Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Blaðsíða 5
FORMANNSPISTILL
Elsa B. Friöfinnsdóttir
Annasamur vetur
fram undan
Sá vetur, sem senn fer í hönd, verður annasamur
hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Fyrst skal
nefna að í lok nóvember renna núgildandi kjara-
samningar F.i.h. og Ijarmálaráðherra út. Stjórn
: félagsins samþykkti að ganga til samstarfs við
önnur félög í Bandalagi háskólamanna (BFIM) og
vinna með öðrum háskólastéttum í þeim þáttum
sem sameiginlegir eru. Helstu atriði þess sam-
starfs varða tryggingavernd, uppsagnarfrest tengd-
an lífaldri og starfsaldri, styttingu vinnuvikunnar,
samræmingu vinnutöflu, endur- og símenntun og
gildistíma samninga. Stjórn BHM ákvað síðan að
ganga til samstarfs við BSRB og KI í viðræðum við
samninganefnd ríldsins um þau atriði sem sameigin-
legir eru öllum þeim fjölda launamanna sem eru í
þessum heildarsamtökum. Er þar einkum um að
ræða réttindamál, þætti er lúta að starfsmannamál-
um, tryggingamál o.fl. Því má segja að samningalota
hjúkrunarfræðinga verði þrískipt að þessu sinni.
Samkvæmt viðræðuáætlun, sem formaður sam-
ninganefndar ríkisins og formaður F.í.h. hafa undir-
ritað, er stefnt að því að fyrstu tveir þættir samning-
alotunnar verði að baki í lok október og að þá hefjist
viðræður um sérltröfur hjúkrunarfræðinga. Vilji
beggja aðila er að nýr samningur liggi fyrir þegar
sá er nú gildir rennur út. Félagsráðsfundur, sem
haldinn verður 15. október næstkomandi, verður
tileinkaður kjaramálunum. Þar verður einkum fjall-
að um sérlíröfur hjúkrunarfræðinga í væntanlegum
samningum. Þá verður boðað til opinna kynninga-
funda með hjúkrunarfræðingum þegar samninga-
viðræður verða komnar á veg.
Annað stórt verkefni vetrarins verður endurskoð-
un á stefnu Féiags íslenskra hjúkrunarfræðinga í
hjúkrunar- og heilbrigðismálum. Sú stefna, sem
nú gildir, var samþykkt á fulltrúaþingi F.í.h. í
maí 1997. Mikil vinna lá að baki þeirri stefnu-
mótun enda ber hún merki framsýni og vandaðra
vinnubragða. Fjallað er um hjúkrun, hugmynda-
fræði hjúkrunar, hjúkrunarfræðinginn, þekkingu í
hjúkrunarstarfinu, hjúkrunarfræðimenntun, heil-
brigðisþjónustu hér á landi, fjármögnun heilbrigð-
isþjónustunnar og breytt samfélag. Allt eru þetta
viðfangsefni sem nauðsynlegt er að hjúkrunar-
fræðingar fjalli um, hafi skoðun á og taki þátt í
umræðum um á opinberum vettvangi. Tillaga
að endurskoðaðri stefnu F.í.h. verður lögð
fyrir fulltrúaþing á vori komanda.
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Þriðja verkefni vetrarins er endurskoðun á
félaginu sjálfu. Stjórn F.í.h. hefur samþykkt
að nú, á afmælisári Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sé rétt
að staldra við og skoða hvort betur megi gera í þjónustu við fél-
agsmenn. Ljóst er að breytingar á samgöngum og í fjarsldptum
gera hjúkrunarfræðingum kleift að endurskipuleggja þátttöku
almennra félagsmanna í æðstu stjórn félagsins og í fræðslumál-
um. Auknar kröfur um gegnsæi í fjármálastjórnun kalla einnig
á að fjármálaumsýsla félagsins verði skoðuð sérstaklega og end-
urskipulögð ef þurfa þykir. Félag íslenslera hjúkrunarfræðinga
! er bæði fagfélag og kjarafélag og nauðsynlegt að jafnvægi ríki
milli þessara þátta í störfum félagsins á hverjum tíma. Til þess
verður sérstaklega horft. Þá er einnig mikilvægt að lög félagsins
: séu endurskoðuð með reglulegu bili þannig að þau endurspegli,
; eða öllu heldur setji ramma um starfsemina á hverjum tíma. Ef
umrædd skoðun sýnir að rétt sé að breyta einstökum þáttum í
starfi eða skipulagi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verða til-
lögur þar að lútandi lagðar fyrir fulltrúaþing í maí 2005.
Hafin er endurskoðun á fyrirkomulagi þjónustu sjálfstætt
starfandi hjúkrunarfræðinga sem starfa samkvæmt samningi
Tryggingastofnunar ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga. Af hálfu félagsins er stefnt að því að efla þá þjónustu
enda brýn þörf fyrir aukna hjúkrunarþjónustu í heimahúsum
þegar meðallegutími á sjúkrahúsum hefur styst jafnmikið og
raun ber vitni.
Síðast en ekki sfst er vert að minna á hjúkrunarþing sem
haldið verður 5. nóvember næstkomandi. Þar verður sjónum
beint að öryggi sjúklinga, sérfræðimenntun hjúkrunarfræðinga
og kostnaðarhlutdeild sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni. A
hjúkrunarþingi gefst hjúkrunarfræðingum tækifæri til að taka
þátt í faglegri umræðu sérfræðinga og taka þátt í að móta
stefnu félags síns í mikilsverðum málum.
I ljósi ofanritaðs er ljóst að verkefni vetrarins eru næg. Til að starf
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sé öflugt, skjólstæðingum
okkar og hjúkrunarfræðingum til hagsbóta, þarf breiða sam-
stöðu og almenna þátttöku félagsmanna. Eg vona að samstarf
formanns, stjórnar og félagsmanna verði öflugt og gjöfult í vetur
og saman náum við góðum árangri í þeim mikilvægu málum sem
unnið er að.
Tímarit hjukrunarfræöinga 4. tbl. 80. árg. 2004