FLE blaðið - 01.01.2015, Side 38

FLE blaðið - 01.01.2015, Side 38
108. gr. d. Endurskoðandi eða endurskoðunarfyrirtæki skal árlega gera endurskoðunarnefnd grein fyrir störfum sínum og óhæði og skila skriflegri skýrslu um mikilvæg atriði sem fram hafa komið við endurskoðunina. (skýrslunni skal sérstaklega geta um veikleika í innra eftirliti í vinnuferli við gerð reikningsskila. ... í lögum um endurskoðendur nr. 79/2008 með eftirgreindum hætti: 4. tl. 1. Gr. Endurskoðunarnefnd: Eins og hún er skilgreind í IX. kafla A laga nr. 3/2006, um ársreikninga. 4. mgr. 19.gr. Endurskoðandi einingar tengdrar almannahags- munum skal á hverju ári: 1. staðfesta skriflega við endurskoðunarnefnd viðkomandi einingar að hann sé óháður hinni endurskoðuðu einingu, 2. greina endurskoðunarnefndinni frá þeirri þjónustu sem einingunni er veitt auk endurskoðunar, 3. ræða við endurskoðunarnefndina um hugsanlega ógnun við óhæði sitt og þær verndarráðstafanir sem gerðar eru til að draga úr slíkri ógnun. 3. mgr. 20. gr. Endurskoðandi sem ber áþyrgð á endurskoðun einingar tengdrar almannahagsmunum skal taka sér hlé frá endur- skoðun þeirrar einingar í a.m.k. tvö ár samfellt eigi síðar en sjö árum eftir að honum var falið verkið. Sama gildir um endurskoð- endur þeirra dótturfélaga sem hafa verulega þýðingu innan sam- stæðunnar. 4. mgr. 20. gr. Endurskoðanda sem áritar endurskoðuð reiknings- skil einingar tengdrar almannahagsmunum er ekki heimilt að taka við lykilstjórnunarstöðu hjá viðkomandi einingu fyrr en a.m.k. tvö ár eru liðin frá því að hann tók þátt í endurskoðun einingarinnar. ... og aö lokum í lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 sem hljóðar svo: 3. mgr. 16. gr. Innri endurskoðun skal reglulega gera stjórn og endurskoðunarnefnd grein fyrir starfsemi sinni. Að öðru leyti er hlutverks endurskoðunarnefnda ekki getið í íslenskum lögum. Ákvæði um endurskoðunarnefndir eru innleidd í íslensk lög á grundvelli Evróputilskipunar á árinu 2008. Fyrir þann tíma höfðu Kauphöllin og Viðskiptaráð sett leiðbeinandi reglur um æskilegan hátt varðandi endurskoðunarnefndir og starfsemi þeirra hjá félögum með skráð verðbréf í kauphöll. Undangengin misseri hefur borið meir á endurskoðunarnefnd- um hjá íslenskum félögum með skráð verðbréf og grundvallast það á ofangreindum lögum og reglum. Þrátt fyrir regluverkið hafa endurskoðunarnefndir ekki áunnið sér sess í starfsháttum fyrirtækja á borð við það sem tíðkast erlendis. Samskipti við endurskoðendur hafa hérlendis mest verið á ábyrgð framkvæmdastjóra eða fjármálastjóra, bæði varðandi endurskoðunina sjálfa og aðra þjónustu en um niðurstöður endurskoðunarinnar hjá stjórn. Þetta er smátt og smátt að breytast. E.t.v. þurfa endurskoðendur að hjálpa þar til með því að beina samskiptum sem varða endurskoðunina og henni tengda öfiun þekkingar á innra eftirliti og verklagi um það ekki fram hjá endurskoðunarnefndum. Hér kann einnig að eiga þátt hlutverk endurskoðunarnefnda hvað varðar vöktun áhættugreiningar og áhættumats og því tengdum viðbrögðum kann að vera minni en erlendis. Almennt er áhættugreiningu og áhættumati litið sinnt sem grunnþætti innra eftirlits. Fræðsla á þvi sviði er lítil í háskólum hér og bein- ist aðallega að endurskoðendum, þ.e. sem eftirlitsaðilum en minna að stjórnarmönnum og stjórnendum sjálfum sem í raun bera ábyrgð á uppbyggingu innra eftirlitsins. Ákvæði ársreikningalaganna um endurskoðunarnefndir má e.t.v. laga. Þau hljóma að sumu leyti svona eins og löggjafinn hafi verið á báðum áttum um hvað gera skyldi, þ.e. hvort um undirnefnd stjórnar væri að ræða (eins og tíðkast erlendis) eða hvort um sjálfstæða nefnd væri að ræða sem ber sjálfstætt ábyrgð á ákveðnum þáttum í starfsemi fyrirtækja, (sjá 108. gr. c: <Endurskoðunarnefnd skal meðal annars hafa eftirfarandi hlutverk án tillits til ábyrgðar stjórnar, stjórnenda eða annarra .... „). Ábyrgð sýnist að hluta tekin af stjórn, sem jafnan er litið til sem æðsta valds félags utan hluthafafunda, og sett á endur- skoðunarnefnd, a.m.k. er nefndin gerð meðábyrg án þess þó að fá vald til að fylgja þeirri ábyrgð eftir. Ekki er hægt að mæla með því að hafa þennan háttinn á. Hlutverk nefndarinnar er til- greint í 5 liðum í ársreikningalögunum sem allir lúta að ábyrgð- arsviði stjórnar, sjá tilvísun í ársreikningalög hér framar. Fyrstu 4 eru eftirlitsþættir en sá 5., lesinn saman við næstu grein lag- anna þar á eftir, tekur í reynd yfir vald stjórnar til að leggja fyrir tillögu á aðalfundi til afgreiðslu og færir það til nefndarinnar. Stjórn skal leggja fyrir aðalfund tillögu um endurskoðanda en hún má ekki leggja aðra tillögu fram en þá sem endurskoðunar- nefnd hefur gert. Hafa ber þó í huga að öllum hluthöfum er heimilt að leggja fram tillögur á hluthafafundum í þessu sam- bandi en þærtillögur hafa þá ekki fengið þá umfjöllun varðandi óhæði o.fl. sem tillaga nefndarinnar hefur væntanlega fengið. Rétt er hér að benda á þá þróun sem orðið hefur erlendis á þessu á þann veg að endurskoðunarnefndir leggja jafnan fram fleiri tillögur en eina og leiðir það til þess að hluthafafundur hefur í raun val um annað en eina tillögu. Samandregið má því segja að meginmunur á hlutverki endur- skoðunarnefndar skv. lögum og relgum hérlendum er sá að hér hafa þær eftirlit með störfum þeirrar stjórnar sem nefndina skipar og jafnvel að deila með stjórn ábyrgð en erlendis er hlut- verk þeirra stuðningur við stjórn með því að skapa vettvang að faglegri umfjöllunar um ákveðna þætti sem eru á ábyrgð stjórnar og talin er nauðsyn til að fá sérfræðinga að. Á þessu er reginmunur og e.t.v. ekki hvetjandi fyrir stjórnir til að efla veg nefndanna, enda á eftirlit með starfsemi stjórnar að vera hjá hluthafafundum. Þórir Ólafsson 36 • FLE blaðiðjanúar2015

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.