Ráðunautafundur - 12.02.1980, Blaðsíða 81
131
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1980
RANNSÓKNASTOFNUN LANDBÚNAÐARINS
Gunnar Ólafsson og Björn Sigurbjörnsson,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Inngangur.
Þegar undirbúningur þessarar ráðstefnu hófst kom fram sú hugmynd að
kynna Rannsóknastofnun landbúnaðarins að innan, ef svo má segja. ÞÓ Rann-
sóknastofnunin hafi staðið að ráðunautafundum ásamt Búnaðarfélagi íslands
um árabil er það grunur okkar, að ýmsir sem hér sitja þekki of lítið til
þeirrar starfsemi, sem fram fer á Keldnaholti. Þó svo að flest allir ráðu-
nautar hafi heimsótt stofnunina á Þorrablótum munu vera nokkrir sem ekki
hafa komið þar í annan tíma. Til að bæta nokkuð úr þessu er ætlunin að
eyða því sem eftir er dagsins til kynningar á Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Hér verður fyrst flutt erindi um sögu og störf stofnunarinnar en eftir
hádegi verður siðan farið á Keldnaholt. Þar gefst mönnum tækifæri til að
kynnast starfseminni undir leiðsögn starfsmanna. Gert er ráð fyrir, að sú
kynning taki u.þ.b. tvær klukkustundir. Gestum verður skipt í 5 hópa og
mun leiðsögumaður fylgja hverjum hópi. Hlutverk leiðsögumanns er jafnframt
aó fylgjast meó því að tímaáætlun standist, en gert er ráð fyrir, að hver
, , 30
hopur heimsæki 12-13 starfsmenn. Að þvr loknu, um kl. 15 munum við safn-
ast saman í matsalnum. Þar verða kaffiveitingar og þar geta menn borið
fram fyrirspurinir og hafið umræður. Gert er ráð fyrir að farið verði aftur
í bæinn kl. 17.
Örstutt saga landbúnaðarrannsókna frá síðustu aldamótum.
Eiginlegar landbúnaðarrannsóknir hófust ekki hér á landi fyrr en um
síðustu aldamót. Árið 1899 stofnaði Búnaðarfélag Islands Gróðrarstöðina
í Reykjavík. Var hún starfrækt fram til ársins 1932, lengst af undir stjórn
Einars Helgasonar.
Ræktunarfélag Norðurlands var stofnað árið 1903. Félagið setti þá á
stofn Gróðrarstöðina á Akureyri og rak hana þar til Tilraunaráð jarðræktar
og síðar Rannsóknastofnun landbúnaðarins tók við rekstrinum, eins og nánar
verður að vikið síðar.