Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Side 109
Áramótablað 30. desember 201610 Fréttir
Bónusar, Brasilíufangar og sjúskuð gervipíka
1 H&M til landsins Um miðjan apríl greindi DV frá
því að sænska fataverslunarkeðjan
H&M myndi opna verslanir á
höfuðborgarsvæðinu á næstu árum.
Formlegar viðræður milli fasteigna-
félagsins Regins og sænska
fatarisans væru hafnar og leigu-
samningar um verslunarrými í
Smáralind og á Hafnartorgi klárir.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins,
sagði þá í samtali við mbl.is það ekki
rétt að viðræður væru á lokastigi.
Fréttir um væntanlega komu H&M til
landsins væru ekki nýjar af nálinni.
Tæpum þremur mánuðum síðar var
tilkynnt um samkomulag um opnun
verslananna.
Lestur á dv.is: 31.482 Deilingar: 181
Birtist: 12. apríl Fjöldi ummæla: 21
2 Bónusaárið mikla DV greindi í febrúar frá því að íslenska eignaumsýslufélagið ALMC,
áður Straumur-Burðarás, hefði innt af hendi milljarða
króna í bónusgreiðslur til um 20–30 þáverandi og
fyrrverandi starfsmanna félagsins. Stærstur hluti
bónusgreiðslnanna fór til aðeins nokkurra lykilstjórn-
enda ALMC og fengu þeir hver um sig jafnvirði mörg
hundruð milljóna króna í sinn hlut. Í annarri frétt
blaðsins í ágúst kom fram að hópur um tuttugu
starfsmanna eignarhaldsfélagsins Kaupþings geti
fengið úthlutað 1.600 milljónum króna í bónusgreiðslur
ekki síðar en í lok apríl 2018. Að stórum hluta verði um
sömu starfsmenn að ræða og hafa þegar fengið
greiddan bónus upp á tugi milljóna. Að lokum greindi
DV frá því að umfangsmikið bónuskerfi til handa
þremur stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra gamla
Landsbankans (LBI) getur skilað þeim mörg hundruð
milljónum króna í bónus.
Lestur á dv.is (fyrsta frétt): 15.809 Deilingar: 80
Birtist: 16. febrúar Fjöldi ummæla: 15
3 „Dóttir mín sem þið eruð að lýsa eftir“ „Hún spurði mig oft af hverju við gætum ekki bara flutt til Íslands,“ sagði Margrét Fenton, móðir Söndru
Sigrúnar, sem hlaut 37 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum vegna tveggja bankarána sem hún
framdi árið 2013, og lýsti því hvernig dóttir hennar endaði í Fluvanna-fangelsinu í Virginíuríki.
Lestur á dv.is: 98.102 Deilingar: 210 Birtist: 26. ágúst Fjöldi ummæla: 2
4 Gísli Pálmi og fentanýl Tónlistarmaðurinn
Gísli Pálmi reyndi að koma einum besta
vini sínum til bjargar þegar sá hneig niður
við veitingastaðinn Prikið á menn-
ingarnótt. Í frétt DV kom fram að
rapparinn umdeildi hnoðaði manninn um
stund en skömmu síðar kom sjúkrabíll á
vettvang. Sjúkraflutningsmönnum tókst
að koma hjarta mannsins aftur af stað
með hjálp hjartastuðtækis. Síðar um
kvöldið lést sameiginlegur vinur þeirra á
heimili sínu. Grunur leikur á að mennirnir
hafi báðir neitt lyfsins fentanýl sem er
rótsterkt lyfseðilsskylt lyf sem selt er í
plástraformi.
Lestur á dv.is: 126.878 Deilingar: 2.016
Birtist 25. ágúst Fjöldi ummæla: 12
5 Okrað á Íslendingum Margar íslenskar verslanir fá falleinkunn þegar kemur að verðsamanburði við verslanir
í nágrannalöndum. Í umfangsmikilli umfjöllun DV kemur fram að
algengur hlutfallslegur verðmunur á útsöluverði á Íslandi annars
vegar og Bretlandi, Noregi og Danmörku hins vegar er á bilinu
40–150 prósent. „Það er okrað á íslenskum neytendum,“ sagði
Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna.
Lestur á dv.is (fyrsta frétt): 26.528
Deilingar: 39 Birtist: 11. nóvember
Fjöldi ummæla: 29
6 Brotnuðu saman og grétu fyrir utan SS: „Þetta eru útrýmingarbúðir“ „Hvernig getið þið þetta? Hvernig sofnið þið á nóttunni
drepandi dýr með köldu blóði? Morðingjar. Setjið ykkur í spor þeirra. Þið eruð að drepa þau.
Þetta eru útrýmingarbúðir eins og í heimsstyrjöldinni. Þið eruð að drepa þau. Þið eruð að my
rða saklausa einstaklinga. Til að græða á þeim peninga,“ hrópaði einn mótmælandi fyrir
utan SS á Selfossi og var mikið niðri fyrir. Þar stóðu Aktívegan, samtök um réttindi dýra til
lífs og frelsis, fyrir mótmælum.
Lestur á dv.is : 105.153 Deilingar: 839 Birtist 7. nóvember Fjöldi ummæla: 39
Athyglisverð mál
úr DV á árinu 2016