Ráðunautafundur - 12.02.1980, Blaðsíða 15
- 65
fyrir beit, þvx aÖ hann er mjög viðkvæmur x því
tilliti.
4.____Skógrækt til viðarframleiðslu á íslandi.
4.1 Skógræktarsvæði eftir veðurskilyrðum.
Hér á landi eru veðurskilyrði ákaflega breytileg, ennþá
breytilegri en í- nálægum löndum. Það á við um flesta
þætti veðurfars, en sennilega engan einstakan eins og
tíðleika og styrk vinda. Samspil þessara þátta skera
úr um skilyrði fyrir trjágróður. Um þetta vísast til
greinar eftir Hauk Ragnarsson, skógarvörð.í ritinu
"Skógamál", nefnist hún "Skógræktarskilyrði á fslandi".
Eftir athugun á mörgum samverkandi þáttum veðurfars,
skiptir hann íslandi £ skógræktarsvæði. Samkveemt skipt-
ingu hans eru eftirtalin svæði hagstæðust fyrir skóg-
rækt, sem hefir viðarframleiðslu að markmiði:
1. Fljótsdalshérað innan Egilsstaða
2. Lítið svæði kringum Akureyri
3. Suðurdalir Borgarfjarðar vestra og innanverður
Hvalfjörður
4. Uppsveitir Ærnessýslu
5. Efri hluti Landssveitar og Rangárvalla, Þórsmörk.
4.1.1 Trjátegundir una slr mismunandi eftir veðurfari. Her á
landi koma þrjár helst til greina, miðað við fengna
reynslu, þegar hugsað er til viðarframleiðslu.
1. Sitkagreni frá Alaska, þar sem úrkoma er mikil og
loftraki.
2. Lerki frá Rússlandi og Síberíu í innsveitum, þar
sem úrkoma er lítil og loftraki.