Ráðunautafundur - 12.02.1980, Síða 35
85
Ætlun er aö sem víðast um landið verði skipulagðar skoð-
unarferðir til skógræktarsvæða - þannig, að sem allra flestir
kynnist af raun árangri þeim sem náðst hefur. Þau félagasamtök,
sem eiga aðild að „samstarfsnefnd um ár trésins" munu miðla
efni til aðildarfélaga sinna og hvetja til þess að þau ljái
þessu máli lið hvert á sínu starfssvæði.
Héraðsskógræktarfélögin, sem eru nú 30 í landinu, en að
sjálfsögðu mjög öflug og virk, munu að sjálfsögðu víðast
standa fyrir framkvæmdum tengdum ári trésins. Þau hafa verið
hvött til að leita til búnaðarsambanda og/eða búnaðarfélaga og
svo til sveitarstjórna um samstarf.
Það fer að sjálfsögðu eftir aðstæðum á hverjum stað og £
hverju héraði, að hverju beinar framkvæmdir í tilefni af eða í
tengslum við ár trésins gætu beinst. Sérstaklega hefur þó verið
bent á einstök atriði svo sem:
1. Plöntun í kringum félagsheimili, skóla, sjúkrahús, íþrótta-
mannvirki, orlofsbúðir eða aðrar byggingar og mannvirki í
eigu félaga eða opinberra aðila. Víða standa slík mannvirki
myndarleg og vel gerð hið ytra sem innra, en án þess að
nokkuð hafi verið gert til að gera um þau þá umgerð með görð-
um og trjágróðri, sem þeim hæfði. Þar sem ekki eru til skipu-
lagsteikningar af umhverfi þeirra þarf að láta gera þær áður
en hafist er handa.
2. Skipulagning og fegrun almenningssvæða inn í þéttbýli eða
útivistarsvæða fyrir fólk utan þess. Reynslan hefur sýnt t.d.
bæði á Akureyri þar sem Kjarnaland, sem ræktað er upp af
Skógræktarfélagi Eyfirðinga, er að verða útivistarsvæði Akur-
eyringa,og í Reykjavík,sem hefur Heiðmörk, að skógrækt er
grundvöllur þess að skapa aðlaðandi útivistarsvæði. Fjöldi
þorpa og bæja er nú sem óðast að ganga frá götum og gang-
stéttum á varanlegan hátt og er þá eðlilegt að trjárækt og
garðrækt fylgi þar á eftir enda er fyrir því vaxandi áhugi.
3. I þriðja lagi skal bent á það að á undanförnum áratugum
virðist sem jafnvel hafi minna verið sinnt um trjárækt í
kringum sveitabæi og áður var. Trjá og blómagarðar við hús
voru algengir á fyrri tugum aldarinnar, en allt of víða