Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 52
28 sakamál Helgarblað 21. júlí 2017 Á Alpine Manor, dvalarheim- ili aldraðra í Walker í Michigan í Bandaríkjun- um, unnu fyrr meir tvær vafasamar kvensniftir; Gwendolyn Graham og Catherine Wood. Hjúkrunarkonurnar voru ekki aðeins vinnufélagar heldur einnig ástkonur og áttu það sameigin- legt að tilhugsunin um morð veitti þeim hvað mesta kynferðislega örvun. Í upphafi var þetta sem leikur og þær ætluðu að velja fórnarlömb sín út frá nöfnum þeirra; fanga- mörk þeirra áttu að mynda orðið „Murder“, morð. Með því hugðust þær skensa lögregluna. Gwen Áður en lengra er haldið er vert að huga aðeins að fortíð Gwen og Cathy. Gwen fæddist í Kaliforníu en ólst upp í Texas. Hún mun hafa verið rólyndisbarn en nánast ávallt dapurleikinn uppmálaður. Síðar útskýrði Gwen depurð sína með frásögnum af föður sín- um sem að hennar sögn veitti henni helst til mikla kynferðis- lega athygli – sannleiksgildi þeirrar skýringar fékkst aldrei staðfest. Gwen flutti til Michigan árið 1996 og hún fékk starf á Alpine Manor. Cathy Næsti yfirmaður Gwen á hjúkr- unarheimilinu var Cathy, þá 24 ára. Cathy hafði gifst á unglingsaldri og þegar sjö ára hjónaband hennar rann sitt skeið glímdi hún við offitu á alvarlegu stigi; vó 205 kíló. Cathy var vinalaus og einmana, en fljótlega eftir að hún störf á Alpine Manor, 1985, var henni veitt stöðuhækkun, varð yfirmaður að- stoðarmanna hjúkrunarfræðing- anna á staðnum. En félagslíf Cathy var ekki upp á marga fiska og á því varð engin breyting fyrr en leiðir hennar og Gwen lágu saman. Ástarsamband og megrun Vinátta þeirra breyttist skjótt í ást- arsamband, Cathy sagði aukakíló- unum stríð á hendur og varð tíður gestur í klúbbum samkynhneigðra, stundaði partí af miklum móð og fór ekki varhluta af skyndikynnum. En tryggð hennar við Gwen beið ekki hnekki og síðla árs 1986 höfðu þær heitið hvor annarri ævarandi ást sem ekkert fengi grandað. Í október það ár viðraði Gwen hugmyndir sínar um skipulögð morð, en Cathy tók hana ekki alvarlega. Gwen fékk mikið upp úr því að binda Cathy þegar þær stunduðu kynlíf og nánast kyrkja hana eða kæfa með kodda meðan á því stóð. Áður en langt um leið fannst Cathy sem þetta samspil ánægju og sársauka væri ómissandi. Byrjendamistök Í janúar 1987 hófust stöllurnar handa, en lentu á ýmsum hindr- unum. Meðal annars misreiknuðu þær hversu mikið líf var í fyrstu fórnarlömbunum sem voru alls ekki á því að kveðja jarðlífið. Þurftu Gwen og Cathy þá frá að hverfa, en merkilegt nokk bárust engar kvart- anir frá þeim þrjósku gamalmenn- um sem varð lengra lífs auðið en vinkonurnar ætluðu. En æfingin skapar meistarann og sá Gwen ekki annað í stöðunni en að velja veikburða konur það- an í frá. Minjagripir geymdir Cathy stóð alla jafna á vakt þannig að hún gat fylgst með starfsstöðv- um annarra hjúkrunarkvenna og séð þegar ástkona hennar murkaði lífið úr gamalmennunum. Stundum gátu þær ekki hamið sig og fóru strax að loknu morði inn í tómt herbergi og nutu kyn- lífs. Gwen stal ýmsu úr fórum fórn- arlamba sinna; vasaklútum, næl- um og jafnvel fölskum tönnum, og geymdi til minja um morðin. Stöllurnar virtust nærast á þeirri spennu sem fylgdi ódæðunum og möguleikanum á að upp um þær kæmist. Gengu þær svo langt að gorta af fjölda fórnarlamba sinna við vinnufélaga sína sem ályktuðu að um sjúklegan húmor væri að ræða. Leiðir skilur Í apríl dró til tíðinda þegar Cathy neitaði að sanna ást sína með því að drepa hvern sem er. Skömmu síðar var hún færð á nýja vakt en Gwen hafði fundi sér nýja lesbíu, Heather Barager, sem hún varði sí- fellt meiri tíma með. Gwen fór síð- an með Heather heim til Texas og skildi Cathy eftir í sárum. Í ágúst sagði Cathy sínum fyrr- verandi, Ken, alla söguna en ein- hverra hluta vegna beið hann í fjórtán mánuði með að hafa sam- band við lögregluna. Þegar lög- reglan síðan heyrði frásögn Kens átti hún bágt með að leggja trún- að á hana. Um fjörutíu vistmenn höfðu skilið við fyrsta fjórðung ársins 1987, allir með eðlilegum hætti að talið var. En við nánari athugun virtist þó eitthvað bogið við átta dauðsföll. Þegar þarna var komið sögu hafði Gwen hafið störf á Mother Frances-sjúkrahúsinu í Texas, en hringdi þó endrum og sinnum í sína gömlu kærustu. Fimm vafamál Af þeim átta dauðsföllum sem lög- reglan kíkti nánar á var í þremur til- fellum útilokað að eitthvað grun- samlegt hefði átt sér stað. Eftir stóðu fimm möguleg fórn- arlömb; Marguerite Chambers, 60 ára, Edith Cole, 89 ára, Myrtle Luce, 95 ára, Mae Mason, 79 ára, og Belle Burkhard, 74 ára. Reyndar var fátt um beinharð- ar vísbendingar um að konurnar fimm hefðu verið myrtar, en í ljósi frásagnar Kens taldi ákæruvaldið sig hafa nóg í höndunum til að leggja fram ákæru. Lykilvitni Cathy og Gwen voru handteknar í desember 1988 og ákærðar fyr- ir morð á tveimur kvennanna. Á meðal vitna sækjanda voru fjór- ar fyrrverandi samstarfskonur og í september 1989 hljóp á snærið hjá ákæruvaldinu þegar Cathy ját- aði sig seka um manndráp, gerðist lykilvitni gegn fyrrverandi ástkonu sinni og slapp við lífstíðardóm fyr- ir vikið. Að sögn Cathy hafði Gwen, auk morðanna, reynt að kæfa fimm konur sem þó sluppu með skrekk- inn. Upp úr kafinu kom að það var ekki sektarkennd sem fékk Cathy til að segja Ken söguna. Cathy óttaðist að Gwen færði morðin upp á nýtt og óhugnanlegra svið í nýju starfi hennar á sjúkrahúsinu í Texas. Sexfaldur lífstíðardómur Það sem olli Cathy áhyggjum var að Gwen kynni að snúa sér að ung- börnum næst. „Þegar hún var að myrða fólk á Alpine og ég aðhafðist ekkert, það var nógu slæmt,“ sagði Cathy. „En þegar hún fór að hringja í mig og segja mér hve mikið hana langaði að stúta barni, ég varð að stoppa hana einhvern veginn.“ Cathy sagði að þegar þar var komið sögu hafi hún orðið að grípa í taumana: „Hún [Gwen] sagði að hana langaði að taka eitt af börnun- um og slengja því í glugga. […] Mér var orðið sama hvað yrði um mig.“ Þegar upp var staðið komst kvið- dómur að þeirri niðurstöðu að Gwen væri sek um fimm morð og áform um hið sjötta. Gwendolyn Graham fékk sexfaldan lífstíðardóm 2. nóvem- ber 1989 án möguleika á reynslu- lausn. n Dúett Dauðans n tvinnuðu saman kynlíf og morð n Fórnarlömbin voru aldraðar konur Slapp við lífstíðardóm Cathy innsiglaði örlög fyrrverandi ástkonu sinnar. Sá um morðin Gwen mun ekki um frjálst höfuð strjúka framar. „Hún sagði að hana langaði að taka eitt af börnunum og slengja því utan í glugga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.