Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Page 95

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Page 95
Áramótablað 30. desember 201676 Lífsstíll Átta áramótaheit sem þú ættir að forðast n Settu þér raunhæf markmið sem þú ræður við n Ekki stilla þér upp við vegg N ýtt ár færir okkur möguleik- ann á nýju upphafi. Það er eitthvað freistandi við að núllstilla sig um áramótin og skilja slæma ávana eft- ir í gamla árinu og taka upp nýja og betri á því nýja. Hefja vegferð í átt að betra lífi og bættu sjálfi. Þess vegna strengjum við gjarnan áramótaheit. Hvort heldur sem um er að ræða að koma sér í betra form, taka sig á í sambandsmálum eða fjármálum, þá er mikilvægt að falla ekki í alræmd- ar gildrur sem reynslan hefur sýnt að leynast víða. Ekki stilla þér upp við vegg þar sem þú ert dæmd/ur til að mistakast, heldur settu þér raunhæf markmið sem þú ræður við. Hér eru nokkur góð dæmi um áramótaheit, sem þú ættir að forðast. 1 Að einblína á tiltekna tölu á vigtinni Ekki gleyma þér í tölum. Ef þú setur þér af- arkosti í að léttast þá getur þú lent í vand- ræðum. Ef þú nærð ekki markmiðum þínum eins fljótt og þú hafðir ætlað þér getur það dregið úr þér sjálfstraust og fælt þig frá verk- efninu. Annað sem mikilvægt er að hafa í huga er að ef þú byrjaðir að lyfta lóðum og hreyfa þig samhliða þessu þá munt þú missa fitu og byggja upp vöðvamassa í leiðinni. Þú gætir því þyngst eilítið enda vöðvar þyngri en fita. Í stað þess að einblína á kílógrammatölu, er mælt með að þú fylgist frekar með hvað þú missir marga sentímetra af ummáli eða hvort þú komist aft- ur í raunhæfa stærð af gömlum gallabuxum. 2 Óljós heit um að verða „betri“ Að verða „betri“, hvort sem það er manneskja eða í einhverju, hljómar vel en getur verið dæmt til að mistakast. Sérfræðingar hafa kallað þetta mið- stigs-gildruna. Ára- mótaheit um að verða betri, heil- brigðari, duglegri o.s.fv. eru dæmi um þetta. Þetta er óljóst og þú átt á hættu að vita ekki hvenær þú hefur gert nóg til að ná markmiði þínu. Ef þú vilt til dæmis vera „betri vinur/ vinkona“ á nýju ári, settu þér frekar það markmið að skipuleggja fleiri samverustundir eða gera eitt- hvað fallegt fyrir vin þinn eða vinkonu. Þá ertu komin/n með eitthvað mælanlegt sem þú get- ur hakað við á listanum þínum. 3 Að heita því að hætta að borða kolvetni eða fitu Margir af vinsælustu megrunar- kúrum dagsins í dag snúast um að taka alfarið út kolvetni eða fitu úr mataræðinu. Slíkar öfgar ber að var- ast. Við þurfum þetta allt. Kolvetni, prótín og svokallaða góða fitu til að koma okkur í form og byggja upp heilbrigðan líkama. Með því að taka alfarið út kolvetni ertu að svipta lík- amann mikilvægum orkugjafa. Í stað þess að kippa kolvetnum og fitu alfarið út, kynntu þér frekar hvern- ig þú tekur inn góð kolvetni og góða fitu og forðastu annað. 4 Að heita því að koma skipulagi á ALLT Það hljóm- ar vel og skipulag er nú einu sinni jákvæður eigin- leiki að flestra mati. En þetta markmið er óljóst og víð- tækt. Að koma skipulagi á líf sitt er enda ansi metnaðar- fullt verkefni. Sér- fræðingar ráðleggja fólki að hólfa markmiðið niður í fleiri og smærri einingar í stað þess að setja áramóta- heitið yfir líf sitt eins og stóra regn- hlíf. Smættuð markmið í þessa veru geta verið að þrífa, taka til í og koma skipulagi á einn skáp á heimilinu í viku. Brellan er sem fyrr að setja til- tekið markmið sem er nógu raun- hæft til að ná svo þú sjáir árangur. 5 Að kaupa árskort í rækt-ina (ef þú hatar ræktina) Margir telja að bara það að eiga kort í ræktina muni veita þeim þann inn- blástur sem þarf til að raunverulega mæta í ræktina og hreyfa sig reglu- lega – jafnvel þótt þeir hafi óbeit á ræktinni. Sérfræðingar vara þó við því að það er nógu erfitt að fylgja æf- ingaprógrammi án þess að bæta því ofan á að þurfa að draga sjálfan sig í ræktina án þess að vilja vera þar. Lykillinn er að finna eitt- hvað við hæfi sem hentar þínu áhugasviði. Einhverja hreyfingu eða æfingu sem hjálpar þér að styrkjast og líða betur í eigin lík- ama. Þú ert mun líklegri til að æfa reglulega ef þú hefur gaman af því sem þú ert að gera. Það getur ver- ið allt frá því að fara á skauta, hjóla, ganga, synda eða dansa. Margt sem kostar lítið eða hreinlega ekkert. 6 Að setja æfingamarkmið umfram núverandi getu Þegar kemur að því að setja þér æf- ingamarkmið, ekki gleyma að taka með í reikninginn núverandi lík- amlegt ástand þitt. Sérfræðingar taka sem dæmi, ef þú getur vart geng- ið kílómetra án þess að blása eins og hvalur á þurru landi, ekki strengja áramóta- heit um að hlaupa maraþon. Byrjaðu smátt og hlust- aðu á líkama þinn í markmiðasetn- ingu. Að vinna sig upp úr sófan- um upp í 5 kílómetra getur verið góð byrjun fyrir þá sem vilja byrja að hlaupa. Ef þú ætlar þér of mikið áttu alltaf á hættu að ná ekki háleit- um markmiðum og þar með missa áhugann til lengri tíma. Og það sem verra er, átt á hættu að slasa þig. 7 Að endurvinna gömul áramótaheit Ef þú átt óupp- fyllt áramótaheit frá því á síðasta ári, farðu varlega í að endurnýja þau fyr- ir það næsta. Mælt er með að þú spyrj- ir þig að því hvort þú ætlir þér raunveru- lega að fram- kvæma þau núna eða hvort þú sért aðeins að stilla þér upp til að vanrækja þau eða mistakast á ný. Þetta á sérstaklega við um áramóta- heit sem þú hefur verið að vinna með mörg ár í röð. Taktu þér frekar pásu og einbeittu þér að öðru ef þú hefur ekki undirbúið þig vel og finn- ur ekki fyrir hvatningunni og viljan- um til að klára málið. 8 Neikvæða merkingu orða Hætta að drekka kaffi, ekki horfa á sjónvarpið, forðast að borða eftirrétti. Stundum snýst þetta bara um orðalag áramótaheita. Með því að taka neikvæða afstöðu til ein- hvers getur gert þér erfiðara um vik að ná settu marki. Þegar þú orð- ar markmið þín á neikvæðan hátt þá ertu að beina allri athygli þinni og orku á það sem þú ert að reyna að forðast, sem veitir þér ekki þá hvatningu eða leiðsögn sem þú þarf. Mælt er með að orða markmið sín á jákvæðan hátt. „Vera nógu heilbrigð/ur til að geta hlaup- ið 5 kílómetra“ eða „Byrja hvern dag á vatnsglasi“ – þetta beinir athygli þinni og vegferð áfram veginn. Traust fasteignaviðskipti og persónuleg þjónusta - þinn lykill að nýju heimili 414 6600 | nyttheimili.is FRÍTT SÖLUMAT Reynir Eringsson 820 2145 Skúli Sigurðarsson 898 7209 Guðjón Guðmundsson 899 2694 Fasteignasala Leigumiðlun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.