Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 21. júlí 2017fréttir D ularfullt hvarf íslensks tannlæknis hefur vakið talsverða athygli í Hollandi undanfarnar vikur. Í um- fjöllun hollenska blaðsins AD kemur fram að tannlæknirinn, sem heitir Bjarki Ágústsson, hafi sett miða á útidyr tannlæknastofu sinnar, Scandinavia Dental, þar sem sjúklingar í neyð voru hvattir til þess að leita annað. Síðan hafi dyrunum verið læst og ekkert hafi spurst til Bjarka síðan. Forsvars- maður tannlæknafélags furðar sig á framkomunni og segir alvar- legt að sjúklingar, sem eru mörg hundruð talsins, fái ekki aðgang að sjúkraskrám sínum. Þá eru starfsmenn stofunnar í sárum út af vangoldnum launum. „Hann virkaði á mig sem góður og vinalegur maður“ Í umfjöllun AD blaðsins frá júlí- byrjun kemur fram að Bjarki hafi tekið við stofunni, sem staðsett er í bænum Vianen í Hollandi, árið 2014. „Hann virkaði á mig sem góður og vinalegur maður. Að því er ég best vissi var hann fær tannlæknir og því taldi ég að sjúk- lingar mínir væru í góðum hönd- um. Ég skil ekkert hvað er í gangi,“ hefur blaðið eftir hollenska tann- lækninum Jeannete Klein Gebb- ink-Lewin, fyrrverandi eiganda stofunnar. Allt virtist með felldu en í lok maí flutti stofan í nýtt húsnæði í bænum. Reksturinn fór í sinn vanagang, að minnsta kosti á yf- irborðinu, en í júlíbyrjun sást skyndilega miði á útidyrum stof- unnar með stuttum skilaboðum. „Ef um neyðartilvik er að ræða þá hafið samband við aðra tann- lækna í hverfinu.“ Síðan þá hefur stofan verið lokuð og engar upp- lýsingar fengist. Þá hefur hol- lenska blaðið eftir nágrönnum Bjarka að heimili hans hafi verið tæmt fyrir tveimur vikum og hús- ið virðist hafa verið yfirgefið. Einstæð móðir í sárum „Hann bara hvarf,“ segir Gerjanna van Schaik, sem starfaði í tvö ár í móttöku tannlæknastofunnar. Að hennar sögn er atburðarásin furðuleg og hún vandar Bjarka ekki kveðjurnar. „Bjarki þekkti aðstæður mínar og það er ótrú- legt að hann hafi komið mér í þessa stöðu,“ segir Gerjanna. Hún er einstæð móðir og má illa við því að fá ekki greidd laun eins og raunin er orðin. Þá séu dæmi um að starfsfólk hafi ekki fengið laun greidd í nokkra mánuði. Samkvæmt henni virðist hið fyrirvaralausa hvarf Bjarka hafa átt sér nokkurn aðdraganda því um miðjan júní bað Bjarki hana um að aflýsa öllum tímum sjúk- linga og að hvetja þá til þess að leita annað. „Mér fannst það skrít- ið en hann minntist eitthvað á yf- irtöku og vildi ekki neinar spurn- ingar,“ segir Gerjanna. Hann hafi síðan fyrirvaralaust sent hana í tveggja vikna leyfi. Á meðan því stóð hafi hún heyrt að Bjarki hefði ráðið annan starfsmann tímabundið til þess að aflýsa öllum tímum. Þá hafi viðvörunarbjöllur farið að hringja í höfði hennar og hún dreif sig niður á skrifstofuna til að fá svör. Þar hafi hún hitt á Bjarka og geng- ið á hann. „Hann sagðist hafa reynt sitt besta en síðan fór hann upp í bíl sinn og brunaði í burtu,“ segir Gerjanna. Hún hafi kíkt inn á stofuna og séð að búið var að fjarlægja ýmis dýr tæki og tól. Sjúkraskýrslur í uppnámi En það er ekki bara starfsfólk sem er í sárum. Það sama gildir um sjúklinga stofunnar sem upplifa algjöra óvissu. „Tannlæknar eru ábyrgir fyrir því að sjúklingar fái aðgang að sjúkraskrám sínum. Ef rekstri er hætt þá ber tannlækn- inum skylda til þess að afhenda sjúklingunum gögnin eða senda þau á aðrar stofur. Það virðist ekki hafa verið gert í þessu tilviki, miði í gluggann nægir ekki. Þetta eru sorglegar fréttir fyrir sjúklingana sem þurfa núna að finna sér ann- an tannlækni í hvelli,“ segir Hans Scholten, formaður félags at- vinnutannlækna í samtali við AD. Fram kemur að ef gjaldþrot stofunnar er yfirvofandi þá muni sjúklingar geta nálgast gögnin sín í gegnum skiptastjóra. Ef Bjarki hafi hins vegar látið sig hverfa út í sólarlagið þá þurfi sjúklingar að hafa samband við neyðarlínu hol- lenska heilbrigðiseftirlitsins til þess að freista þess að fá sjúkra- skýrslur sínar áframsendar á nýj- ar stofur. Starfaði um tíma í Póllandi Í nýjustu frétt AD blaðsins um málið kemur fram að Bjarki Ágústsson sé kvæntur pólskri konu og að mögulega hafi hann í hyggju að opna nýja tann- læknastofu þar í landi. Með ein- faldri leit á vefnum má sjá að Bjarki er skráður starfsmaður hjá Ra-Dent, tannlæknastofu í borginni Szczecin í Póllandi. „Dr. Ágústsson vinnur ekki lengur hérna. Hann starfaði hér um tíma fyrir stuttu síðan en það gekk ekki upp til lengdar út af skuldbinding- um hans í Hollandi," sagði tals- maður Ra-Dent í samtali við DV. Hún bætti við að Bjarki væri frá- bær tannlæknir og að hans væri sárt saknað. n Íslenskur tannlæknir gufaði upp Í HollanDi n Bjarki Ágústsson yfirgaf rekstur sinn í Hollandi n kvaddi hvorki kóng né prest Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Stuttorður Þessi miði blasti skyndilega við viðskiptavinum Scandinvia Dental í júlíbyrjun. „Ef um neyðartilvik er að ræða þá hafið samband við aðra tannlækna í hverfinu.“ Síðan þá hefur stofan verið lokuð. Bjarki Ágústsson Íslenski tannlæknirinn lét sig hverfa frá rekstri sínum í Hollandi. Starfs- fólk og sjúklingar eru í sárum. Tannlæknastofan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.