Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Page 24
Helgarblað 21.–25. apríl 20164 Í góðum málum - Kynningarblað Fyrirtak málningarþjónusta: Allt almennt fasteignaviðhald F yrirtak málningarþjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækj- um, stofnunum, húsfélög- um og heimilum til margra ára. Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fasteign- um, jafnt að innan sem utan. Ámundi S. Tómasson er fram- kvæmda- og verkefnastjóri Fyrirtaks en hann hefur rekið fyrirtækið með góðum árangri í mörg ár. Nú hef- ur reynsluboltinn Hilmar Sigurðs- son málarameistari gengið til liðs við hann og saman búa þeir að ómet- anlegri reynslu í málun og viðhaldi húsa. Fagmenn í öllum verkhlutum „Hjá fyrirtækinu starfa reynd- ir iðnaðarmenn sem leggja metnað sinn í fagmennsku, snyrtimennsku og áreiðanleika. Einnig starfa þar múrarar og smiðir og saman geta þeir leyst öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi húsa,“ seg- ir Ámundi. „Við hjá Fyrirtaki tökum að okkur allt almennt viðhald á fast- eignum eins og t.d. gluggaviðgerðir og glerísetningar. Ef glugginn er far- inn að fúna er nauðsynlegt að laga fúann áður en málað er. Við gerum við glugga með því að saga fúa í burt og setja nýtt fúavarið timbur í stað- inn (sponsa glugga). Gluggaviðgerð- ir og glerísetningar krefjast mikillar nákvæmni og rétts handbragðs. Við bjóðum upp á þessa þjónustu og get- um líka leiðbeint og aðstoðað.“ Málning á bæði að verja og fegra Reglulegt viðhald á fasteignum borg- ar sig. Málning er oftar en ekki eina vörnin fyrir veðri og vindum. Máln- ing á bæði að verja og fegra. Utan- húss veðrast fletir hratt fyrir áhrif sólar, veðurs og vinds. Með reglu- legu viðhaldi er hægt að verja fast- eignina og koma í veg fyrir dýrar framkvæmdir eins og t.d. gluggavið- gerðir, viðgerð á steini og þaki. Fyr- irtak vinnur eingöngu upp úr góð- um málningarkerfum og farið er eftir þeim kerfum sem reynst hafa best við íslenska veðráttu. Þjónum fyrirtækjum, stofnun- um og húsfélögum Fyrirtak málningarþjónusta ehf. hef- ur þjónað fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og heimilum til margra ára. Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fasteignum, jafnt að innan sem utan,“ segir Ámundi. Fyrirtak málningarþjónusta Sími: 770-7997. fyrirtak@fyrirtak.is www.fyrirtak.is Þjónum fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.