Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Síða 27
Helgarblað 21.–25. apríl 2016 Kynningarblað - Í góðum málum 7 Málningarþjónustan á Selfossi: 50 ára afmæli framundan Þ ann 6. júní næstkomandi fagnar Málningarþjón­ ustan á Selfossi hálfrar aldar afmæli sínu og er því óhætt að gera því skóna að fyrirtækið sé með þeim elstu sinnar tegundar á landinu. Steindór Páls­ son málarameistari segir lesendum DV frá því að stofnandi fyrirtækis­ ins, Páll Árnason, hafi lært að mála hjá Kaupfélagi Árnesinga á sínum tíma en hafi síðan vent sínu kvæði í kross, stofnaði eigið fyrirtæki og var þar með kominn í samkeppni við sjálft Kaupfélagið. Málningar­ þjónustunni vel tekið frá fyrsta degi „Það þurfti áræðni og hugrekki fyrir einyrkja að fara þessa leið,“ segir Steindór. „Fyrsta haustið sem Páll starfaði sjálfstætt var hann með málningar­ flokk sem samanstóð af þremur til fjór­ um mönnum, en nú árið 2016, hafa yfir hundrað manns starfað hjá fyrir­ tækinu í gegnum tíðina, í lengri eða skemmri tíma. Það var hvorki sjálfgefið né auð­ velt að fara út í samkeppni við Kaupfélag Árnesinga á sín­ um tíma og má því segja að Páll hafi verið brautryðjandi hvað það varð­ ar. Viðskiptavinirnir voru frá upp­ hafi bæði einstaklingar og fyrirtæki á Selfossi og nágrenni.“ Rótgróið og traust fjölskyldufyrirtæki Að sögn Steindórs hefur Málningar­ þjónustan á Selfossi lengst af verið í viðskiptum við Málningu hf., þó svo að fleiri birgjar hafi nú bæst við. „Það er vissulega búið að vera mjög gaman að starfa við þetta fyrirtæki. Og í gegnum það hefur maður kynnst fjöldanum öllum af skemmtilegu og góðu fólki. Við höfum mikið starfað um landið vítt og breitt en þó mest á Suður­ landinu. Það er gefandi að starfa hjá rótgrónu og traustu fjölskyldu­ fyrirtæki sem er í dag með dreifða eignaraðild meðal starfsmanna sem sumir hverjir hafa starfað hér áratugum saman. Í tilefni tíma­ mótanna langar mig til þess að þakka öllum okkar traustu við­ skiptavinum fyrir samstarfið svo og starfsmönnum fyrirtækisins í gegnum tíðina,“ segir Steindór. n Málningarþjónustan á Selfossi Gagnheiði 47 800 Selfoss Sími: 899-1775 Málningarþjónustan á Facebook

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.