999, Side 53
Vigdís Jónsdóttir
kjaramál
Hvað þýðir það Að
Ard-tt t'mAkAuj?
sem verktaki?
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa á undanförnum vik-
um borist margar fýrirspurnir er varða greiðslur til hjúkrunar-
fræðinga sem starfa sem verktakar. í þessari samantekt
verður reynt að gera grein fyrir því helsta sem einkennir verk-
taka og mismunandi réttarstöðu verktaka og launamanna.
Verktakar eru í raun og veru sjálfstæðir atvinnurekendur
sem sjá um að taka að sér ákveðin verkefni gegn ákveðinni
greiðslu. Þeir bera ábyrgð á verkefninu, stjórna því hvernig
það er unnið og sjá sjálfir um að útvega öll nauðsynleg
aðföng. Á undanförnum árum hefur það hins vegar færst í
vöxt á almennum vinnumarkaði að fólki er boðið að ráða
sig í vinnu sem n.k. undirverktakar. Þá eru viðkomandi
starfsmenn ekki í stéttarfélagi og fá kannski eitthvað hærri
greiðslur en þeir fengju sem launamenn en njóta hins vegar
engra samningsbundinna réttinda og kjara sem stéttarfélög
hafa samið um.
í yfirlitinu hér á eftir er gerður samanburður á stöðu
verktaka og launamanns hvað varðar ýmis réttindi.
Mismunur á helstu réttindum verktaka og hjúkrunarfræðinga í opinberri þjónustu
Réttindi/kjör Hjúkrunarfræðingur í opinberri þjónustu Verktaki
Laun í veikindum Full laun í 3-12 mánuði. Engin laun.
Laun í barnsburðarleyfi Full laun í 3 mánuði og föst laun í 3 mánuði. Engin laun.
Laun í veikindum barna Laun í 7 daga á ári. Engin laun.
Hlutur atvinnurekanda í greiðslum í lífeyrissjóð 11,5% Enginn, verktaki verður sjálfur að standa skil á öllum greiðslum í lífeyrissjóð skv. lögum.
Laun í orlofi Laun í 24-30 vinnudaga og greiðsla orlofs á álags- og yfirvinnu. Engin laun.
Laun á sérstökum frídögum og stórhátíðum Já. Engin laun á frídögum, aðeins greitt fyrir unnar klukkustundir.
Kaffitímar Greiddar 25 mín. á hverja vakt í yfirvinnu hjá vaktavinnufólki í 100% starfi. Dagvinnumenn eiga rétt á matar- og kaffitímum skv. kjarasamningum. Engin launuð neysluhlé.
Endurmenntun og námsleyfi Námsleyfi ávinnst skv. kjarasamningi, 1 ’A dagur fyrir hvern mánuð í starfi. Endurmenntunarkostnaður er greiddur skv. ákveðnum reglum í kjarasamningi. Taka náms- leyfis er háð samþykki stjórnar stofnunar. Enginn réttur.
Uppsagnarfrestur 3 mánuðir hjá fastráðnum hjúkrunarfræðingum. Að jafnaði enginn nema um það sé sérstaklega samið.
Slysatrygging Hjúkrunarfræðingur er skv. kjarasamningi slysatryggður vegna andláts eða varanlegrar örorku. Tryggingin gildir allan sólarhringinn. Verktaki þarf að kaupa sér slysatryggingar.
Réttindi úr orlofssjóði Já, atvinnurekandi greiðir 0,25% af heildarlaunum í orlofssjóð. Nei.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 75. árg. 1999
133