Ráðunautafundur - 12.02.1980, Page 84
134
1. Jarðvegsrannsóknir, áburðar- og jarðræktartilraunir.
2. Jurtakynbætur, lífeðlisfræðirannsóknir, gróður- og frærannsóknir.
3. Rannsóknir á beitilöndum.
4. Garðyrkju- og ylræktarrannsóknir.
5. Rannsóknir á sjúkdómum og meindýrum jurtagróðurs og varnir gegn þeim.
6. Vinnu- og verktæknirannsóknir og tilraunir með búvélar.
7. Búfjárkynbætur og arfgengisrannsóknir búfjár.
8. Fóðurrannsóknir, fóðrunartilraunir og rannsóknir á fóðrunarsjúkdómum.
9. Rannsóknir á framleiðsluvörum landbúnaðarins."
1 samræmi við þessa upptalningu hefur starfsemi Rannsóknastofnunar-
innar verið skipt í deildir og sérstök verksvið. NÚ eru starfandi 4 deildir
með deildarstjórum:
Búfjárdeild
Bútæknideild
Jarðræktardeild
og Eftirlitsdeild landbúnaðarvara, en hún starfar eftir sérstökum lögum frá
1978.
Auk þessarar deildaskiptingar eru nokkur verksvið sem starfa utan við
deildaskiptinguna:
Gróðurrannsóknir og gróðurkortagerö,
Fæðurannsóknir,
Tölfræðilegir útreikningar.
Þegar búnaðardeild hóf störf fyrir rúmum 40 árum var aöeins einn sér-
fræðingur ráðinn að stofnuninni. Þegar hún var lögð niður störfuðu við
deildina 10 sérfræóingar. 1 dag starfa við Rannsóknastofnun landbúnaðarins
26 sérfræðingar og 18 aörir háskólamenntaðir menn. Aukning mannaflans hefur
verið mest síðustu 10 árin og þó sérstaklega eftir að hin s.k. þjóðargjöf
kom til sögunnar, en hún gerði það mögulegt að ráða menn til starfa á svið-
um, sem áður hafði lítið sem ekki veriö sinnt. Ekki má heldur gleyma að
ýmsir aðilar aðrir hafa styrkt stofnunina bæði með tækjakosti og beinum
fjárframlögum. Nefna ber FAO, IAEA og Kellogg-stofnunina. Málum er nú svo
komiö að stofnunin er vel búin tækjakosti til flókinna og margbreytilegra
rannsókna og starfsmenn vel hæfir hver á sínu sviði. Mikil breyting hefur
oróið á starfsháttum stofnunarinnar á síðustu árum. Meðan starfsmenn voru
fáir unnu menn mest útaf fyrir sig en með auknum mannafla hefur hópvinna
setið í fyrirrúmi. Mörg verkefni sem nú er unnið að væru óframkvæmanleg
nema í hópvinnu. Má þar nefna Beitarverkefnið með stóru B.
Fullyrða má, að stofnunin er nú þannig í stakk búin, að hún gæti leyst
flest þau verkefni, sem fram kunna að koma. Það er því hlálegt, að um það