Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Qupperneq 20
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
FJÖLMENNUR FUNDUR UM LÍFEYRISMÁL
Á næstu árum munu fjölmennir árgangar hjúkrunarfræðinga fara á eftirlaun.
10. janúar síðastliðinn hélt Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga kynningarfund
í samvinnu við Lífeyrisjóð starfsmanna ríkisins þar sem rætt var um
lífeyrismál. Boðaðir á fundinn voru félagsmenn fæddir 1940-1950 og eru
það um 20% félagsmanna sem starfa á kjarasamningum félagsins.
Elsa Friöfinnsdóttir, formaður FÍH, setti
fundinn og gladdist yfir hversu vel
hann var sóttur - 280 manns mættu. í
ræöu sinni minnti hún á að miklu fleiri
hjúkrunarfræðingar munu fara á eftirlaun
en þeir sem útskrifast næstu tíu árin.
Eins og flestir muna voru Lífeyrissjóður
hjúkrunarfræðinga (LH) og Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins (LSR) sameinaðir
1997. LH er enn þá til sem eining
innan LSR og mun greiða út iífeyri í
mörg ár í viðbót en hjúkrunarfræðingar,
sem gerast aðilar eftir 1997, fara í
LSR. Elsa situr ásamt Ástu Möller
alþingismanni í stjórn Lífeyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga fyrir hönd Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Cecilie Björgvinsdóttir, verkefnastjóri
kjaramála hjá FÍH, tók við fundarstjórn
og gaf þrem fulltrúum LSR orðið. Þórey
Þórðardóttir, forstöðumaður réttinda-
mála, fór yfir sögu sjóðsins. Lífeyrissjóður
hjúkrunarkvenna var stofnaður 1943
þar sem aðrir sjóðir þóttu ekki henta
hjúkrunarkonum. Aðrir opinberir
starfsmenn voru flestir karlmenn sem
lögðu áherslu á önnur atriði. Til dæmis
höfðu hjúkrunarkonur lítinn áhuga á
makalífeyri á þessum tíma. Að sögn
Þóreyjar hefur verið unnið þrekvirki
gegnum árin við að gera þennan litla og
sérhæfða sjóð að mjög góðum sjóði. í
dag eru kjör starfsmanna að jafnast út og
verða samræmd og er ekki lengur þörf
Fyrirspurnir úr sal voru margar og fjölbreyttar
fyrir sérhæfða lífeyrissjóði. A-deild LSR,
sem allir nýir hjúkrunarfræðingar fara í,
er byggður upp eins og lífeyrissjóðir á
almennum vinnumarkaði.
18
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008