Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 36
Dunkirk fjallar um aðgerðina Dynamo sem átti sér stað dagana 26. maí til 4. júní árið 1940 þegar Bretum og banda- mönnum þeirra tókst að bjarga um 340 þúsund hermönnum úr sjálfheldu við strendur og höfn- ina í Dunkirk í Frakklandi og yfir Ermarsundið, þrátt fyrir stanslaus- ar árásir þýskra orrustuflugmanna, sem fengið höfðu skipun um að granda öllum bátum og skipum sem freista myndu þess að bjarga hermönnunum. Atburðurinn, sem er eitt magnaðasta björgunarafrek sögunnar, hefur fengið viðurnefnið „kraftaverkið í Dunkirk“. Ungur og óreyndur í aðalhlutverki Þegar kom að prufum fyrir Dun- kirk vissi Whitehead ekkert um myndina annað en titilinn og um hvað hún fjallaði. „Það vissi enginn hversu margar sögupersónur væru, hverjar þær væru, aldur, „plottið“ eða annað. Þetta var allt mjög leynilegt,“ sagði hann í viðtali við LA Times. Þegar honum var síðan boðið hlutverkið, var hann orðlaus þegar í ljós kom að það væri aðal- hlutverkið. Hann fór því í að kynna sér sögur þeirra sem komumst lífs af. „Eitt það fyrsta sem þú tekur eftir þegar þú kynnir þér Dunkirk, er hversu ungir og óreyndir her- mennirnir voru,“ sagði Nolan um val sitt á Whitehead. „Mér fannst því mjög mikilvægt, sérstaklega fyrir hlutverk Fionns, að finna einhvern alveg nýjan.“ Og það er Whitehead svo sannarlega, því ferilskráin innihélt aðeins leik í Him, þriggja þátta sjónvarpsseríu. Næsta mynd hans á eftir Dunkirk er The Children Act, byggð á bók Ian McEwan, þar sem hann mun leika á móti Emmu Thompson og Stanley Tucci. Í Dunkirk leikur Whitehead hermanninn Tommy og upplifir áhorfandinn aðstæður í Dunkirk í gegnum augu og eyru Tommy. Ætla má að björt framtíð sé framundan fyrir Whitehead kjósi hann svo, en sjálfur segist hann bara taka því sem að höndum ber. Dunkirk var tekin upp sumarið 2016 bæði við Dunkirk og í Los Angeles og það er einvala lið leik- ara sem fer með helstu hlutverk. Dunkirk hefur fengið gríðarlega góða dóma vestanhafs og er hún með 9,6 í einkunn á IMDB. Íslendingur yfirmaður leikmyndar Vð Íslendingar eigum fulltrúa við gerð myndarinnar, en Eggert Ketilsson, leikmyndahönnuður og brellusérfræðingur, er yfirmaður leikmyndar. Eggert hefur komið að gerð fleiri stórmynda, eins og unnið að brellugerð (speci- al effects) við Star Wars: The Force Awakens og Rouge One úr Stjörnustríðsseríunni, Thor: The Dark World og Journey to the Center of the Earth. Þá hafði hann yfirumsjón með leikmynd og öðrum sjón- og listrænum þáttum (art direct- ion) í Dunkirk og þáttaröðunum Sense8 og Halo:Nightfall. Þegar vonin er eina vopnið Sambíóin sýna nýjustu mynd Christopher Nolan Seinni heimsstyrjöldin hefur komið við sögu í fjölda kvikmynda, enda atburður sem snerti alla heimsbyggðina og því kjörið sögusvið leikinna kvikmynda. Sú nýjasta þeirra, stórmyndin Dunkirk í leikstjórn Christopher Nolan, var frumsýnd mið- vikudaginn 19. júlí síðastliðinn í Sambíóunum. Kraftaverkið í Dunkirk NýstirNi Hinn tvítugi Fionn Whitehead leikur aðalhlut- verk í Dunkirk. Hann vann við uppvask í Waterloo í London og í frítíma sínum reyndi hann fyrir sér í hverri áheyrnarpruf- unni á fætur annarri. Christopher NolaN Leikstjórinn Christopher Nolan skrifar jafnframt handrit myndar-innar og er annar framleiðanda hennar. Dunkirk er tíunda mynd hans í fullri lengd og á meðal fyrri mynda hans má nefna Batman-þríleikinn, Memento og Interstellar. Hafa myndir Nolan jafnan fengið góðar viðtökur og dóma, verið tilefndar til og unnið til verðlauna og ratað inn á fjölda topplista víðs vegar um heiminn. KeNNeth BraNagh Írski leikarinn, leikstjórinn, framleiðandinn og handritshöfundurinn er vel þekktur fyrir leik sinn og leikstjórn í mörgum myndum byggðum á verkum William shakespeare, en hann hefur einnig leikið í fjölda annarra mynda og í sjónvarpsþáttum. Branagh hefur verið tilnefndur til fjölda verðlauna, meðal annars Óskars- og Golden Globe-verðlauna og hefur unnið fjölda verðlauna, meðal annars Bafta og Emmy-verðlaun. Hann var aðlaður árið 2012. CilliaN Murphy Írski leikarinn leikur nú í fimmtu myndinni undir leikstjórn Nolan, hinar eru inception (2010) og the Dark Knight trílógían (2005-2012). Murphy hefur leikið jöfnum höndum á sviði og í kvikmyndum, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum og hefur verið tilnefndur og unnið til verðlauna í heimalandinu bæði fyrir leik á sviði og í sjónvarpi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.