Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Page 84
Áramótablað 30. desember 2016 Fréttir 65
Öfgar í stjórnmálum og veðurfari
Velgengni í golfi Síðla árs tryggði Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir sér sæti á LPGA-mótaröðinni, sterkustu atvinnu-
mannamótaröð í heimi. Þetta er besti árangur sem íslenskur
kylfingur hefur náð. Mynd ÞorMar Vignir
Kosningar Pírötum hafði vegnað sérstaklega vel í skoðanakönnunum. Kjörfylgið náði ekki slíkum
hæðum, en flokknum gekk engu að síður vel, náði 14,5 prósentum atkvæða og tíu þingmönnum. Mynd Sigtryggur ari
Austurvöllur Eftir að fyrstu upplýsingar birtust um tengsl íslenskra ráðamanna við aflandsfélög brutust út mótmæli á Austurvelli. Mótmælin eru af
mörgum talin vera þau fjölmennustu í Íslandssögunni. Mynd Sigtryggur ari
Nýr forsætisráðherra Í kjölfar birtingar
Panama-skjalanna þurfti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að víkja
úr embætti forsætisráðherra. Sigurður Ingi Jóhannsson tók við og
ákveðið var að kosningum skyldi flýtt. Mynd Sigtryggur ari
Húh! Íslenska landsliðið og áhorfendur gerðu hið svokallaða
víkingaklapp heimsfrægt. Mynd epa
Guðni kynnir framboð Örtröð myndaðist í og við Salinn í Kópavogi þegar Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti
forsetaframboð sitt í maíbyrjun. Ljóst mátti vera að mikill áhugi var á framboði Guðn
a. Mynd Sigtryggur ari
Stjórnarmyndun Erfiðlega hefur gengið að mynda starfhæfa ríkisstjórn eftir kosningar. Viðræður hafa staðið flokka á milli sem ekki sér fyrir endann
á. Hér gengur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, af fundi með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Mynd Sigtryggur ari