Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Page 97

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Page 97
Áramótablað 30. desember 201678 Fólk Einu eggin á neytendamarkaði með löggilda vottun Lífrænu hænurnar hjá Nesbúeggjum • Fá lífrænt fóður • Fá mikið pláss • Njóta útiveru nesbu.is NESBÚ EGG Stjörnurnar Sem komu árið 2016 n Stórmynd tekin upp á Ströndum n kardashian-klíkan mætti n Bláa lónið alltaf vinsælt Í sland var líkt og síðustu ár vin- sælt hjá erlendum stórstjörn- um á árinu 2016 sem böðuðu sig í Bláa lóninu eða héldu tón- leika fyrir fullum húsum. Erlend kvikmyndaver héldu áfram að not- færa sér stórbrotna íslenska nátt- úru sem sviðsmynd fyrir stórmynd- ir frá Hollywood. Sama má segja um ákveðna meðlimi Kardashian-fjöl- skyldunnar. Aðra vikuna í júlí gátu íslenskir stangveiðimenn rekist á Beckham-fjölskylduna við Langá á Mýrum, hitt eina stærstu sam- félagsmiðlastjörnu heims uppi á Langjökli eða setið við hlið Owen Wilson í Leifsstöð. n  Veiddu í Langá David Beckham, Victoria Beckham og fjölskylda lentu á Íslandi þann 7. júlí og tóku hjónin Björgólfur Thor og Kristín Ólafsdóttir á móti þeim við komuna til landsins. Óku þau öll á brott á stórum fjallajeppa og voru Björgólfur og David duglegir við að stunda stangveiði dagana á eftir og þá meðal annars í Langá á Mýrum. Fjölskyldan heimsfræga fór einnig í Þríhnúkagíg og naut náttúrunnar í veðurblíðunni. Hitti fjölskylduna Owen Wilson kom hingað til lands daginn eftir að Bechkam-fjöl- skyldan lenti á einkaþotu sinni á Reykjavíkurflug- velli. Bandaríski stórleikarinn kom hingað til lands til að hitta foreldra sína sem voru hér á ferðalagi. Góðvinur hans, Ben Stiller, hefur margoft komið til landsins og lék aðalhlutverk í myndinni The Secret Life of Walter Mitty sem var að stórum hluta tekin upp hér á landi.  Batman á Ströndum Hollywood-leikararnir Ben Affleck og Jason Momoa komu hingað til lands um miðjan október. Bandaríska kvikmynda- verið Warner Bros stóð þá fyrir tökum á ofurhetjumyndinni Justice League á Ströndum. Affleck leikur í henni hlutverk Bruce Wayne, betur þekktur sem Batman, en Momoa ofurhetjuna Aquaman. Þá kom leikkonan Amber Heard einnig hingað en hún fer með hlutverk Meru frá Atlantis. Þegar tökum hér á landi lauk var haldið mikið partí í Djúpavík á Ströndum þar sem leikararnir gistu.  radiohead og muse Ekki má gleyma meðlimum allra þeirra heimsfrægu hljómsveita og tónlistar- mönnum sem heimsóttu klakann til að halda tónleika. Radiohead spilaði fyrir fullu húsi á tónlistarhátíðinni Secret Solstice ásamt suður-afrísku hljómsveitinni Die Antwoord. Bresku meðlimir Muse fylltu gömlu Laugardalshöllina og Brian Wilson úr Beach Boys spilaði í Hörpu. Þá komu hingað einnig þau James Morrisson, PJ Harvey, Burt Bacharach, Simply Red og Schoolboy Q.  kim og kanye Hjónin Kim Kardashian og Kanye West bættust í hóp Íslandsvina í apríl þegar þau lentu í Keflavík ásamt fríðu föruneyti. Systir Kim, Kourtney, var einnig með í för og ferðaðist hópurinn um Suðurland á sérútbúnum jeppa. Þau heimsóttu meðal annars gróðurhúsið og veitingastaðinn Friðheima, skammt frá Selfossi, og böðuðu sig í Bláa lóninu. Heimsóknin hingað endaði svo í sjónvarpsþáttunum vinsælu, Keeping up with the Kardashians, og myndataka af Kim í flegnum sundbol í Bláa lóninu fór eins og eldur í sinu um netið.  Piparsveinninn mætti Samfélagsmiðlakóngurinn og glaumgosinn Dan Bilzerian lenti á Reykjavíkurflugvelli þann 7. júlí. Hann er einna þekktastur fyrir Instagram-síðu sína þar sem hann deilir myndum af piparsveins- lífsstíl sínum. Skellti hann sér í snjósleða- ferð upp á Langjökul og gisti á The Diamond Suite á Hótel Keflavík sem er ein dýrasta svíta landsins. Þar eru fimm glæsisvítur sem hægt er að leigja saman eða hverja í sínu lagi. Ein nótt í svítunni kostar um eina „Ótrúlega fallegt“ Leikarinn Tyrese Gibson, sem fer með hlutverk Roman í Fast and the Furious, var orðlaus yfir nátt- úrufegurðinni hér þegar hann kom hingað til lands í lok mars. Gibson kom til að leika í myndinni Fast 8 en tökur á henni fóru fram í Mývatnssveit. „Ísland er svo ekta, það er ótrúlega fallegt hérna,“ sagði Gibson í færslu á Instagram. Hitti Guðna Leikstjórinn Darren Aronofsky var heiðraður af kvikmyndahátíð- inni RIFF við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í október. Hitti hann þar meðal annars Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, og rithöfundinn og forsetaframbjóðandann Andra Snæ Magnason. Aronofsky hefur leikstýrt þekktum myndum á borð við Black Swan, The Wrestler og Noah, sem var að hluta til tekin upp hér á landi. Fékk afmælisköku Tónlistarmaðurinn geðþekki Ed Sheeran fagnaði 25 ára afmæli sínu í Gamla fjósinu undir Eyjafjöllum þann 17. febrúar. Þar fékk hann sér steikarsamloku og var mjög viðkunnanlegur við starfsfólk staðarins. Í samtali við Vísi sagði einn starfsmaður Gamla fjóssins að hann hefði gefið Sheeran afmælisköku í tilefni dagsins. Hann var í fylgd með vin- konu sinni og virtust þau skemmta sér mjög vel en þau fóru einnig í Bláa lónið.  Poldark mætti Íslenska leikkonan Heiða Rúna Sigurðardóttir upplýsti í september að allir helstu leikarar bresku sjónvarpsþáttaseríunnar Poldark hefðu heimsótt hana til Íslands. Þau hefðu heimsótt bóndabæ ömmu hennar og Heiða sýnt þeim helstu ferðamannastaði landsins. Eleanor Tomlinson, Jack Farthing, Kyle Soller og Ruby Bentall fara með helstu hlutverkin ásamt Heiðu. Borðaði og borðaði Breski sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver var staddur á Íslandi í febrúar. Oliver, sem hafði áður komið til landsins, kíkti þá meðal annars á veitingastaðina Sægreifann, Grillmarkaðinn og Þrjá Frakka. Líklegt er að hann hafi verið að skoða mögulega keppinauta og kynna sér ís- lenska veitingahúsamarkaðinn en tilkynnt hefur verið að veitingastaður hans muni verða opnaður á Hótel Borg á næsta ári.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.