Ráðunautafundur - 12.02.1980, Side 62

Ráðunautafundur - 12.02.1980, Side 62
112 RÁÐUNAUTAFUNDCJR 1980 ÞRÓUN MANNAFLA OG FJÁRMAGNS TIL RANNSÓKNA Gunnar Björn JÓnsson Rannsóknaráöi ríkisins 1. Inngangur Reglubundinn þáttur í starfsemi Rannsóknaráðs ríkisins er að láta fara fram athuganir á stððu vísindalegra rannsókna og þróunar- starfsemi. Fyrsta athugunin var framkvæmd af Steingrími Hermannssyni og Glúmi Björnssyni og náði til ársins 1957, og á grundvelli fjárlaga, ríkisreikninga og ársreikninga aukin svo hún spannaði tímabilið 1950-60. Niðurstöður þessarar athugunar birtust í skýrslunni "Þróun rannsókna og tilrauna á íslandi 1950-1960". Næsta athugunin náði til ársins 1966 og var sú kðnnun lögð til grundvallar yfirliti um þessi málefni, sem náði frá 1961-1971. Þær niðurstöður voru ræddar á ráöstefnu, sem haldin var á vegum vísindanefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar i París (OECD) um visindastefnu íslendinga. Þriðja aðalkönnunin var framkvæmd 1971 og hefur farið fram athugun hjá Rannsóknaráði siðan á tveggja ára fresti. Sú könnun var öllu itarlegri en fyrri kannanir. Starfslið rannsókna- starfseminnar var nú athugað nákvæmlega. Ennfremur voru hugvisindi tekin með i fyrsta sinn. SÍðasta athugun Rannsóknaráðs nær til ársins 1977. Það eru þvi til samfelldar tðlur um fjármagn til rannsókna og þróunar- starfsemi á sviði raunvísinda frá 1950-1971, og með tveggja ára milli- bili fyrir hugvisindi og raunvisindi frá 1971-1975. Skilgreinlng Til að tryggja það að samanburður milli landa sé raunhæfur hefur OECD lagt mikla áherslu á að skilgreiningar séu eins hjá öllum meðlima- löndum og hugsanlegar túlkanir á vafaatriðum þvi i lágmarki. Með þetta i huga var gefin út bók, svokölluð "FRASCATI" handbók, sem notuð er við þessar kannanir. Hér á landi er notkun orða og hugtaka i sambandi við rannsóknir og þróunarstarfsemi nokkuð á reiki. Almennt virðist orðið rannsóknir

x

Ráðunautafundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.