FLE blaðið - 01.01.2015, Side 8
Ekkert liggur fyrir hvað varðar ísland, en þar eigum við að vissu
marki á brattan að sækja þar sem fimm ára hámarkstími er
til staðar fyrir fjármálafyrirtæki og tryggingarfélög. FLE hefur
átt fundi á starfsárinu með stjórnvöldum og eftirlitsaðilum
sem og hagsmunaaðilum, þar sem gerð hefur verið grein fyrir
þeirri umfjöllun sem átt hefur sér stað um breyttar tilskipanir
EB innan FEE og ekki sist innan NRF. Bent hefur verið á þær
áherslur NRF, sem beinast meðal annars að ráðningartíma
endurskoðenda og að löndin nýti sér þann hámarkstíma sem
lögin heimila.
Við höfum þvi gert ráðamönnum grein fyrir þeirri umræðu
um ráðningartímann sem átt hefur sér stað á hinum
Norðurlöndunum og lagt áherslu á að ísland taki mið af því
og geri breytingu á lögum hvað varðar fimm ára regluna.
Það má því gera ráð fyrir að á starfsárinu muni félagið eiga í
frekari viðræðum og samvinnu við stjórnvöld vegna innleið-
ingarinnar 2016 og þá væntanlega með sambærilegum hætti
og Reikningsskilanefndin er að vinna með ráðuneytinu vegna
Ársreikningatilskipana EB sem verða innleiddar vorið 2015.
Það hefur mikið gengið á í heimi endurskoðenda undanfarin
sex ár eftir fjármálakreppuna og mörg spjót beinst að störfum
okkar, bæði innan dómskerfisins og ekki sfður á alþjóðavett-
vangi eins og framangreind umfjöllun um reglugerðar- og laga-
breytingar úr ranni Evrópusambandsins ber með sér.
En í öllu þessu umróti er nauðsynlegt fyrir okkur að Ifta aðeins
upp og horfa fram á við í Ijósi reynslunnar og þeirra breytinga
sem eru í farvatninu.
Mikilvægi starfa okkar og þýðing fyrir almenning og fyrirtæki
er lykilatriði þegar kemur að áherslum félagsins svo virði vinnu
okkar sé metið að verðleikum. Til þess að svo geti orðið skiptir
orðstír og samstaða stéttarinnar miklu máli og síðast en ekki
síst verðum við að vera opin fyrir nýjungum sem og breyttum
áherslum löggjafans og almennri gagnrýni. Flugleiðum það
með jafnaðargeði og yfirvegun og höfum í huga að það að rýna
til gagns er öllum mikilvægt og ekki síst stétt endurskoðenda.
Það að einni stétt sérfræðinga í veröldinni sé gert að starfa
eftir alþjóðlegum stöðlum og fái slíka athygli þegar á móti
blæs í fjármálaheiminum, sem nær jafnvel alla leið inná borð
til æðstu stofnana Evrópusambandsins sýnir okkur mikilvægi
starfa okkar. Þegar upp er staðið þá mun slík umfjöllun sýna
fram á þá þörf sem viðskiptalífið hefur fyrir störf okkar og þá
sérfræðiþekkingu og traust sem við endurskoðendur búum
yfir.
Að lokum vil ég þakka fráfarandi stjórn og nefndum fyrir
ánægjulegt samstarf á liðnu ári.
Sigurður B. Arnþórsson
Löggildingarpróf og nýir félagar 2014
FLE hefur borist listi yfir þá sem stóðust tilskilin verkleg próf sem fram fóru dagana 7. og 9. október og hafi þar með
öðlast rétt til að fá löggildingu sem endurskoðendur. Alls þreyttu 23 prófið, þar af náðu 7 einum færra en síðast
eða 30,4 % 6 karlar og 1 kona. Þau koma frá fjórum stærstu stofunum að vanda. Prófnefnd hefur sent listann til
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem veitir löggildinguna formlega. Til hamingju með þetta öll og velkomin
í félagið.
Aðalheiður Sigbergsdóttir
Ernst & Young
Gunnar Þór Tómasson,
Ernst & Young
Andri Þór Kristinsson
PwC
Halldór Gunniaugsson,
KPMG
Atli Þór Jóhannsson,
PwC
Jón Kristinn Lárusson
Deloitte
Gísli Jóhannsson,
KPMG
6 • FLE blaðiðjanúar 2015