Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Page 23
Helgarblað 21.–25. apríl 2016 Kynningarblað - Í góðum málum 3
Litagleði: Fagmennska í
stórum og smáum verkum
L
itagleði er afar öflugt alhliða
málningarþjónustufyrirtæki
sem hefur starfað frá árinu
1996 og fagnar því tvítugs-
afmæli á þessu ári. Að sögn
eigandans, Kristjáns Aðalsteinsson-
ar, eru verkefni þeirra allt frá bað-
herbergjum í einkaíbúðum upp í
utanhússverkefni á borð við versl-
unarmiðstöðina Kringluna. Starfs-
mannafjöldi fyrirtækisins er misstór
eftir árstíðum en nú fer brátt í hönd
annasamasti tíminn, sumarið.
Litagleði hefur yfir að ráða þrem-
ur körfubílum sem koma sér vel við
mörg stærri verkefni þar sem vinna
þarf í mikilli hæð. Sem dæmi er fyr-
irtækið núna að vinna við hús að
Klapparstíg 1, sem er 12 hæða. Hús-
ið tilheyrir hinum svokallaða Völ-
undarhússreit en Litagleði hef-
ur unnið að málun þessara húsa
undanfarin fjögur ár. Körfubílarnir
eru í stanslausri notkun yfir sumar-
tímann.
Litagleði sinnir auk þess ýmsum
smærri verkum, til dæmis málun
einbýlishúsa og annars íbúðarhús-
næðis. Eru gerð bindandi verðtilboð
í verk eftir skoðun og uppmælingu.
Um þessar mundir er nafn fyrir-
tækisins Litagleði sérlega viðeigandi
því mjög hefur borið á aukinni lita-
gleði viðskiptavina. Er það sama saga
og aðrir í bransanum hafa að segja,
að fólk er að verða djarfara í litavali.
Kristján bendir á að þetta gangi allt
í hringi, litirnir séu í raun að koma
aftur, og nefnir sem dæmi hús að
Kleifarvegi sem Litagleði málaði, en
húsið er afar fallega appelsínugult.
Liturinn er hins vegar upprunalegur
og Kristján uppgötvaði hann undir
málningarlögum.
Litagleði leggur þunga áherslu
á ýtrustu fagmennsku við verk sín
og býr að áratugareynslu en Krist-
ján tók sveinspróf í málaraiðn árið
1988, fékk meistaraskírteini sitt árið
1991 og gekk sama ár í Málarameist-
arafélagið. Hann stofnaði síðan Lita-
gleði árið 1996 og fyrirtækið hefur
vaxið og dafnað síðan. Kristján fékk
löggildingu til að bera ábyrgð á verk-
þáttum við byggingarframkvæmd-
um, sbr. einnig ákvæði iðnaðarlaga
nr. 42/1978, með þeim réttindum og
skyldum sem því fylgir samkvæmt
lögum.
Auk málningarvinnu býður
Litagleði upp á háþrýstiþvott og
sprungu- og steypuviðgerðir. Ítar-
legar upplýsingar og gott safn af ljós-
myndum af verkefnum fyrirtækisins
er að finna á heimasíðunni, litagledi.
is, og á Facebook-síðu fyrirtækisins.
Litagleði er til húsa að Otra-
teigi 30, 105 Reykjavík. Hægt er að
senda fyrirspurnir á heimasíðunni,
litagledi.is, en einnig er gott að hafa
samband í síma 893 1955 eða senda
tölvupóst á litagledi@litagledi.is n
Unnið við skrif-
stofur Alþingis.
Mynd © KristjAn AdAlsteinsson
Appelsínugula
húsið komið
aftur í upp-
runalega litinn.
sendiherrabústaður
í london eftir vinnu
litagleði.