Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Page 6
Helgarblað 21.–25. apríl 20166 Fréttir
Svifryksmælirinn
rauk upp í rokinu
n Mengunartoppur við Grensásveg n Mengunarkvótinn fyrir árið að klárast
A
far slæm loftgæði voru við
Grensásveg í Reykjavík
seinnipart síðastliðins
sunnudags þegar mjög
hár svifryksmengunar
toppur birtist í loftgæðamæling
um Umhverfisstofnunar. Ekki þurfti
meira til en smá hvassviðri til að
svifryksmengun fór upp úr öllu
valdi. Sérfræðingur hjá Umhverfis
stofnun segir Reykjavík koma illa
undan vetri. Árskvótinn, sem svifryk
má fara yfir heilsuverndarmörk í
Reykjavík, er að verða búinn nú
þegar aprílmánuður er hálfnaður.
Svifrykstoppur í rokinu
„Þetta var heilmikill toppur þarna
á Grensásvegi sem skýrist fyrst og
fremst af því að það fór að hvessa
eftir hádegi svo ryk og drulla fór
að fjúka upp,“ segir Þorsteinn Jóns
son, stjóri loftmengunarteymis
Umhverfisstofnunar. Þegar verst
var á sunnudag sýndi loftgæða
mælir Umhverfisstofnunar við
Grensásveg svifryksmengun upp
á ríflega 683 µg/m3 um klukkan
17.00 – langt yfir öllum viðmiðum.
Á tímabilinu frá klukkan 15–20 á
sunnudag fór svifryksmengun tólf
sinnum yfir 100 µg/m3, og voru
loftgæði þá slæm. Líkt og Þorsteinn
bendir á hafði hvesst verulega í
Reykjavík á þessum tíma með þeim
afleiðingum að ryk, sandur og
óhreinindi af götum borgarinnar
þyrluðust upp með tilheyrandi
skaðlegum áhrifum á loftgæðin á
völdum stöðum.
Kemur illa undan vetri
Til að átta sig á því hversu hár þessi
toppur var má benda á að góð loft
gæði miðast við það þegar styrkur
svifryks, þar sem agnir eru undir
10 µm, mælist 0–50 µg/m3 á sólar
hring. En við 50–100 µg/m3 eru
loftgæði skilgreind sem sæmileg
en geta valdið því að einstaklingar
með astma finni fyrir einkennum.
Slæm loftgæði eru ef gildin ná 100–
150 µg/m3 og er þá mælt með að
einstaklingar með ofnæmi eða
alvarlega hjarta eða lungnasjúk
dóma forðist að vera úti og nálægt
miklum umferðargötum. Þegar
styrkurinn er orðinn meira en 150
µg/m3 geta einstaklingar sem ekki
eiga við vandamál í öndunarfærum
að stríða fundið fyrir óþægindum.
„Þetta var kannski ekki snjó
þungur vetur en það var viðvar
andi snjór frá nóvember og fram að
vori. Bílar á nagladekkjum, göngu
stígar mikið sandaðir og þess háttar
þannig að borgin kemur bara mjög
illa undan vetri,“ segir Þorsteinn.
„Það er ryk og sandur af götum,
göngustígum og bílastæðum og svo
gatnaslit sem er að fjúka upp.“
Árskvótinn að verða búinn
Þorsteinn segir ekki algengt að
svona gríðarháir toppar, eins og
sást á sunnudag, mælist, en það sé
þá sérstaklega á þessum árstíma.
„Það sem heilbrigt fólk finnur fyrir
eru fyrst og fremst óþægindi, maður
finnur þetta í augunum og bryður
nánast sandinn milli tannanna.
Þessi mörk eru 50 µg/m3 fyrir sól
arhringinn. Það eru engin mörk til
fyrir klukkutímann en svona topp
ar gera að verkum að sólarhringur
inn fer yfir heilsuverndarmörk. Ég
held að sólarhringurinn á sunnu
dag hafi verið 80 µg/m3, en mörkin
liggja við 50.“ Samkvæmt reglugerð
mega sólarhringsmörkin í Reykja
vík fara sjö sinnum yfir 50 µg/m3 á
ári. Þorsteinn segir að það sem af er
ári hafi þau farið að minnsta kosti 5
til 6 sinnum yfir mörkin.
Endurskoða sparnaðaraðgerð
Líkt og DV greindi frá á dögunum
ákvað umhverfis og skipulags
svið Reykjavíkur að hætta þvotti á
húsagötum við vorhreinsun sína í
ár í sparnaðarskyni. Svo virðist sem
það kunni að breytast. Sparnaður
inn hefði falið í sér að göturnar yrðu
aðeins sópaðar einu sinni en ekki
þvegnar með vatni og sópaðar aft
ur. Átti þetta að spara 3,5 milljónir
króna. Vatnsþvotturinn sem til stóð
að skera niður tekur ryk og sand úr
götukantinum sem sópurinn nær
ekki til og síðan er drullunni sópað
upp í annarri umferð. Reyndur
verktaki, sem sinnt hefur þessum
verkefnum undanfarin ár, sagði í
samtali við DV að borgar búar yrðu
varir við aukinn óþrifnað og spáði
því að loftgæði gætu versnað.
Ákvörðunin var gagnrýnd
harðlega og lét Dagur B. Eggerts
son borgarstjóri hafa það eftir sér
í fréttum RÚV fyrir helgi að ekki
yrði dregið úr þrifum á götum ef
talið væri að það myndi stuðla að
auknu svifryki. Málið hafi verið
rætt í borgar ráði í síðustu viku,
Dagur hafi rætt við umhverfis og
skipulagssvið þar sem samstaða
hafi verið um að draga ekki úr
þvotti á kostnað loftgæða. n
„Það er ryk og
sandur af götum,
göngustígum og bíla-
stæðum og svo gatnaslit
sem er að fjúka upp.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Slæm loftgæði Hinn gríðarhái mengunar-
toppur sem mældist við Grensásveg á sunnudag
sendi sólarhringsgildin yfir heilsuverndarmörk.
Nú er mengunarkvótinn fyrir árið að klárast.
09.00 12.00 15.00 18.00 21.00
683 µg/m3
0
Svifryk í Reykjavík Hér má sjá hvernig svifryksmengunarmælirinn við Grensásveg rauk
upp seinnipartinn síðastliðinn sunnudag. Hæsta gildið nær 683 µg/m3. Mynd REyKJaviK.iS
Svifryk í
Reykjavík
í apríl er beikonbátur
bátur mánaðarins
Hafnargötu 62, keflavík / pöntunarsími 421 4457
Með beikoni, skinku, osti,
káli, tómötum, gúrkum,
papriku, Olsen sósu og
kryddi. Gos fylgir
6” bátur - 795 kr.
12” bátur - 1.295 kr.