Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Síða 44
Helgarblað 21.–25. apríl 201636 Fólk Þau Þjást af sviðsskrekk Það er ekki tekið út með sældinni að vilja vera í sviðsljósinu en hafa ekki taugar í það. Þessi hafa öll þurft að sigrast á sviðsskrekk. Lady Gaga Það kann að virðast ótrú- legt en söngkonan Lady Gaga segist verða mjög taugaóstyrk á sviði, bæði þegar hún heldur tónleika og á verðlaunahátíðum. myndir epa Beyoncé Hún hefur fyrir löngu sýnt og sann- að að hún er í hópi stærstu popp- stjarna okkar tíma, en á sínum tíma bjó athafnakonan Beyoncé sér til hliðarsjálf – Sasha Fierce. Hún brá sér svo í gervi hennar þegar athyglin eða sviðsskrekkurinn fór að angra hana. Sasha varð til þegar hún vann að þriðju plötu sinni, sem hét einmitt I am … Sasha Fierce. Adele Allt sem Adele gerir virðist verða að gulli og hún þykir ein besta og efnilegasta söngkona okkar tíma. Það er uppselt á alla tónleika hennar, en það stappar nærri kraftaverki að samstarfsfólk hennar komi henni á svið fyrir hverja tónleika. Hún segist gráta, kasta upp og grátbiðja þau um að leyfa henni að sleppa tónleikunum. Þegar hún er svo komin á sviðið leikur allt í höndunum á henni, en hún segist dauðhrædd við aðdáendur sína á sama tíma og hún elski þá. Amanda Seyfried Leikkonan Amanda Seyfried segist þurfa að drekka í sig hugrekki fyrir spjallþætti. Hún þarf reglulega að heimsækja hina ýmsu sjónvarps- og spjallþætti og segir að það sé alltaf jafn óþægilegt. Hún segir að nokkrir gráir hjálpi sér mikið en viðurkennir að það sé ekki til eftirbreytni. Andre 3000 Sem hluti af hipphopp- tvíeykinu OutKast er Andre 3000 sérstaklega vanur að standa á sviði og koma fram, en honum fannst skyndileg frægð OutKast óþægileg og dró sig til hliðar vegna þess. Sia Tónlistarkonan Sia felur andlit sitt á alla þá vegu sem hún getur þegar hún kemur fram opinberlega. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vill vera tónlistarkona sem semur lög, syngur og skemmtir en hún vill ekki vera þekkt. Hún segist vilja eiga líf utan sviðsljóssins og er þetta tilraun til þess. Söngkonan hefur þó ekki alltaf hulið andlit sitt og kom á árum áður fram undir nafni og mynd. Hún segir að hún þjáist að auki af miklum sviðsskrekk og að þessi feluleikur auðveldi henni að stíga á svið. Hayden Panettiere Hún hefur verið í sviðsljósinu frá barnsaldri, en leik- og söngkonan Hayden Panettiere segist aldrei venjast því. Hún leikur nú kántrísöngkonu í sjónvarpsþáttunum Nashville og segist verða mjög óörugg þegar henni er ætlað að syngja fyrir framan stóra hópa. Barbra Streisand Árið 1967 hlekktist Barbra Streisand á í texta á tónleikum sem haldnir voru í Central Park í New York. Í kjöl- farið kom hún ekki fram opinberlega sem söng- kona á sviði að neinu ráði fyrr en 1994. Hún segist hafa verið undir miklu álagi á þessum tíma, en ákvað að halda áfram að leika. Heilunarskóli & ýmis námskeið Sími 517 4290 Erum á Facebook Gleði - Friður - Hamingja Nýjaland

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.