Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Side 51
Áramótablað 30. desember 20166 Völvuspáin 2017 uppnám á spítalanum Ástandið á Landspítalanum mun skána lítið sem ekkert. Völvan sér sjúklinga enn í rúmum frammi á göngum og í einstaka tilfellum á kaffistofum. Starfsfólk á spítalan­ um mun ítrekað mæta í fjölmiðla og benda á ástandið og hið sama munu sjúklingar gera. Langlundar­ geð starfsfólks LSH mun þrjóta eft­ ir margra ára fjársvelti. Hjúkrunar­ fræðingar, ásamt fleiri stéttum, munu sjá hag sínum betur borg­ ið utan stofnunarinnar. Uppsagn­ ir munu byrja að hrannast inn til stjórnenda þegar á vormánuðum. ár ney tenda Völvan telur að árið 2017 verði ár neytandans. Neytendur rakna úr rotinu og vakna til vitundar um að okur hefur þrifist í flestum kimum íslenskrar verslunar. Frá því eru undan­ tekningar og völvan nefnir IKEA sem dæmi, en þaðan er stofusófinn hennar greinilega kominn. Neytendur segja versl­ uninni stríð á hendur á árinu og í fjarska sér völvan ný neytendasamtök verða til. Óvæntur en kærkominn kandídat stígur fram sem nýr og öflugur málsvari al­ mennings í neytendamálum. Tilkoma Costco mun skilja ís­ lenska heildsala eftir í blóði sínu, neytendum til heilla. Menn sem leg­ ið hafa á meltunni um árabil munu þurfa að finna sér nýjar matarholur. Eldsneyti sem Costco selur á verði sem hefur ekki sést á Íslandi í ára­ raðir mun leiða til þess að hrikta mun í stoðum stórra aðila á elds­ neytismarkaði. Völvan sér skarpa lækkun á eldsneytisverði í upphafi sumars og dramatískar breytingar á rekstrarumhverfi olíufélaga. Gömlu risarnir munu berjast fyrir stöðu sinni til síðasta dísildropa – jafn­ vel fyrir dómstólum. Samkeppnis­ eftirlitið mun fá risastórt samráðs­ mál í fangið, sem tengist komu Costco. Raftækjaversl­ anir munu einnig finna fyrri kaldri kló bandaríska smásölurisans, rétt eins og fataverslanir. Þeir neytendur sem binda vonir við að tilkoma H&M muni fella fataverð munu verða fyrir sárum vonbrigðum. Costco mun þar hafa mun meiri áhrif og koma sem hvirf­ ilbylur inn á ólíklegustu markaði. Margir verða sárir. Með vorinu sér völvan hatrammt áróðursstríð gegn ameríska risanum hefjast. síðustu jól IKea- geItarInnar Það er gott yfir IKEA að öðru leyti en því að komið er að ögurstund hjá hinni margfrægu geit sem þar er reist fyrir jólahátíðina. Eftir funda­ höld hjá eigendum IKEA hér á landi verður ákveðið að reisa hana að nýju, þrátt fyrir efasemdir um að hún komist ósködduð frá því. Að gömlum íslenskum sið verður geitin síðan brennd af dólgum á öðrum eða þriðja degi. Hún mun ekki rísa aftur. IngIbjörg opnar sIg Fjölmiðlar munu fjalla um frek­ ari kaup Ingibjargar Pálmadóttur, stærsta hluthafa 365 miðla og eig­ inkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, á hlutabréfum í verslunarris­ anum Hög­ um. Tilraun­ ir hennar til að auka við hlut sinn í fyrirtækinu munu vekja athygli um mitt ár og hleypa lífi í umfjöllun um annars daufan júlímánuð í Kaup­ höll Íslands. Þetta mun leiða til þess að Ingibjörg verður í stóru viðtali þar sem hún mun opna á ýmis göm­ ul mál sem tengjast hruninu og eft­ irmálum þess. Ekki þarf sérstaka skyggnigáfu til þess að sjá að þau ummæli munu víða falla í misjafnan jarðveg, segir völvan og kímir. FIve gu ys hIngað tIl lands Þá mun bandaríska hamborgara­ keðjan Five Guys bætast í skyndi­ bitaaflóru landsins þrátt fyrir að mörgum þyki nóg um. Græn­ metisætur og aðrir grasbít­ ar geta þó huggað sig við það að McDonald's og Burger King koma ekki. Þegar völva DV horfir inn í skyndibitaheim næsta árs blasir einnig við að erlendir eigend­ ur Coca­Cola Europe­ an Partners Ísland ehf., áður Vífilfells, munu draga úr framleiðslu á sykruðu gosi en aftur á móti flytja inn sömu vörur frá Evrópu. Margir munu óttast að „íslenska kókið“ hverfi, og ekki að ástæðulausu, en það gerist þó ekki. bIrna úr ís- landsbanKa Ólíkt kókinu þá mun Birna Einars­ dóttir hverfa, það er að segja úr stól bankastjóra Íslandsbanka. Birna varð ansi óhress þegar ríkið eignað­ ist bankann og héldu margir að hún myndi í kjölfarið segja upp. Birna mun þó áfram vera áberandi í ís­ lensku viðskiptalífi en eitthvað er fram­ tíð hennar hulin að því leytinu til að völvan sér ekki hvort hún mun taka við stjórnunarstöðu hjá einu af stóru tryggingafélögunum eða greiðslukortafyrirtækinu Valitor. erlendIr aðIlar eIgn- ast í arIon Fleiri stórar fréttir munu berast úr bankageiranum en þó engin stærri en sú þegar erlendir aðilar eignast minnihluta í Arion banka. Eignarhaldsfélagið Kaupþing, sem á 87 prósenta hlut í bankanum, verð­ ur gagnrýnt fyrir þá sölu af öllum frá þingmönnum og niður í virka í athugasemdum en aðrir, þar á með­ al Bjarni Benediktsson forsætisráð­ herra, benda á kosti þess að bank­ inn sé að hluta til í eigu útlendinga. FjölmIðlar spjara sIg Völvan er spurð um fjöl­ miðla og segir hún að fjölmiðlaumhverfið sé sannarlega erfitt en fjöl­ miðlarnir muni spjara sig þokkalega, þrátt fyr­ ir stöðugar kröfur um sparnað og hagræðingu. Fjölmiðlar verða sumpart í stuði á árinu og munu afhjúpa fleiri neytenda­ mál af þeirri stærðargráðu sem Brúneggjamálið var. Neytendur munu snúa baki við þekktum fram­ leiðanda í matvælaiðnaði. Völv­ an sér verksmiðjuframleidd svín hlaupa um í for, í fyrsta sinn, fyrir tilstilli almennings. helgI seljan hverFur Frá rúv Hjá RÚV verður allt nokkurn veginn í sóma, fyrir utan stormasöm sam­ skipti fréttastofunnar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Uppákoma mun svo verða þegar Helgi Selj­ an missir stjórn á sér í Kastljósþætti og hellir sér yfir ráðherra í beinni útsendingu. Völvan segir að sér sýnist það verða vegna ástands á Landspítalanum, sem Helgi telji stjórnvöld bera ábyrgð á. Ofsi Helga verður það mikill að ráð­ herrann yfirgefur mynd­ verið. Útvarpsstjóri veitir Helga áminningu sem hann tekur svo illa að hann segir starfi sínu lausu. 365 miðlar gera honum umsvifalaust tilboð sem hann tek­ ur. ljúffengur morgunmatur alla daga Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk. Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is Opið virka daga frá 07:30–18:00 og um helgar frá 09:30–18:00 gamla höfnin
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.