Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 56
32 lífsstíll Helgarblað 21. júlí 2017 Fitublettir Eru fitublettir fastir á veggjunum? Eða kannski í uppáhalds flíkinni þinni? Ef þú krítar yfir blettina með hvítri krít og bíður í nokkrar mínútur ættir þú, í framhaldinu, að geta þurrkað fitublettinn auðveldlega af. Örbylgjuofninn Ef slettur og aðrar matarleifar sitja fastar í örbylgjuofninum er sniðugt að skera sítrónu í tvennt og skella henni í skál með vatni. Hitaðu vatnið að suðu og láttu það standa í ör- bylgjuofninum á meðan gufurnar gera sitt gagn. Eftir um það bil 10 mínútur ættir þú að geta strokið öll óhreinindi úr ofninum. Tíu frábær húsráð sem einfalda heimilisþrifin Það þarf ekki að vera flókið að halda hreint heimili og leysa ýmis vandamál sem koma upp í daglegu amstri Ö ll viljum við hafa hreint og fínt í kringum okkur en að sama skapi finnst fæstum gaman að þrífa. Hvernig á að þrífa rúmdýnur og hver hef- ur ekki sullað steikarolíu í nýja rándýra bolinn sinn? Hér að neð- an má finna nokkur frábær hús- ráð sem munu án efa gagnast þér við þrifin og hin ýmsu hvimleiðu vandamál sem fylgir því að vera manneskja. n Æla Ef þú verður fyrir því óláni að einhver ælir í sófann eða á fína stofuteppið skaltu ekki örvænta. Búðu til leðjukennda blöndu af matarsóda og vatni og dreifðu því yfir svæðið með spaða. Láttu blönduna þorna yfir nótt. Morguninn eftir getur þú ryksugað þetta upp. Rúmdýnur Margir telja að það sé ómögulegt að þrífa rúmdýnuna. En svo er ekki. Helltu vodka í úðabrúsa og úðaðu alla dýnuna. Láttu áfengið liggja í þar til það er þornað. Áfengið eyðir bakteríum og vondri lykt úr dýnunni. Varalitur í fötum Fór varalitur í uppáhalds bolinn þinn? Hann er ekki ónýtur. Það eina sem þú þarft að gera, svo hann verði eins og nýr, er að spreyja hárlakki yfir blettinn og láta standa í 10 mínútur. Að því loknu skaltu þurrka yfir blettinn með rökum klút. Þvoðu svo flíkina eins og venjulega. Blautir skór Komstu hundblaut(ur) inn úr óvæntri rigningu og uppáhalds skórnir þínir eru gegnsósa? Ekki örvænta. Ef þú fyllir þá af dagblöðum þá draga þau bleytuna í sig og skórnir þorna mun fyrr en ella. Stíflaðar pípulagnir Skelltu fjórum Alka-Seltzer töflum í niðurfallið ásamt einum bolla af ediki. Skolaðu með heitu vatni tíu mínútum síðar. Flýttu fyrir þurrkaranum Ef þú skellir einu þurru handkæði í þurrkarann með blauta þvottinum þá getur þú sparað heilmikinn tíma og orku. Handklæðið dregur í sig rakann úr fötunum. Það er nóg að hafa handklæðið í þurrkaranum í 15 mínútur, en þetta styttir heildarþurrkunartímann fyrir afganginn töluvert. Brunablettir í pottum og pönnum Settu vatn í botninn á pottinn/pönnunni og bætu við einum bolla af ediki. Láttu blönduna malla á hellunni í nokkrar mínútur og bættu svo við tveimur matskeiðum af matarsóda. Láttu malla með í nokkrar mínútur við viðbótar. Að því loknu skaltu hella úr pottinum/pönnunni og nuddaðu það sem eftir er með grófum svampi. Skítug uppþvottavél Þó svo að uppþvottavélin sjái um að þrífa diska og glös verður hún samt óhrein að innan. Þá er gott að setja skál eða könnu fulla af ediki í efri rekk- ann, stilla hana á háan hita og setja í gang. Þar á eftir skaltu dreifa smá matarsóda í botninn á vélinni og kveikja aftur á henni. Að hreinsun lokinni verður hún eins og ný.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.