Ráðunautafundur - 12.02.1980, Blaðsíða 26
76
Mikilsverðir eiginleikar
Enda þótt heimilistrjárækt gegni að flestra áliti því eina
markmiði sem þegar er vikið að, býður hún þó framar öllu upp á
vissa ómótmælanlega kosti sem sjaldan virðast eygðir eða metnir
til fulls að verðleikum. I fyrsta lagi er hér um að ræða þann
mikilsverða eiginleika að geta veitt umtalsvert skjól. Þetta
atriði er ekki aðeins mikilvægt í sambandi við útivist, heldur
er það engu þýðingarminna fyrir upphitun íbúðarhúsnæðis.
Eins og nú er háttað málum um orkukostnað, gæti gott skjól
frá trjágróðri, sparað heimilum sem búa við dýra olíuupphitun,
árlegan orkukostnað, sem hugsanlega lægi á bilinu 20-30%. Hvað
þetta gæti þýtt skal hverjum og einum látið eftir að hugleiða.
1 öðru lagi skal vakin athygli á viðhaldskostnaði húsa.
Þar sem nýtur skjóls, verður viðhald bygginga snöggt um minna
en standi þær á skjólsnauðu landi. Ekki síst getur munað um-
talsverðu þá timburhús eiga í hlut, en hin síðari ár hefur
þannig íbúðarhúsum farið ört fjölgandi í sveitum landsins.
Að öllu samanlögðu má því ljóst verða, að trjárækt er ekki
einungis mikið þjóðþrifamál, heldur ekki síður nauðsynjamál sem
framvegis þyrfti að leggja aukið kapp á að efla hvarvetna í
sveitum landsins þar sem unnt reynist. En bæði framtakssemi og
hugsun hefur verið lítil í þessum efnum hingað til. Er tilval-
ið að hvetja til stórátaka á þessu sviði í tilefni árs trésins
sem nú er hafið.
Skilyrói til trjáræktar
Það gefur auga leið að atriði hlr að lútandi tengjast mjög
landstöðu og fjölbreytilegu náttúrufari landsins. Landslag og
þar með staðhættir ráða miklu um veðurskilyrði við býli. Geta
þau reynst með ólíkindum breytileg innan tiltölulega mjög af-
markandi svæðis.
Allt of óvíða í næstu grennd við býli býður náttúruleg að-
staða upp á umtalsvert skjól gegn stormasamri veðráttu. Þetta
er ekki síst sakir þess, að frá fornu fari hefur víða verið
leitast við að staðsetja byggingar og þá einkum íbúðarhús uppi
á hæðum þar sem gott er útsýni en jafnan töluvert áveðra. Gætir
því næðinga strax og kveður að vindi, en að ógleymdu hitastigi