Ráðunautafundur - 12.02.1980, Blaðsíða 9
60
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1980
SKÖGRÆKT TENGD BJFJARRÆKT
SigurÖur Blöndal
SkcSgrækt ríkisins.
1._____Bændaskógrækt erlendis .
Víða um heim er skógurinn mikil "stoÖ viö bak
bóndans", ein og gamalt orÖtæki norskt segir.
Ég tek dæmi um þetta aðeins í Noregi. Þar hefir
skógurinn mikla þýöingu fyrir bændur. Um 80% af
skógum Noregs eru x einkaeign, og af þessum stóra
hluta er stór hluti í eigu mjög margra bænda.
Hinir svonefndu bændaskógar eru oftast litlir
um sig, iðulega innan við 10 ha.
Þessir litlu bændaskógar eru vissulega mjög smáar
rekstrareiningar, sem erfitt er að meðhöndla á
skynsamlegasta hátt. Samt hafa þeir haft mikla
þýðingu fyrir afkomu bænda. Menn hafa sótt margs
kyns afurðir í skóginn sinn: Timbur til bygginga,
ýmiss konar staura og síðast en ekki síst eldivið,
meðan menn hituðu upp hús sín á þennan hátt. Sú
tíð er nú aftur að koma í orkukreppu síðustu ára.
2 .____Skógurinn í íslenska bændaþjóðfélaginu.
2.1 Nytjar og hlunnindi.
1 gamla bændaþjóðfálaginu taldist skógur til hinna
helstu hlunninda. Menn ræktuðu ekki skóginn, en
nytjuðu hann á ýmsan hátt, meðan honum var ekki
eytt, en slík urðu reyndar örlög íslenska birkisins.
Gild rök má færa fyrir því, að birki í einhverri mynd
hafi þakið um 30 þus. km á landnámsöld, er forfeður